Fréttablaðið - 31.10.2007, Síða 30
Stjörnurnar í Hollywood
hafa sjaldan verið iðnari
við að fjölga sér. Nú er von
á fjölgun í einni frægustu
fjölskyldu heimsbyggðar-
innar, ef frétt breska blaðs-
ins The Sun reynist rétt.
The Sun greindi frá því í gær að
ein frægasta móðir heims, Angel-
ina Jolie, væri ólétt í annað skipt-
ið. Angelina og Brad Pitt eiga
saman fjögur börn. Maddox, Zah-
ara og Pax eru ættleidd, en Shiloh
fæddist þeim skötuhjúum í fyrra.
Upplýsingar blaðsins eru fengn-
ar hjá talskonu Unlinked Pio
Manzu miðstöðinni, rétt hjá
Rimini á Ítalíu. Angelina hafði
fallist á að halda tölu á ráð-
stefnu þar á bæ, en hætti við á
síðustu stundu vegna „persónu-
legra ástæðna“.
Blaðamenn þar í landi fóru
strax að velta því fyrir sér hvort
um þungun væri að ræða og í
kjölfarið hafði the Sun sam-
band við Letiziu Manjani,
talskonu miðstöðvarinnar.
Þrátt fyrir að vera bundin
þagnareiði sagði Letizia að
„Angelina hætti við í síðustu
viku. Einkalífs hennar vegna
get ég ekki staðfest þungun-
ina, en ég get sagt að ítölsku
blöðin hafa rétt fyrir sér,“
sem þykir staðfesta að um
þungun sé að ræða.
Á sama tíma berast
fregnir af því að leikkonan
Cate Blanchett eigi von á
þriðja barni sínu með eig-
inmanninum Andrew Upton.
Það hefur ekki fengist stað-
fest enn sem komið er, en
leikkonan hefur vakið mikla
athygli á síðustu vikum
fyrir að vera þrýstnari en
hún á vanda til, og þá sér-
staklega í kringum magann.
Hún hefur ekki legið á því
við blaðamenn að hana
langi til að fjölga enn í fjöl-
skyldunni, en hún á fyrir syn-
ina Dashiell John og Roman
Robert.
Þær Angelina og Cate bætast
þá í fríðan flokk verðandi
mæðra í Hollywood. Nicole
Richie er langt gengin með
fyrsta barn sitt og kærastans
Joels Madden, Milla Jovovich á
að eiga á næstu dögum, Halle
Berry á von á sínu fyrsta barni
og það er almennt vitað að Christ-
ina Aguilera og Jordan Bratman,
eiginmaður hennar, séu með barn
á leiðinni. Þær Salma Hayek,
Naomi Watts, Julia Roberts og
Marcia Cross hafa allar eignast
börn á árinu, að ógleymdri
nýfæddri Boratdóttur.
Barneignir virðast vera í tísku
hjá stjörnunum þessa dagana, og
að minnsta kosti óhætt að segja
að Hollywoodbörnunum fjölgi
ört.
Fótboltakappinn David Beckham segir að
hvorki Tom Cruise né eiginkona hans
Katie Holmes hafi reynt að fá sig og konu
hans Victoriu til að ganga í Vísindakirkj-
una.
„Við berum virðingu fyrir þeirra trúar-
brögðum. Við virðum allt sem þau gera og
trúa á,“ sagði Beckham. „Þau hafa aldrei
hvatt okkur til að ganga í Vísindakirkjuna
því þau eru ekki þannig manneskjur. Þau
hafa aldrei reynt að troða trúar-
brögðum sínum upp á okkur
því þannig haga vinir sér
ekki.“
Tom og Katie hafa stutt
Beckham-hjónin mikið síðan
þau fluttu til Los Angel-
es og héldu til að mynda
fyrir þau stóra veislu í
júlí. „Þau eru alveg
frábær og hafa virkilega jákvætt viðhorf
til lífsins. Þau hafa reynst okkur mjög
vel,“ sagði hann.
Beckham segist einnig vera náinn vinur
Mark Anthony, eiginmanns Jennifer
Lopez. „Við tölum saman um allt mögu-
legt, til dæmis hvað sé fram undan þessa
vikuna eða bara um daginn fram undan.
Við tölum um hvað sé að gerast hjá Jenni-
fer og hjá Victoriu. Ég tala við hann að
minnsta kosti þrisvar til fjórum sinn-
um í viku.“
Hann segir að þau hjónin beiti
ýmsum aðferðum við að halda
rómantíkinni gangandi í
sambandinu. „Við gerum rómantíska hluti
á hverjum degi. Við skrifum bréf og búum
til morgunmat hvort fyrir annað. Á hverj-
um degi gerist eitthvað sem er rómant-
ískt. Sumum finnst þetta kannski væmið
en við erum ánægð með að hafa viljað fá
það sama út úr lífinu, að eignast börn
snemma og lifa ævintýragjörnu lífi.“
Ekki þvinguð í Vísindakirkju
vinbud.isHva› hæfir best me› ?