Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 2

Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 2
2 3. desember 2007 MÁNUDAGUR Calia Italia Premium hvíldarsófi (Stærð: 222 sm) Öll sætin eru með skemli. Fæst með ljósu, dökkbrúnu eða svörtu leðri Fæst einnig sem 2ja sæta og 4ja sæta. Verð kr. 179.900,- SETT EHF • ASKALIND 2A • 201 KÓPAVOGUR • SÍMI: 534 1400 • WWW.SETT.IS OPNUNARTÍMI: MÁN. - FÖS 11:00 - 18:00 LAUGARDAGA 11:00 -16:00 SUNNUDAGA 13:00 - 16:00 BJÓÐUM MIKIÐ ÚRVAL AF HÚSGÖGNUM Á HAGSTÆÐU VERÐI VÖNDUÐ HÚSGÖGN SÓFASETT, HVÍLDARSÓFAR, BORÐSTOFUHÚSGÖGN, RÚM OG MARGT FLEIRA Drengurinn sem varð fyrir bíl í Reykja- nesbæ síðdegis á föstudag lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans í Fossvogi á laugardag. Hann hét Kristinn Veigar Sigurðsson og átti heima á Birkiteig 17 í Reykjanesbæ. Hann var fæddur 30. septemb- er 2003. Lést eftir umferðarslys LÖGREGLUMÁL Nokkuð var um umferðaróhöpp á höfuðborgar- svæðinu í fyrrinótt og í gær. Bíll fór á hliðina á Þingvallavegi eftir að ökumaður sofnaði undir stýri. Hann slapp ómeiddur. Þá ók ungur ökumaður á tvo vörubíla við bílaumboð Ingvars Helgasonar. Hann slapp einnig ómeiddur. Í gær valt bíll á Reykjanes- braut í ísingu og hafnaði á hvolfi úti í Kapelluhrauni. Ökumaður lemstraðist lítillega. Þá valt einnig bíll í Salahverfi í Kópavogi í ísingu en ökumaður og farþegi sluppu án teljandi meiðsla. - sh Ísing olli nokkrum bílveltum: Ökumenn óvið- búnir hálkunni SKIPULAGSMÁL Stjórn íbúasamtak- anna Betra Breiðholt vill láta endurhanna mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðarveg þannig að miðpunktur gatnamót- anna verði um tíu metrum vestar en núverandi gatnamót. Með þessu vilja samtökin hlífa græna svæðinu í Elliðaárdal og síðan vilja þau að gerð gatnamótanna verði snarlega boðin út. Samtökin hafa barist fyrir gerð gatnamótanna og segja þau þjóðþrifamál sem hefur verið gert ráð fyrir í öllum skipulagsá- ætlunum Reykjavíkurborgar í tuttugu til þrjátíu ár. -fb Samtökin Betra Breiðholt: Gatnamótin endurhönnuð SVEITARSTJÓRNIR Húsaleiga í félagslegum íbúðum í Mosfellsbæ verður hækkuð til samræmis við verðbólgu. Meirihluti fjölskyldu- nefndar Mosfellsbæjar segir þetta gert vegna mikils munar sem orðinn sé á leigu í félagslegu leiguhúsnæði bæjarins og leigu á almennum markaði. Fólki sé einnig hjálpað til sjálfshjálpar með því að minnka þann mun. Fulltrúi minnihluti Samfylking- arinnar segir grundvallar misskilning að tilgangur útleigu félagslegs húsnæðis sé að afla bæjarfélaginu tekna. Tilgangurinn sé að útvega því fólki húsnæði sem getur ekki keypt eða leigt húsnæði á almennum markaði. - gar Félagslegt húsnæði: Leigan hækkar í Mosfellsbæ MOSFELLSBÆR Leiguverð félagslegs húsnæðis fært nær almennri leigu. LÖGREGLUMÁL Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í gær 34 ára karlmann í gæsluvarðhald til fimmtudags, en hann er grunaður um að hafa ekið á fjögurra ára dreng á föstudag og síðan flúið af