Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Við, Jón Kalman Stefánsson, Kristín Svava Tómasdóttir,
Pétur Blöndal, Vigdís Grímsdótt-
ir og yfirritaður, erum fimm á
ferð um Norðausturland í Land-
krúser frá bílaleigu sem heitir
Hertz. Á kvöldin lesum við upp
fyrir áheyrendur, fólk sem tekur
það fram yfir aðra afþreyingu að
fá að sjá og heyra íslenska rithöf-
unda. Á hverjum stað bíða okkur
hlýjar móttökur hjá fólki sem
þykir vænt um bækur. Við erum
förumenn bókaþjóðar.
Á LEIÐINNI milli staða ræðum
við mannlíf og atvinnuástand á
svæðinu, og við ræðum líka okkar
líf, atvinnu og afkomu. Þeir rit-
höfundar sem eru svo passlegir
að finna náð fyrir augum úthlut-
unarnefndar starfslauna fá um
230 þúsund krónur á mánuði. Þeir
sem njóta heiðurslauna frá
Alþingi fá 125 þúsund krónur á
mánuði. Fyrir hvert selt eintak af
bók sem kostar um fjögur þús-
und krónur fær höfundurinn um
500 kall. Þúsund seld eintök gera
þá hálfa milljón. Ljóðskáld og
barnabókahöfundar sem skrifa
ódýrari bækur fá auðvitað minna
sem því nemur.
STUNDUM þegar ég hitti sjó-
menn, bændur, bankastjóra eða
stjórnmálamenn segja þeir mér í
trúnaði að helst hefðu þeir viljað
verða rithöfundar og skáld og
lifa lífinu í unaðssemdum fag-
urra lista, djúpra hugsana og
áhyggjulausri heiðríkju hugans.
Það finnst mér dásamlegt að
heyra og sannfærir mig um að
innst inni langar okkur flestöll til
að vera góðar manneskjur.
SJÁLFUR kann ég ekki við að
vera svona nærgöngull og spyr
sjómanninn ekki hvort honum sé
ljúft að láta hafölduna vagga sér
og finna saltan ilm sjávarins. Ég
spyr bóndann ekki að því hvort
honum þyki lömb falleg. Banka-
stjórann spyr ég ekki að því hvort
konan á fimmþúsundkallinum
höfði til hans kynferðislega og
stjórnmálamanninn spyr ég ekki
að því hvort gáfulegra sé að hafa
hvítvoðunga í bleiku eða bláu.
FYRIR að rúnta um fjöll og dali
á Landkrúsernum fáum við fimm-
menningarnir ókeypis mat og
húsaskjól og 15 þúsund kall á
mann fyrir hvert upplestrar-
kvöld. Mórallinn í þessari ferða-
sögu er að listin er löng en lífið
stutt, jafnvel í bullandi góðæri.
Förumenn í
góðæri
Í dag er mánudagurinn 3.
desember, 337. dagur ársins.
10.50 13.17 15.45
10.58 13.02 15.05