Fréttablaðið - 03.12.2007, Side 4

Fréttablaðið - 03.12.2007, Side 4
4 3. desember 2007 MÁNUDAGUR LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akureyri fékk nokkrar tilkynning- ar um umferðaróhöpp í krapanum þar í gær. Ungur ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Eyjafjarðarvegi og hafnaði úti í Eyjafjarðará. Sjúkrabíll ók honum á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri en hann reyndist ekki alvarlega meiddur. Annar ungur ökumaður ók niður fjóra ljósastaura við Eyrarlandsveg hjá Akureyrar- kirkju. Hann slapp ómeiddur. Þá missti ökumaður stjórn á bíl sínum á Vaðlaheiði og ók á mannlausan bíl, sem hafnaði utan vegar. Engan sakaði. - sh Krapi olli slysum á Akureyri: Ók niður fjóra staura í krapa                                    ORKUMÁL Tæknin sem íslensk- bandaríska sprotafyrirtækið Car- bon Recycling International (CRI) ætlar að beita til að fram- leiða eldsneyti á bíla úr koltvísýr- ingi er að hluta til ættuð frá bandarísku geimvísindastofnun- inni NASA. Þar er um að ræða búnað sem þróaður hefur verið í því augnamiði að gera Marsför- um kleift að framleiða eldsneyti til heimferðar til jarðar úr því hráefni sem til staðar er á Mars. Þetta kom fram á ráðstefnu sem CRI stóð fyrir í Norræna húsinu á föstudag, en þar talaði meðal annars Jonathan Whitlow, prófessor við Florida Institute of Technology sem unnið hefur að þróun þessarar tækni fyrir NASA. Aðalræðumaður á ráðstefnunni var annars G.K. Surya Prakash, prófessor við Loker Hydrocarbon Institute við Háskóla Suður-Kali- forníu, en sú stofnun hefur í ára- tugi unnið að því að beita efna- fræði til að framleiða eldsneyti sem komið geti í stað jarðefna- eldsneytis. Prakash er boðberi þess að koltvísýringur verði nýtt- ur í stórum stíl í þessum tilgangi, með framleiðslu metanóls. Met- anólið sé síðan hægt að nota sem eldsneyti ekki aðeins á bruna- hreyflaknúin heldur líka efna- rafalsknúin ökutæki. CRI ætlar sér að reisa tilrauna- metanólverksmiðju í Svartsengi. - aa Áformuð eldsneytisframleiðsla í Svartsengi úr koltvísýringi og jarðhitaorku: Marsfaratækni beitt á Íslandi G.K. SURYA PRAKASH KÍNA: Kínversk ungfrú heimur Zhang Zilin, sem var kjörin Ungfrú heimur í heimalandi sínu Kína á laugardag, er fyrst keppanda frá austurhluta Asíu sem ber sigur úr býtum í keppninni. Ungfrú Angóla lenti í öðru sæti og í því þriðja lenti ungfrú Mexíkó. Alls tóku 106 stúlkur þátt í keppninni, þar á meðal Jóhanna Vala Jónsdóttir sem keppti fyrir Íslands hönd. SERBÍA: Framtíð Kosovo í uppnámi Á miðvikudag slitnaði upp úr við- ræðum um framtíð Kosovo-héraðs, en 10. desember rennur út frestur sem Sameinuðu þjóðirnar hafa til þess að tryggja samkomulag Serba og Kosovo-Albana. Fulltrúar Kosovo féllust ekki á að draga úr kröfum sínum um fullt sjálfstæði héraðs- ins, en reynt hafði verið að finna málamiðlun á þriggja daga fundi í Austurríki. Bæði Serbar og Kosovo- Albanir fengust þó til að heita því að grípa ekki til ofbeldis til að leysa deiluna. NEPAL: Fótspor snjómannsins Bandarískur þáttastjórnandi, Josh Gates, telur sig hafa fundið sönnun þess að snjómaðurinn ógurlegi sé í raun til og búi á Mount Everest. Gates segist hafa fundið þrjú fótspor 28. nóvember þegar hann var að rannsaka slóðir þar sem fólk hefur sagst hafa séð snjómanninn. Sýndu fótsporin 33 sentimetra langan fót með fimm tær. Ang Tshering, forseti nepölsku fjall- göngusamtakanna, segir líklega um bjarnarfótspor að ræða og bendir á að lýsingar heimamanna á snjómanninum bendi til að hann sé með fjórar tær. BJÖRGUN Bátnum Fanneyju RE 31 var bjargað á þurrt í fyrrinótt eftir að hafa sokkið í höfnina við Stykkishólm aðfaranótt laugar- dags. Báturinn, sem er 30 tonn að þyngd, sökk í aftakaveðri eftir að hafa slegist utan í höfnina og farið á hliðina. Köfunarþjónusta Ásgeirs og Marteins frá Akranesi sá um neðansjávarvinnuna. Fyrirhugað er að senda bátinn í slipp á Akranesi. Þar mun eiga að breyta honum í fullbúinn skemmtibát. - sh Bátur sökk í Stykkishólmshöfn: Fanneyju bjarg- að upp á þurrt FANNEY Á KAFI Báturinn sökk í aftaka- veðri. MYND / GUÐBJARTUR ÁSGEIRSSON RÚSSLAND, AP Rússneski auðjöfur- inn Boris Bereszovskí, sem býr í útlegð í Bretlandi, hefur verið dæmdur fyrir fjársvik og á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. Berezovskí var ekki viðstaddur réttarhöldin. Rússnesk stjórnvöld hafa árum saman viljað fá Berezovskí framseldan, en Bretar jafnan hafnað því. Rússar hafa meðal annars kennt Berezovskí um að hafa látið myrða njósnarann fyrrverandi, Alexander Litvin- enko, og blaðakonuna Önnu Politkovsköju, í þeim tilgangi að láta líta svo út sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti standi á bak við þessi morð. - gb Auðjöfurinn Berezovskí: Rússar sakfella Berezovskí RÚSSLAND, AP Milljónir Rússa gengu að kjörborðinu í gær í þing- kosningum sem kosningaeftirlits- stofnanir segja markaðar af kosn- ingasvindli til að tryggja sigur stjórnmálaflokksins Sameinaðs Rússlands þar sem Vladímír Pútín Rússlandsforseti situr í efsta sæti. Samkvæmt fyrstu útgöngu- spám fékk Sameinað Rússland yfir 60 prósent atkvæða. Næst- mest fylgi fékk Kommúnista- flokkurinn með 11,5 prósent. Tveir flokkar í viðbót, sem báðir styðja Sameinað Rússland, náðu sjö prósenta atkvæða þröskuldin- um: Frjálslyndir demókratar og Réttlátt Rússland. Þó að kosningarnar í gær hafi formlega séð snúist um að skipa í 450 sæti Dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, lögðu stjórn- völd þær upp sem þjóðaratkvæða- greiðslu sem snerist um áfram- haldandi völd Pútíns með því loforði að stórsigur Sameinaðs Rússlands myndi gera Pútín kleift að sitja áfram við stjórnvölinn eftir að seinna kjörtímabilinu hans lýkur í maí. Margir kjósendur kvörtuðu yfir því að hafa verið beittir þvingunum sem kosningaeftir- litsstofnanir sögðu hluta af skipu- lagðri herferð til að auka kjör- sókn og stuðla að sigri Sameinaðs Rússlands. Alexander Kynev, sér- fræðingur hjá óháðu kosningaeft- irlitsstofnuninni Golos, sagði skráð dæmi um að kjósendur hefðu fengið greitt fyrir að kjósa Sameinað Rússland. Í einum bæ sögðust kjósendur hafa fengið kjörseðla þar sem búið var að merkja við Sameinað Rússland og í Tsjetsjeníu, þar sem kjörsókn var 99 prósent, sögðust vitni hafa séð kosningastarfsmenn fylla út atkvæðaseðla. Einnig voru dæmi um að starfsfólki var skipað að kjósa Sameinað Rússland ella yrði það rekið. Samkvæmt könnun frá því í nóvember styðja tveir af hverj- um þremur Rússum áframhald- andi völd Pútíns. „Ég kaus Sam- einað Rússland vegna þess að frá því hann tók við völdum hefur mér byrjað að líða eins og mann- eskju í samanburði við hversu illa okkur leið á dökku tímunum upp úr 1990,“ sagði Raisa Trety- akova, 61 árs gömul kona sem kaus í Sankti Pétursborg. „Í dag er allt skýrt og stöðugt í til- verunni. Orð forsetans eru alltaf í samræmi við gerðir hans. Hvað aðra frambjóðendur varðar vitum við enn ekki á hvaða braut þeir myndu leiða okkur.“ sdg@frettabladid.is Þvingunum beitt á rússneska kjósendur Sameinað Rússland, flokkur Vladímírs Pútíns Rússlandsforseta, vann fyrirséð- an stórsigur í þingkosningunum í gær samkvæmt fyrstu útgönguspám. Fregnir bárust víða að um kosningasvindl til að að tryggja sigur Sameinaðs Rússlands. STUÐNINGSMAÐUR PÚTÍNS Dæmi voru um kosningaáróður á kjörstað þrátt fyrir að það sé bannað á kjördag samkvæmt kosningalögum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Í dag er allt skýrt og stöðugt í tilverunni. RAISA TRETYKOVA 61 ÁRS Í SANTKI PÉTURSBORG ERLENT GENGIÐ 30.11.2007 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 118,6192 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 60,80 61,10 125,78 126,40 89,76 90,26 12,034 12,104 11,056 11,122 9,576 9,632 0,5492 0,5524 96,65 97,23 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR „MIKIÐ ÓSKAPLEGA ER ÞETTA GÓÐUR SKÁLDSKAPUR“ „JÓN KALMAN ER KOMINN Í RÖÐ OKKAR MESTU OG MIKILVÆGUSTU HÖFUNDA“ – PÁLL BALDVIN, FRÉTTABLAÐIÐ „ÞETTA ER FRÁBÆR SKÁLDSAGA“ –JÓN YNGVI, ÍSLAND Í DAG KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR KILJAN 6. SÆTI Á METSÖLU LISTA EYMUNDS SON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.