vettvangi. Drengurinn lést á laugardag. Maðurinn neitar sök og segist hvergi hafa komið nærri slysinu. Dæld er á bíl mannsins að framanverðu og annað framljósið brotið sem þykir benda til þess að hann hafi ekið á eitthvað. Þá hafa fundist trefjar á bílnum sem taldar eru vera úr fötum drengsins. Þær verða sendar til útlanda til rannsóknar. Maðurinn hefur orðið missaga um ástæðu þess að bíll hans er dældaður. Lögregla fór fram á gæsluvarðhald yfir mannin- um fram á næsta mánudag, en dómari lét nægja að úrskurða hann í varðhald til klukkan fjögur á næsta fimmtudag. Maðurinn var handtekinn síðdegis á laugardag. Hann er pólskur ríkisborgari og ekki er vitað til þess að hann hafi áður komið við sögu lögreglu. Lögregla hefur rætt við fjölda vitna vegna málsins og rannsakar málið áfram. Drengurinn lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi á laugardag. - sh Einn í gæsluvarðhald grunaður um að hafa verið valdur að dauða 4 ára drengs: Meintur banamaður neitar sök NEITAR SÖK Hinn grunaði sést hér leiddur úr héraðsdómi. Hann neitar sök. MYND / VÍKURFRÉTTIR UMHVERFISMÁL „Bitruvirkjun er í umhverfismati og við höfum óskað eftir upplýsingum um stöðu allra samninga og framkvæmda hjá Orkuveitunni,“ segir Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri. Hann segir þetta gert í ljósi þess að Landsvirkjun hafi ákveðið að selja ekki til stóriðju á Suður- og Vesturlandi. „Þessi ákvörðun [Landsvirkjun- ar] gæti haft þau áhrif að létta verulega á framkvæmdaþrýstingi hjá Orkuveitunni. Þessi mikli þrýst- ingur um að fara í alla áfanga Hell- isheiðarvirkjunar, þar á meðal Bitr- uvirkjun, það kann að breytast,“ segir hann. Síðast en ekki síst þurfi að hafa umhverfissjónarmið í huga. Hvergerðingar hafa lýst yfir mikl- um áhyggjum af Bitruvirkjun og leggst bæjarstjórn eindregið gegn henni. Aldís Hafsteinsdóttir, bæj- arstjóri þar, hefur bent á að lyktar- mengun verði í bænum, sjötíu daga á ári. Um þetta segir Dagur að farið sé í umhverfismatsferli einmitt til að fá slíkar athugasemdir. „Og Orkuveitan er metnaðarfullt fyrirtæki, ekki síst á umhverfis- sviðinu. Það verður því farið mjög vandlega yfir þessar athugasemd- ir.“ Svandís Svavarsdóttir, staðgeng- ill borgarstjóra, hefur áður lýst því yfir að fyrrnefndar athugasemdir hafi verið „margar, þungar og afgerandi.“ Náttúruverndarsamtök Íslands hafa krafist þess að borgarstjórn „grípi í taumana“ og stöðvi áform- in. Landvernd hefur lýst yfir áhyggjum af ýmsu varðandi gerð samninga Orkuveitunnar og Ölf- uss, nágrannasveitarfélagsins sem á landið sem virkjunin rís á og gefur því út framkvæmdaleyfið. Talsmenn Orkuveitunnar hafa hins vegar bent á að hönnun virkjunar- innar hafi tekið miklum stakka- skiptum, aðrir kunni að virkja á svæðinu hverfi Orkuveitan frá. klemens@frettabladid.is Áform um Bitru- virkjun gætu breyst Borgarstjóri segir að Landsvirkjun hafi létt mjög á þrýstingi sem var á Orkuveit- unni um að virkja á Bitru. Því hafi borgin óskað eftir upplýsingum