Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 41
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Jamaica
Sjálfstæðisflokkurinn hefur enn á ný verið settur til hliðar við
stjórn Reykjavíkurborgar. Flokk-
urinn missti völdin að þessu sinni
fyrir klaufaskap. Það voru mál-
efni Orkuveitunnar og REI, útrás-
arfyrirtækis Orkuveitunnar, sem
felldu Sjálfstæðisflokkinn nú. Í
rauninni átti Sjálfstæðisflokkur-
inn alls ekki að komast til valda
eftir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar. Flokknum tókst ekki að ná
því markmiði sínu að fá meiri-
hluta borgarfulltrúa. Flokkurinn
fékk aðeins 7 fulltrúa þrátt fyrir
harða hríð að Samfylkingunni
og þeim flokkum, er áður höfðu
myndað R-listann. Andstöðuflokk-
ar Sjálfstæðisflokksins hefðu því
getað myndað meirihluta strax
eftiir síðustu borgarstjórnar-
kosningar. En þá gerðist það, að
sá flokkur sem fékk minnst fylgi
í kosningunum, Framsókn, gekk
skyndilega til liðs við Sjálfstæðis-
flokkinn og myndaði með flokkn-
um meirihluta í borgarstjórn.
Meirihlutinn var eingöngu mynd-
aður um völd og áhrif en enginn
málefnasamningur gerður þegar
samstarfið var ákveðið.
Til þess að fá Framsókn til
samstarfs bauð Sjálfstæðisflokk-
urinn henni formennsku í borg-
arráði. Stjórnarsamstarfið með
Sjálfstæðisflokknum mun áreið-
anlega hafa haft áhrif á Fram-
sóknarflokkinn í borgarstjórn.
Framsóknarmenn voru farnir að
líta á það sem náttúrulögmál að
þeir ynnu með Sjálfstæðisflokkn-
um. Og það var ekkert fararsnið
á þeim úr ríkisstjórn. Þeir ætl-
uðu að sitja þar eins lengi og þeir
gætu þótt fylgið hryndi af þeim.
En að lokum var það Sjálfstæðis-
flokkurinn sem ýtti þeim þar út.
Sá flokkur taldi Framsókn ekki
lengur stjórntæka í landsmálun-
um. Það voru mikil mistök hjá
Framsókn að mynda meirihluta
með Sjálfstæðisflokknum eftir
síðustu borgarstjórnarkosningar.
Nú hefur Framsókn leiðrétt þessi
mistök, slitið samstarfinu við
Sjálfstæðisflokkinn og myndað
meirihluta með Samfylkingunni
og öðrum flokkum, sem áður voru
í minnihluta. Því ber að fagna.
Ég er mjög ánægður með það,
að Framsóknarflokkurinn í borg-
arstjórn skuli á ný hafa tekið upp
samvinnu við vinstri flokkana þar.
Björn Ingi Hrafnsson, borgar-
fulltrúi Framsóknar, sýndi mikið
hugrekki með því að stíga þetta
skref.
Sjálfstæðisflokkurinn missti
fyrst meirihluta sinn í borgar-
stjórn 1978 eftir að hafa verið
við völd í Reykjavík í hálfa öld.
Alþýðuflokkurinn, Alþýðubanda-
lagið og Framsókn mynduðu þá
meirihluta í borgarstjórn. Ósig-
ur Sjálfstæðisflokksins 1978 var
mikið áfall fyrir flokkinn. Úrslitin
komu Sjálfstæðisflokknum alveg
á óvart. Alþýðuflokkurinn fékk 2
borgarfulltrúa, Framsókn 1 en Al-
þýðubandalagið 5 fulltrúa og vann
stórsigur. Sjálfstæðisflokkurinn
var mikið hræddari um að missa
meirihlutann 1970 en 1978.
Það var ekkert vandamál fyrir
„vinstri“ flokkana að mynda
meirihluta eftir kosningaúrslit-
in 1978. Flokkarnir höfðu starf-
að náið saman í borgarstjórn í
mörg ár, höfðu flutt sameigin-
legar ályktunartillögur og breyt-
ingatillögur við fjárhagsáætlun.
Sameiginleg málefnaskrá flokk-
anna var því tilbúin löngu áður
en flokkarnir náðu meirihluta.
Þeir höfðu einnig orðið ásáttir um
það áður en Sjálfstæðisflokkurinn
féll, að ráða ópólitískan borgar-
stjóra, embættismann,
ef þeir næðu meiri-
hluta í borginni.
Sjálfstæðisflokkur-
inn náði meirihluta
í borginni á ný 1982,
einkum á einu máli,
svonefndu sprungu-
máli. En í kosninga-
baráttunni rak Davíð
Oddsson harðan áróð-
ur gegn því að byggt yrði á
„sprungusvæði“ við Rauðavatn
en meirihlutinn vildi byggja þar.
Sagði Davíð, að ekki væri unnt að
byggja þarna út af sprungum! Það
kom því vel á vonda, þegar Morg-
unblaðið fékk lóð á þessu svæði
og byggði stórhýsi undir
aðalstöðvar sínar á þessu
svæði. Ekki hefur Morg-
unblaðið eða Sjálfstæðis-
flokkurinn kvartað yfir
sprungum þarna síðan
enda var þetta einungis
kosningaáróður, sem átti
ekki við nein rök að styðj-
ast. Það má því segja, að
Sjálfstæðisflokkurinn
hafi komist til valda á ný
í Reykjavík 1982 á fölsk-
um forsendum.
Sjálfstæðisflokkurinn missti
meirihlutann á ný 1994, þegar
Reykjavíkurlistinn undir forustu
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
felldi Sjálfstæðisflokkinn og náði
meirihluta í borgarstjórn. Var það
á ný mikið áfall fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, þar eð flokkurinn hélt
að eftir valdatíma Davíðs væri
borgin óvinnandi vígi Sjálfstæðis-
flokksins.
Hvað felldi Sjálfstæðisflokkinn nú?
Það var sundrung í eigin röðum.
Upp kom alvarlegur ágreiningur
meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um Orkuveitu Reykja-
víkur og útrásarfyrirtæki þess
REI. Enda þótt Guðlaugur Þór,
fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins og nú ráðherra, hafi
flutt tillöguna í stjórn Orkuveit-
unnar um stofnun REI og enginn
ágreiningur verið um það mál þá
í röðum sjálfstæðismanna snérust
nokkrir borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins gegn málinu og ætluðu
að nota það gegn borgarstjóra. Hér
virðist hafa verið um hreina valda-
baráttu innan Sjálfstæðisflokksins
að ræða. Þeir ætluðu að koma Vil-
hjálmi borgarstjóra frá. Þeim lá
svo á að komast til valda. Þeir gátu
ekki beðið til næstu kosninga. En
þeir skutu sjálfa sig í fótinn. Þeir
tóku sína eigin gröf.
Mér líst mjög vel á hinn nýja
borgarstjóra, Dag B. Eggertsson,
leiðtoga Samfylkingarinnar. Hann
er einlægur jafnaðarmaður sem
vill bæta aðstöðu fjölskyldufólks
og aldraðra í Reykjavík. Samfylk-
ingin er kjölfestan í nýjum meiri-
hluta félagshyggjufólks í borgar-
stjórn Reykjavíkur.
Höfundur er fyrrverandi
borgarfulltrúi.
Sjálfstæðisflokkurinn settur til hliðar í Reykjavík