Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 12.11.2007, Blaðsíða 14
greinar@frettabladid.is Pósthúsið - S: 585 8300 - www.posthusid.is Nú þegar farið er að myrkva úti viljum við vinsamlega minna íbúa á að hafa kveikt á útiljósum við heimili sín til að auðvelda blaðberum Fréttablaðsins aðgengi að lúgu. Munum eftir útiljósunum ! Fyrirfram þakkir, dreifing Fréttablaðsins U m helgina bárust okkur fregnir af því að samkvæmt rannsókn Alþjóðlegu efnahagstofnunarinnar er Ísland í fjórða sæti yfir þær þjóðir þar sem kynja- bilið er hvað minnst og jafnrétti kynjanna því hvað mest. Fyrir ofan okkur eru önnur Norðurlönd; Sví- þjóð, Noregur og Finnland. Auðvitað ber því að fagna hve vel Ísland stendur í jafnréttismálum, ef ekki væri fyrir mikilvæg- an fyrirvara í skýrslu stofnunarinnar, en þar segir að Norð- urlöndin hafi mælst vel í öllum fjórum þáttum sem tekið var tillit til; launamun kynjanna, aðgang að menntun, kynjahlut- falli stjórnmálamanna og heilsu kynjanna. Því má samt ekki gleyma, eins og fram kemur í fyrirvara skýrslunnar, að ekkert ríki hafi náð fullu jafnrétti kynjanna. Það heyrast alltof oft í pólitískri umræðu á Íslandi, jafnvel á hinu háa Alþingi, raddir sem reyna að draga úr þeim sem vilja ná fullu jafnrétti hér á landi með þeim rökum að við stöndum okkur betur hér en þekkist í flestum öðrum löndum. Rökin eru með öðrum orðum þau, að af því að aðrir eru meiri slugsarar í þessum málaflokki, þá þurfum við ekki að hafa miklar áhyggj- ur. Við stöndum okkur betur. Þeir sem hafa aðeins hugsað út í forsendur þessara raka gegn áframhaldandi vörslu um mikilvægi jafnréttis, og aðgerða þess efnis, sjá í hendi sér að þau standast engan veginn. Jafnrétti kynjanna er ekki kapphlaup um að vera fljótastur. Að minnsta kosti væri jafnréttið nokkuð langdregið kapphlaup því ekki eygir í nokkurn sem nálgast markið. Frá síðasta ári tókst Íslendingum að minnka kynjabilið um 0,23 prósentustig, samkvæmt mælingum efnahagstofnunarinn- ar, en bilið er nú 21,6 prósent. Með þessu áframhaldi mun það því ekki taka nema 94 ár að ná fullu jafnrétti. En þá erum við bjartsýn og gerum ekki ráð fyrir neinum skakkaföllum og að þróunin haldist áfram jákvæð. Það eru ekki allir bjartsýnir á slíka þróun, en um helgina var einnig ráðstefna Rannsóknarstofu í kvenna- og kynjafræðum. Þar benti Drude Dahlerup, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Stokkhólmi, á hættuna á stöðnun í jafnréttismál- um. Slík stöðnun getur meðal annars komið til af trú á því að við séum að standa okkur svo vel að ekkert þurfi í raun að gera. Dahlerup gekk reyndar lengra og talaði um „glerþakslöndin“ tvö; Ísland og Danmörku, þar sem minnstur árangur hefði náðst í jafnréttismálum sé miðað við Norðurlöndin. Ef litið er til skýrslu Alþjóðlegu efnahagstofnunarinnar hefur þessum tveim löndum farið aftur á síðustu tveimur árum. Ísland fallið úr þriðja sæti, en Danmörk fallið úr því fjórða niður í það átt- unda. Í þessum málum, sem og öðrum þar sem barist er fyrir mikil- vægum hagsmunum, er mikilvægt að sofna ekki á verðinum og halda að allt sé í lukkunnar standi fyrst við stöndum okkur ekki jafn illa