Fréttablaðið - 16.11.2007, Side 32
[ ]Kökudiskar gera sjálfa kökuna fallegri. Ef kakan eða tertan er mikil hnallþóra sem girnilegheitin leka af nýtur hún sín mun betur á fallegum diski, til dæmis á fæti.
Margir Íslendingar eiga pólska
vinnufélaga og þeim leikur
forvitni á að kynnast pólskri
matarmenningu.
Við Flatahraun 21 í Hafnarfirði
er veitingastaður sem heitir Bar
Polonia. Þar sér Ola Alexandra
um matseldina og reiðir fram
pólska rétti í bland við íslenska.
Ola hefur búið á Íslandi í tíu ár og
talar og skilur íslensku. Hún
segir fleiri Íslendinga en Pól-
verja borða hjá sér í hádeginu og
að flestir þeirra komi aftur og
aftur.
Ola eldaði fyrir Fréttablaðið
innbakaðar svínalundir og fylltar
pönnukökur sem hún segir hvoru-
tveggja ekta pólska rétti. Þeim
síðarnefnda lýsir hún svo: „Ég
baka venjulegar pönnukökur,
svolítið þykkar, steiki sveppi,
lauk og súrkál á pönnu, set á
kökurnar og rúlla þeim upp.
Síðan velti ég þeim upp úr eggi
og raspi og steiki aftur á pönnu.
Þetta er bæði fljótlegt og gott.“
Í Drafnarfelli 2 í Breiðholti er
verslunin Mini Market sem selur
meðal annars pólskar matvörur á
borð við ávaxtasafa, krydd, kaffi,
niðursuðuvörur og þurrkaða
skógarsveppi. Þar ræður Stani-
slaw Piotr Kowal ríkjum og
stemningin er alþjóðleg í kring-
um hann. „Ég opnaði í júlí í sumar
og það er nóg að gera enda versla
hér mjög margir, bæði útlending-
ar og Íslendingar,“ segir hann.
- gun
Berum pólskt á borðið
Mikið fæst af niðursuðuvörum í Mini
Market.
Stanislaw verslunarstjóri við einn vöru-
rekkann í Mini Market.
Ola Alexandra í Bar Polonia ber fram innbakaðar svínalundir og fylltar pönnukökur ásamt meðlæti. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Eldsnöggt í matinn
GOTT Á PITSUR, Í SALÖT, PASTARÉTTI
OG MEXÍKÓSKAR PÖNNUKÖKUR.
Kjötmeistarar Sláturfélags Suður-
lands senda nú frá sér enn eina
nýjungina til að flýta fyrir mat-
reiðslu önnum kafinna lands-
manna. Það er álegg, beikon eða
kjöt sem búið er að skera, sneiða,
bita niður eða steikja. Þessar vörur
falla undir SS-vörumerkið og eru
hugsaðar til að auka þægindin og
spara tíma. Um er að ræða fjóra
mismunandi pakka, skinkustrimla,
pepperóní-sneiðar, eldaða beikon-
bita og forsteikt hakk.
Skammtarnir henta sérlega vel
þegar verið er að búa til pitsur,
pastarétti, salöt, brauðrétti, mex-
íkóskar pönnukökur eða aðra rétti
í þeim dúr.
Vörurnar eru tilbúnar til neyslu,
skammtastærð er hæfileg og um-
búðirnar þannig úr garði gerðar að
auðvelt er að opna þær og loka.
Auðveldara gæti það ekki verið!
Eldsnöggt fæst í öllum helstu mat-
vöruverslunum landsins.
Þægilegt er að kippa með sér
Eldsnöggu heim og hafa matinn til
á mettíma.
Hvernig færð þú
barnið þitt til að borða
ferskan fisk daglega?
Svarið er Skólabiti
25 gr. Skólabiti samsvarar 125 gr. af ferskum roðlausum
fiskflökum. Inniheldur prótín, vítamín og bætiefni.
Fæst í flestum matvöruverslunum
og á bensínstöðvum um allt land
N Æ R I N G O G H O L L U S T A
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is