Fréttablaðið - 31.10.2007, Page 26
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 550 5000.
„Sennilega byrjaði ég í leik-
list til þess að fela mig á
bak við sögupersónur og
flýja sjálfan mig.“
AFMÆLI
Norræna blaðamannamiðstöðin í Ár-
ósum í Danmörku fagnaði á dögunum
hálfrar aldar starfsafmæli með ráð-
stefnu þar sem blaðamenn frá öllum
Norðurlöndunum tóku þátt.
Miðstöðinni var komið á laggirnar árið
1957 af norrænu blaðamannasamtök-
unum með stuðningi frá Norðurlanda-
ráði og hefur frá upphafi haft aðsetur
í Árósum. „Markmið miðstöðvarinnar
er tvíþætt. Annars vegar að mennta og
endurmennta blaðamenn og hinsveg-
ar að skapa norrænt tengslanet,“ segir
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri
rásar 1 og 2, en hún var á árunum 1997-
1999 rektor stöðvarinnar og tók þátt í
ráðstefnunni á dögunum.
„Framtíð fjölmiðlanna var aðalum-
ræðuefnið þar sem einnig var komið
inn á tjáningarfrelsi, þá sérstaklega
með tilliti til Rússlands og Eystrasalts-
landanna sem hafa tekið þátt síðastlið-
in ár,“ segir Sigrún og heldur áfram:
„Þegar múrinn féll var boðið upp á
kærkomið námskeið fyrir blaðamenn
frá þessum löndum og meðal annars
farið í grunnatriðið í blaðamennsku,
lýðræði og siðfræði blaðamanna. Nú
hafa þessi lönd þróast og framfarirn-
ar verið hraðar. Þess vegna var þetta
orðið meira jafningjafræðsla í minni
tíð frekar en að við værum að setja
okkur í einhverjar kennarastelling-
ar,“ útskýrir Sigrún sem segir að jafn-
aði einn til tvo blaðamenn frá Íslandi
sækja svokölluð Árósarnámskeið ár-
lega.
„Árósarnámskeiðin eru tveggja mán-
aða námskeið sem er flaggskip mið-
stöðvarinnar og hafa verið mikill feng-
ur fyrir íslenska blaðamenn síðastlið-
in þrjátíu ár. Þó finnst mér standa upp
úr hvað íslenskir blaðamenn eru vel
menntaðir, flestir með BA- og eða MA-
próf. Aðgengi að endurmenntun innan
blaðamennsku hérlendis mætti þó
bæta, því það vill brenna við að blaða-
menn sæki frekari menntun innan ann-
ars fags og hverfi þá til starfa á öðrum
sviðum með betri kjörum. Þetta held
ég sé ein af orsökum þess að blaða-
menn stoppa stutt við,“ útskýrir Sigrún
sem segist fagnar tilkomu yngri blaða-
manna. „Í dag er mikið af yngri blaða-
mönnum sem hafa vissan heimsborg-
arabrag, víðreistir með góða menntun.
Þetta er mjög góð þróun en samt þarf
að huga að fjölbreytni og það er ekki
nóg að passa bara upp á kynjahlutföll.
Við þurfum líka eldri blaðamenn sem
kunna söguna og hafa aðra sýn á sam-
félaginu,“ segir Sigrún.
Blaðamannamiðstöðin hefur einn-
ig gengið í gegnum breytingar og er
í dag hluti af danska blaðamanna-
háskólanum sem var falið að sjá um
hana til ársins 2009 og nefnist nú UP-
DATE. „Þessar breytingar þýða betri
nýting á fjármagni en óneitanlega
vekur þetta áhyggjur af norræna
vinklinum sem ég vona að hverfi
ekki. Miðstöðin er að gera mjög góða
hluti og hafa alltaf sýnt því skilning
hversu mikið við höfum þurft að leita
til þeirra. Þetta er mjög gjöfult sam-
starf og við getum svo sannarlega
lært mikið af þessum grannþjóðum
okkar,“ segir Sigrún.
Elskuleg ástkær eiginkona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður Kristbjörg
Stefánsdóttir
til heimilis að Skarðshlíð 23e, Akureyri,
sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðju-
daginn 23. október, verður jarðsungin frá Glerárkirkju
föstudaginn 2. nóvember kl. 14.00.
Eggert Ólafsson
Sigurlaug Anna Eggertsdóttir Bergvin Jóhannsson
Steinunn Pálína Eggertsdóttir Jóhann Jóhannsson
Stefán Eggertsson
Elín Valgerður Eggertsdóttir Hilmar Stefánsson
ömmu- og langömmubörn.
Borghildur Kristjánsdóttir
Espigerði 10, Reykjavík
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma lést
þann 23. oktober. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Kristján M. Gunnarsson, Elín Magnúsdóttir og fjölskylda
Örn Gunnarsson, Bryndís Guðjónsdóttir og fjölskylda.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Guðmundur Árnason
bóndi, Oddgeirshólum,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands laugardaginn
27. október. Verður jarðsunginn frá Hraungerðiskirkju
föstudaginn 2. nóvember kl. 14.00.
Angelika Guðmundsdóttir Ásgeir Gunnarsson
Árni O. Guðmundsson Guðrún Guðmundsdóttir
Magnús G. Guðmundsson Bryndís Snorradóttir
Steinþór Guðmundsson Þuríður Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Svanhildur Maríasdóttir
áður til heimilis að Álfaskeiði 49,
Hafnarfirði,
lést mánudaginn 29. október á Sólvangi í Hafnarfirði.
Útför verður auglýst síðar.
Viðar Elíasson
Hilmar Elíasson
Svanur Elí Elíasson
Selma Björk Elíasdóttir
Halldór Guðbjartur Elíasson Sesselja Guðbjörg
Ragnarsdóttir
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Guðný Skeggjadóttir
Strandvegi 11, Garðabæ, áður Álfhólsvegi
33, Kópavogi,
lést á Líknardeildinni í Kópavogi 28. október síðast-
liðinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Blóm og
kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Minningarsjóð Líknardeildar,
sími 543 1159.
Guðmundur K. Ingimarsson
Skeggi Guðmundsson Katrín J. Sigurðardóttir
Hólmfríður E. Guðmundsdóttir Úlfar Henningsson
Henning Arnór Úlfarsson Emilía Lóa Halldórsdóttir
Salka Kristinsdóttir og Kolka Henningsdóttir
Indira Ghandi myrt