og Ekvador eða Sádi-Arabía sem þó bættu sig hvað mest frá síðasta ári. Tæp öld í fullt jafnrétti Af hverju geta bílar ekki svifið yfir jörðinni, að minnsta kosti af og til – maður ýtir á takka og bíllinn lyftir sér hægt og rólega upp þegar maður mætir einhverjum vitleysingi á ofsa- ferð... Af hverju eru bílar úr málmi? Af hverju eru þeir ekki úr ein- hverju eftirgefanlegu frauðplasti þannig að þegar tveir bílar rekast hvor á annan gerist ekki neitt annað en að bílstjórarnir fara að skríkja eða brosa skömmustu- lega? Af hverju eru bílar svona dýrir? Fólk ver stærri hluta tekna sinna í að greiða af bílum, að ógleymdum alls kyns gjöldum – og horngrýtis stöðumælasektunum – en í föt handa börnunum sínum eða mat eða aðrar nauðsynjar. Sér enginn eftir peningunum í svo innilega dauðan hlut? Nú hafa bílar verið fjöldaframleiddir í næstum því öld – T-módel Henrys Ford er frá 1908 – en getur ekki hugsast að við eyðum stærri hluta tekna okkar í bíla en viðskiptavinir Fords gamla gerðu á fyrstu ára- tugum 20. aldarinnar? Er það viskulegt? Hefði átt sér stað eðli- leg þróun myndu bílar kosta svona tíu tuttugu þúsund krónur, og kannski allt upp í fimmtíu þúsund eftir því hvað þeim fylgdi mikið pjatt. Af hverju eru bílar alltaf að rekast hver á annan? Hvernig í ósköpunum stendur eiginlega á því – eftir allt mannfallið – að mönnum er enn treyst til að stjórna bílum? Af hverju er ekki sjálfstýring á þeim? Af hverju get ég ekki farið út í bíl og stillt á ákveðna forritaða leið og síðan bara farið að lesa í nýju bókinni hans Gyrðis á meðan bíllinn fer með mig á áfangastað? Þá gæti bíllinn numið einhvern veginn óvæntar hættur á leiðinni og brugðist við þeim, til dæmis með því að fara upp í loftið þegar vitleysingurinn á ofsahraðanum nálgast. (Vitleysingarnir á ofsahraðan- um þurfa náttúrulega á sérstök- um úrræðum að halda. Í fyrsta lagi þarf að ná þeim undan stýri út af hættu sem samborgurum stafar af þeim og í öðru lagi þarf að finna þeim verðugan vettvang til að fá kröfum sínum viðnám: er ekki hægt að senda þá á sjóinn? Að það sé refsingin við ofsaakstri: að vera dæmdur til hundrað daga á sjó að berjast við höfuðskepn- urnar...) Af hverju eru bílar svona stór- ir? Sú var tíð að tölvur þöktu heilu herbergin og gemsar þykja því hlægilegri sem þeir eru stærri: þannig er það með flesta hluti sem taka eðlilegri þróun í markaðs- samfélaginu. Þeim er þjappað saman: því meiri þjöppun því glæsilegri þykir hluturinn, því meira hugvit þykir búa að baki. Af einhverjum ástæðum er þessu þveröfugt varið með bíla: þar virðist hugvit ekki aðalatriðið. Menn aka blygðunarlaust um á farartækjum sem minna á vöru- bíla eða skriðdreka. Þetta mun eiga að veita örygg- iskennd: hinn mun drepast. Af hverju eru bílar svona leiðin- legir? Af hverju eru þeir svona stórir og luralegir? Svona þung- búnir – svona búralegir? Svona ferkantaðir? Getur verið að karl- menn af ákveðnu tagi ráði um of ríkjum í hönnun bíla? Hvað sem öllum þessum spurn- ingum líður þá er svo komið að við getum ekki lengur látið eins og ekkert sé gagnvart bílum og því bílræði sem við búum við þar sem flestar þarfir mega víkja