um stöðu allra samninga og framkvæmda. Farið verði vandlega yfir allar athugasemdir. ÖLKELDUHÁLS Áhöld hafa verið um fyrirhugaða Bitruvirkjun á Ölkelduhálsi. MYND RAFN HAFNFJÖRÐ FÓLK Bók um Pólstjörnumálið svo- kallaða kemur út hjá forlaginu Skugga í lok vikunnar. Ragnhild- ur Sverrisdóttir blaðamaður skrifaði bókina. „Þetta er stærsta aðgerð sem fíkniefnalögreglan hefur nokkurn tímann staðið í. Rannsóknin fór fram hér og þar um Evrópu og þetta er ótrúleg spennusaga þegar maður nær að rekja hana,“ segir Ragnhildur. Hún segir hugmyndina að bók- inni hafa kviknað skömmu eftir að málið, sem er stærsta fíkni- efnamál Íslandssögunnar, kom upp. Vinnslutíminn hafi því verið stuttur, þar sem málið kom upp 20. september síðastliðinn. Ragnhildur segir margt nýtt koma fram í bókinni, þó að vissu- lega hafi eitthvað komið fram í fréttum af málinu. „Svona bók hefur mér vitanlega ekki verið skrifuð áður, um lögreglumál sem rannsókn stendur yfir á. Menn- irnir sitja auðvitað enn í gæslu- varðhaldi,“ segir Ragnhildur. Hún segir lögregluna hafa veitt sér upplýsingar um sínar starfsað- ferðir. „Ég held að það sé mjög áhugavert fyrir almenning að lesa um hvernig þeir vinna þessir menn, þetta er alvöru lið. Við höldum svo oft að íslenska lög- reglan sé eitthvað vanmáttug, það er svo fjarri lagi. Þetta var svo flott aðgerð. Þetta er sönn spennu- saga.“ - þeb Bók um Pólstjörnumálið svokallaða kemur út í næstu viku: Saga smyglskútunnar gefin út RAGNHILDUR SVERRISDÓTTIR Ný bók hennar um umfangs- mestu rannsókn fíkniefnalögregl- unnar kemur út í lok vikunnar. Sölvi, er það þér að kenna að markaðurinn missti taktinn? „Nei, ég myndi ekki missa taktinn svona.“ Sölvi Blöndal er fyrrverandi trommari og forsprakki hljómsveitarinnar Quarashi. Þegar hljómsveitin hætti skráði hann sig í hagfræðinám og starfar nú hjá greining- ardeild Kaupþings. Bresk sendinefnd mun hitta forseta Súdans í dag til að ræða mögulega náðun bresku kennslukonunnar Gillian Gibbons sem var dæmd í fimmtán daga fangelsi fyrir að hafa móðgað íslamstrú eftir að hún leyfði nemendum sínum að nefna bangsa Múhammeð. Þúsundir Súdana mót- mæltu vægum dómi á föstudag og kröfðust dauðarefsingar. SÚDAN Náðun kennslukonu rædd Þessi ákvörðun gæti haft þau áhrif að létta verulega á fram- kvæmdaþrýstingi hjá Orkuveitunni.“ DAGUR B. EGGERTSSON BORGARSTJÓRI LÖGREGLUMÁL Lögregla handtók ungan dreng aðfaranótt sunnu- dags eftir að hópslagsmál brutust út við Draugabarinn á Selfossi. Drengurinn, sem er ekki orðinn átján ára, var verulega ölvaður að sögn lögreglu. Við handtökuna sparkaði hann og beit í lögreglu- þjóna, auk þess sem hann hafði í hótunum við þá. Þá virðist sem drengurinn hafi verið inni á barnum og hafi getað keypt sér áfengi þar. Vegna ungs aldurs hans voru bæði foreldrar hans og barnaverndaryfirvöld viðstödd skýrslutöku vegna málsins. - þeb Ölvaður drengur á Selfossi: Sparkaði og beit í lögreglu SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.