Fréttablaðið - 16.11.2007, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 16. nóvember 2007 13
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Evrópu-
þingmaðurinn Claudio Fava
segist hafa sannanir fyrir því að
flugvélar sem notaðar voru í
leyniflugi með fanga á vegum
bandarísku leyniþjónustunnar
CIA hafi ítrekað lent á flugvelli í
Úkraínu.
Hann segist einnig vera að
kanna hvort CIA hafi notfært sér
aðstöðu í herstöð í Úkraínu.
Stjórnvöld í Úkraínu neita því að
nokkuð sé hæft í þessu.
Á síðasta ári birti Fava
upplýsingar um meira en þúsund
fangaflug á vegum CIA með
millilendingum í Evrópuríkjum.
- gb
Fangaflug CIA í Evrópu:
Úkraína tengd
fangaflugi CIA
FÓLK Fjölskylduhjálp Íslands
veitti fimmtíu stuðningsaðilum
þakkarbréf fyrir dygga aðstoð við
hátíðlega athöfn í Ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu á
þriðjudaginn var. Björgvin G.
Sigurðsson viðskiptaráðherra og
Ragnhildur Gísladóttir, verndari
félagsins, afhentu bréfin.
Hvern miðvikudag dreifir
Fjölskylduhjálp rúmlega einu
tonni af matvælum til bágstaddra
á Íslandi og segir Ásgerður
Flosadóttir, formaður félagsins,
framlag stuðningsaðilanna, sem
oftast er í formi matvæla, vera
ómetanlegt.
Ráðherra þakkaði Fjölskyldu-
hjálp sérstaklega fyrir gott starf
og minnti á að enginn leitaði sér
aðstoðar tilneyddur. Þá sagði
hann mikilvæg verkefni bíða
ríkisstjórnarinnar við að skapa
jafnara og betra samfélag. - eb
Þakkarbréf Fjölskylduhjálpar:
Þiggur aðstoð
fimmtíu aðila
STUÐNINGSAÐILUM ÞAKKAÐ Fimmtíu
stuðningsaðilar Fjölskylduhjálpar Íslands
veita ómetanlegan stuðning.
VÍETNAM, AP Fleiri lík hafa fundist
eftir flóðin í Víetnam um helgina
og er fjöldi látinna nú kominn
upp í 35. Það sem af er nóvember-
mánuði hafa 86 manns látist og
227 frá því að flóðahrinan hófst í
lok október.
„Yfir 100.000 manns horfa
fram á matarskort þar sem
margir þeirra hafa tapað öllum
matarbirgðum sínum í flóðahrinu
sem hefur verið í meira en
mánuð,“ sagði Van Phu Chinh,
yfirmaður deildar sem hefur
eftirlit með stormum og flóðum á
svæðinu.
Talið er að 190.000 hús hafi
farið á kaf í flóðunum. - sdg
Matarskortur yfirvofandi:
227 látist í flóð-
um í Víetnam
FLÓÐ Yfir 200 manns hafa látist í
flóðunum og meira en hundrað þúsund
manns horfa fram á matarskort.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vetnisverðlaun
Forsætisráðherra Íslands tók við heið-
ursverðlaunum Alþjóðavetnissam-
starfsins á Alþjóðaorkuþingi í Róm.
Verðlaunin voru veitt fyrir framlag
Íslands til framþróunar og kynningar á
alþjóðavetnissamfélaginu.
ÍSLAND
EFNAHAGSMÁL Hætta er á
að heimilin lendi í vand-
ræðum ef húsnæðismark-
aðurinn frýs og vextir
lækka ekki á næstunni.
Þetta er mat Ingólfs H.
Ingólfssonar, fram-
kvæmdastjóra ráðgjafa-
fyrirtækisins Fjármál
heimilanna. Hann vill að
húsnæðisliðurinn verði
tekinn út úr verðbólgu-
mælingunni.
„Mér finnst alvarlegast í þessu
að ríkisstjórnin virðist ætla að
horfa á og bíða eftir því að verð á
húsnæðismarkaði fari að lækka og
slá á verðbólguna. Það er dálítið
harkaleg aðgerð því að
það mun þýða að mörg
heimili gætu orðið gjald-
þrota meðan verðbólgu-
markmiðunum er náð með
þessum hætti,“ segir
Ingólfur.
Hann telur að markmið-
inu sé hægt að ná með því
að taka húsnæðisþáttinn
út úr neysluverðsvísitöl-
unni. „Það mun ekki laga
efnahagsástandið í landinu en það
mun allavega verða til þess að
Seðlabankinn tæki annað viðmið en
hann gerir í dag. Hann sæi verð-
bólguna lækka og myndi lækka
vexti eins og beðið er eftir að ger-
ist. Seðlabankinn hefur þá réttlæt-
ingu fyrir því að lækka vexti og
heimilin í landinu myndu sleppa
fyrir horn.“
Ingólfur bendir á að víða erlend-
is sé húsnæðisþættinum sleppt út
úr vísitölunni. Bankarnir horfi
ekki á það þegjandi og hljóðalaust
að húsnæðismarkaður frjósi,
eignaverð hrapi og veð fyrir
lánum rýrni. „Mörg heimili í land-
inu sem nú fleyta sér áfram munu
lenda í miklum erfiðleikum. Það
er ljóst. Mér finnst það allt of hár
fórnarkostnaður þar sem hægt er
að ná svipuðum árangri með
tæknilegu inngripi inn í efnahags-
kerfið.“ - ghs
Ingólfur H. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Fjármála heimilanna:
Heimilin lenda í vandræðum
INGÓLFUR H.
INGÓLFSSON
NEYTENDUR SAMAN-hópurinn
samþykkir ekki frumvarp um
sölu léttvíns og bjórs í matvöru-
verslunum. Hópurinn tekur mark
á niðurstöðum þeirra rannsókna
sem sýna að aukið aðgengi að
áfengi eykur neyslu, einnig meðal
unglinga, segir í tilkynningu.
Þá telur SAMAN-hópurinn að
frumvarpið gangi gegn allri
reynslu og þekkingu sem hafi
gefið góða raun í forvarnarstarfi
á Íslandi undanfarin ár.
Í SAMAN-hópnum eru þrjátíu
fulltrúar stærstu sveitarfélaga
landsins, auk félaga og samtaka
sem láta sig velferð barna og
ungmenna varða. - eb
Mótmæla áfengisfrumvarpi:
Aukið aðgengi
eykur neyslu
TOYS”R”US
Við auglýsum eftir
afgreiðslufólki
í fullt starf
TOYS”R”US hefur fengið góðar viðtökur á Íslandi. Þess vegna auglý-
sum við nú eftir enn fleira starfsfólki. Hefurðu:
Við viljum
byrja á því að þakka öllum
nýju viðskiptavinum okkar á Íslandi
fyrir frábærar móttökur á opnun nýrrar
verslunar okkar í Kópavogi. Við viljum ein-
nig þakka fyrir tillitsemina sem þið hafið
sýnt starfsfólki okkar.
SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR. sími 5500 800