Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 13
kurli
Austurlandi og Akureyri. Bændur
eru líka farnir að fella sjálfir og
selja á markaði, þeir bjóða líka
fólki að koma í skógana og velja
sér tré og það gerum við líka,“
segir hann.
Starfsemi Skógræktarinnar á
Hallormsstað er ekki sjálfbær
ennþá. Gert er ráð fyrir að heild-
arreksturinn kosti 51 milljón í ár
og 23 milljónir króna fáist fyrir
vörusöluna. Sértekjurnar eru því
heilmiklar. Þór segist samt aldrei
fá nægar fjárveitingar í verkefni,
hann hafi alltaf þörf fyrir meiri
mannskap og peninga því verk-
efnin séu yfirdrifin.
„Ég þyrfti að komast yfir meiri
grisjun árlega en við höfum gert
lengi. Ef maður grisjar ekki skóg-
ana þá dregur úr vexti þeirra og
það viljum við ekki,“ segir hann.
Framleiðsla Skógræktarinnar
nýtist í margt. Þannig fer til
dæmis arinviðurinn á markað í
Reykjavík, kurlið er notað í göngu-
stíga, útivistarsvæði og leikvelli
og svo er Skógræktin á Hallorms-
stað að framleiða efni í 140 fer-
metra pall við stjórnstöð Kára-
hnjúkavirkjunar í Fljótsdal, svo
eitthvað sé nefnt.
„Það er mikilvægt að nýta grisj-
anir og fá upp í kostnað. Þetta eru
verðmæti sem hægt er að hand-
fjatla en síðan er útivistin verð-
mæti sem ekki verða metin til
fjár,“ segir Þór.
WWW.N1.IS N1 – Meira í leiðinni.
Hjá N1 finnur þú landsins mesta úrval af bílavarahlutum og vönduð
vörumerki frá viðurkenndum framleiðendum. Í verslunum okkar um
land allt er fagfólk reiðubúið að veita þér alla þá aðstoð og ráðgjöf
sem þú þarfnast. 3 ára ábyrgð er á varahlutum frá N1.