Fréttablaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 07.11.2007, Blaðsíða 48
Fólk af landsbyggðinni er mikið skemmtilegra en það sem kemur úr bænum.“ Þessi fullyrðing hrökk upp úr samstarfsmanni mínum í hádegishléi fyrir skemmstu. Við matarborðið sátu Þingeyingur, Aust- firðingur, Borgfirðingur, Vestfirð- ingur og Landeyingur eða „dreifar- ar“ eins og slíkur hópur er oft kallaður einu nafni. Þykir mér það reyndar algerlega fáránlegt að til sé samheiti yfir fólk frá svo ólíkum stöðum og alveg öruggt merki um að landafræðikennslu hafi farið hnign- andi í grunnskólum. Þótt sjálf hafi ég reyndar ekki byrjað að gera skarpan greinarmun á Reykjavík, Garðabæ og Seltjarnarnesi fyrr en um aldamótin, enda um samvaxið fyrirbrigði að ræða. fulltrúar landsbyggðarinnar kinkuðum kolli við athugasemdinni og teyguðum mjólk til að ná að kyngja mötuneytismatnum. Við full- yrtum öll að við værum hreinlega miklu áhugaverðara fólk heldur en það sem hefði alið manninn á höfuð- borgarsvæðinu. Þóttu mér þessar staðhæfingar hverju orði sannari og hunsaði algerlega þá staðreynd að sambýlismaður minn og sonur til- heyrðu þeim hópi fólks sem við sögð- um óáhugavert og þröngsýnt. var eins og flóðgáttir brystu í þessu matartíma. Áralöng gremja sem við höfðum alið í brjósti okkar frá því við komum í bæinn sem ungl- ingar til að sækja okkur æðri mennt- un var færð í orð. Við minntumst þess tíma með sársauka þegar við neyddumst til að læra að þvo af okkur langt fyrir aldur fram, leituð- um að húsnæði meðal okrandi borg- arbúa og lifðum á núðlusúpu vetur- langt á meðan barnalegt liðið af höfuðborgarsvæðinu vældi um að fá bíl foreldra sinna lánaðan svo það þyrfti ekki ganga í skólann. en matartímanum lauk höfð- um við róast og jafnvel orðin reiðu- búin að viðurkenna að til væri gott fólk af höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki gæti eitthvað verið til í því að sumt fólk utan af landi væri svolítið hallærislegt. Ég minntist orða fyrr- um bekkjarbróður míns, sem nú er fasteignasali, sem eitt sinn tjáði mér að einkenni sveitavarga væri að vilja einungis kaupa íbúðir í 101. Allt kúl vantaði hreinlega í önnur númer, sem notuð eru til að auðvelda flokk- un á pósti. Þetta væri fólk sem mótað hefði sjálfsmynd sína og skilning í gegnum íslenskar kvikmyndir þar sem flestir leikstjórar þeirra virðast sannfærðir um að í sveitum og smá- bæjum landsins vilji fólk bara stunda sifjaspell og drekkja ólyfjan. Mestu miðbæjarrotturnar eru líklega oft á tíðum sveitalubbar á flótta undan sjálfum sér en staðráðnir í að sigra Kaffibarinn. Að sigra 101 www.toyota.is ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 3 94 67 1 0/ 07 Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Toyota Akureyri Baldursnesi 1 Akureyri Sími: 460-4300 Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbær Sími: 420-6600 Toyota Selfossi Fossnesi 14 Selfoss Sími: 480-8000 Toyota Austurlandi Miðási 2 Egilsstaðir Sími: 470-5070 Auris Dísil - Með vetrarpakka Ég er tilbúinn fyrir veturinn Ég vil finna fyrir öryggi þegar ég keyri bílinn minn. Auris er einn öruggasti bíllinn í sínum flokki samkvæmt árekstrarprófum. Bæði fyrir ökumann og farþega. Ég ber mikla umhyggju fyrir umhverfinu. Toyota D-4D dísilvélin leysir mun minna af koltvísýringi út í andrúmsloftið en sambærilegar bensín- vélar. Hún er hljóðlát en jafnframt aflmikil. Vélin eyðir litlu sem engu. 5 lítrum á hundraðið. Auris Dísil kemur undirbúinn fyrir veturinn frá umboðinu. Hann kemur á hágæða vetrardekkjum og að sjálfsögðu fylgja sumardekkin með í skottinu. Þessi hlutir skipta mig máli. Hvað með þig? Verð frá 2.030.000 kr. Verð miðast við Auris Dísil Terra

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.