Fréttablaðið - 03.12.2007, Blaðsíða 27
fasteignir
3. DESEMBER 2007
Remax fasteignir bjóða til sölu fjögurra her-
bergja íbúð við Drekavelli í Hafnarfirði.
Í búðin sem stendur við Drekavelli í Hafnarfirði er 146,7 fermetrar að stærð. Hún er á jarðhæð með afgirtum garði. Komið er inn í mjög rúmgott
anddyri með flísum á gólfi og mjög stórum skápum
sem ná upp í loft. Inni af anddyri er góð gestasnyrt-
ing með flísum á gólfi. Komið er inn í stofu með stór-
um gluggum og planka parketi úr eik. Stofan er mjög
rúmgóð og björt og skiptist hún í stofu og borðstofu.
Úr stofunni er gengið út í garð sem er allur afgirtur
með hárri girðingu, garðurinn snýr í suðaustur, hlið
er á garðinum. Eldhúsið er mjög fallegt með góðu
borðplássi, mjög miklu geymsluplássi, span hellu-
borði og er gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í eldhús-
inu og eru allar lagnir á staðnum fyrir ísskápinn.
Þvottahús er mjög rúmgott með góðri innrétt-
ingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Rúmgóð geymsla er inni í íbúðinni með flísum á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á veggjum og gólfi, inn-
réttingu, baðkari og stórri sturtu sem er sérstaklega
hönnuð með tilliti til þeirra sem eru í hjólastól.
Herbergin eru 3 og skiptast í 2 mjög stór barna-
herbergi með eikar planka parketti og miklu skápa-
plássi. Í hjónaherbergi er einnig mjög gott skápa-
pláss og er tenging fyrir sjónvarp inni í skápunum.
Eignin er glæsileg í alla staði og aðkoma að húsinu
mjög góð. Stutt er í leikskóla og skóla sem eru undir
einu þaki og standa við Drekavelli, einnig er stutt í
leikvöll sem er opinn öllum. Sundlaug er í byggingu á
svæðinu sem og kirkja, en nú þegar er hægt að finna
matvöruverslun og bakarí sem er stutt frá.
Verð: 34,9 milljónir
Stutt á leikvöllinn og í skóla
Íbúðin er öll hönnuð með tilliti til þeirra sem eru í hjólastól.
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 20.6.2007.
3,7%
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa eða
endurfjármögnunar á atvinnuhúsnæði. Lánstími er allt að 30 árum og við kappkostum
að veita framúrskarandi þjónustu á hagstæðari kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6,
hringdu í 540 5000 eða sendu póst á frjalsi@frjalsi.is til að kynna þér málið nánar.
Finndu þér stað
Atvinnuhúsnæðislán með lægri lántökukostnaði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
HRINGDU NÚNA
Við erum 100% til staðar fyrir þig!
699 6165
VIÐ ERUM ALDREI OF
UPPTEKIN FYRIR ÞIG!
Þjónusta ofar öllu
Bóas
Sölufulltrúi
Gunnar
Sölufulltrúi
Áslaug María
Sölufulltrúi
Stella Ósk
Sölufulltrúi
Benedikt
Sölufulltrúi
Stefán Páll Jónsson
Löggiltur fasteignasali
Edda Hrafnhildur
Sölufulltrúi
Hilmar
Sölufulltrúi
Eir
Sölufulltrúi