fyrir þörfum bílsins. Sú var tíð að bílar voru stórkostlegt fram- faratæki og þeir hafa vissulega gert margt í lífi okkar auðveld- ara. En þeir eru orðnir alltof margir – alltof fyrirferðarmiklir, og þeir eru farnir að flækja líf okkar. Bílar eiga meiri sök á því en nokkuð annað hversu grátt og þungbúið er stundum í Stór- Reykjavík, bæði hin endalausu bílastæði sem þekja um helming borgarlandsins, þetta kjörlendi tyggjóklessunnar þar sem ekkert fær þrifist og eins virðast heilu hverfin snúast einvörðungu um bíla – verkstæði á verkstæði ofan og bílasölur eftir bílasölur. Af hverju eru bílar svona frum- stæðir? Hvers vegna þurfum við enn að hökta um alla daga á vél sem fundin var upp og hugsuð á 19. öld og hefur lítið þróast síðan í aðalatriðum? Bílræði Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að ný ríkisstjórn Samfylk- ingar og Sjálfstæðisflokks hefur sett neytendamálin á oddinn. Í raun er þetta í fyrsta skipti sem neytendamálin fá þann sess sem þau eiga skilið í íslensk- um stjórnmálum. Stjórnarsáttmáli rík- isstjórnarinnar er afar neytendavænn. Þá hefur viðskiptaráðherra kynnt umfangsmiklar umbætur á sviði neyt- endamála. Við munum ryðja í burtu samkeppnishindrunum, s.s. uppgreiðslugjaldi og stimpilgjaldi. Við munum stuðla að lægra verðlagi til samræmis við það sem þekkist í nágrannalönd- um, meðal annars með lækkun tolla og afnámi vörugjalda. Við munum setja lög um greiðsluaðlögun til að skapa leið til að létta oft á tíðum óyfirstíganlega skuldabyrði fólks og setja skýrari reglur um réttarstöðu ábyrgðamanna fjárskuldbindinga til að draga úr vægi sjálfskuldarábyrgða. Sett verða innheimtulög sem takmarka álagðan innheimtu- kostnað og til stendur að endurskoða lög um óréttmæta viðskiptahætti og gagnsæi markaðar. Við munum einnig efla Sam- keppniseftirlitið og Neytendasamtökin og styrkja neytendaréttinn til muna. Þá ætlar ríkisstjórnin að auka tannvernd barna með gjaldfrjálsu eftirliti og auknum niðurgreiðslum á tannviðgerðum barna og veita nemendum í framhaldsskólum stuðning til kaupa á námsgögnum. Og nú þegar eru hafnar aðgerðir sem eiga að stuðla að lækkuðu lyfjaverði. Af þessari upptalningu sést glögglega á hvaða leið þessi ríkisstjórn er. Undirliggj- andi er skilningur á því að kjarabarátta nútímans snýst ekki eingöngu um hærri laun heldur einnig um að verðlag verði lægra og kjörin betri. Neytendamálin snerta allan almenning og umbætur á því sviði koma öllum til góða. Það á ekki að vera náttúrulögmál að verðlag sé allt annað og miklu hærra en annars staðar í kringum okkur. Ísland á ekki að þurfa að vera okursamfélag. Stjórnarmeirihlutinn gerir sér grein fyrir því og af þeirri ástæðu verður ráðist í umfangsmiklar breytingar sem munu koma almenningi í landinu til góða. Höfundur er formaður viðskiptanefndar Alþingis. Lækkum verðlagið ... því meiri þjöppun því glæsi- legri þykir hluturinn, því meira hugvit þykir búa að baki. Af einhverjum ástæðum er þessu þveröfugt varið með bíla: þar virðist hugvit ekki aðalatriðið. Menn aka blygðunarlaust um á farartækjum sem minna á vörubíla eða skriðdreka.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.