Fréttablaðið - 03.12.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 03.12.2007, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Við, Jón Kalman Stefánsson, Kristín Svava Tómasdóttir, Pétur Blöndal, Vigdís Grímsdótt- ir og yfirritaður, erum fimm á ferð um Norðausturland í Land- krúser frá bílaleigu sem heitir Hertz. Á kvöldin lesum við upp fyrir áheyrendur, fólk sem tekur það fram yfir aðra afþreyingu að fá að sjá og heyra íslenska rithöf- unda. Á hverjum stað bíða okkur hlýjar móttökur hjá fólki sem þykir vænt um bækur. Við erum förumenn bókaþjóðar. Á LEIÐINNI milli staða ræðum við mannlíf og atvinnuástand á svæðinu, og við ræðum líka okkar líf, atvinnu og afkomu. Þeir rit- höfundar sem eru svo passlegir að finna náð fyrir augum úthlut- unarnefndar starfslauna fá um 230 þúsund krónur á mánuði. Þeir sem njóta heiðurslauna frá Alþingi fá 125 þúsund krónur á mánuði. Fyrir hvert selt eintak af bók sem kostar um fjögur þús- und krónur fær höfundurinn um 500 kall. Þúsund seld eintök gera þá hálfa milljón. Ljóðskáld og barnabókahöfundar sem skrifa ódýrari bækur fá auðvitað minna sem því nemur. STUNDUM þegar ég hitti sjó- menn, bændur, bankastjóra eða stjórnmálamenn segja þeir mér í trúnaði að helst hefðu þeir viljað verða rithöfundar og skáld og lifa lífinu í unaðssemdum fag- urra lista, djúpra hugsana og áhyggjulausri heiðríkju hugans. Það finnst mér dásamlegt að heyra og sannfærir mig um að innst inni langar okkur flestöll til að vera góðar manneskjur. SJÁLFUR kann ég ekki við að vera svona nærgöngull og spyr sjómanninn ekki hvort honum sé ljúft að láta hafölduna vagga sér og finna saltan ilm sjávarins. Ég spyr bóndann ekki að því hvort honum þyki lömb falleg. Banka- stjórann spyr ég ekki að því hvort konan á fimmþúsundkallinum höfði til hans kynferðislega og stjórnmálamanninn spyr ég ekki að því hvort gáfulegra sé að hafa hvítvoðunga í bleiku eða bláu. FYRIR að rúnta um fjöll og dali á Landkrúsernum fáum við fimm- menningarnir ókeypis mat og húsaskjól og 15 þúsund kall á mann fyrir hvert upplestrar- kvöld. Mórallinn í þessari ferða- sögu er að listin er löng en lífið stutt, jafnvel í bullandi góðæri. Förumenn í góðæri Í dag er mánudagurinn 3. desember, 337. dagur ársins. 10.50 13.17 15.45 10.58 13.02 15.05
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.