Fréttablaðið - 03.12.2007, Side 48

Fréttablaðið - 03.12.2007, Side 48
 3. desember 2007 MÁNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Ja hérna hér! Þú ert í ótrúlega góðu formi miðað við að hafa verið grænmeti svona lengi! Ákveðið! Matur heima hjá mér í kvöld! Eh... já... og til að vera viss um að þú svæfir vel! Til að hvísla línum úr Tammy Wynette-lögum í eyra mitt? Jói... Ja... Jú... Hann hefur nú litið við... Hvar er Jói? Hefurðu séð litla kúrekann minn? Virkilega snemma! Eins snemma og er líffræðilega mögulegt! Mjög snemma! Mamma - vektu mig snemma! Bara við! Bara við!Ég vissi það! Hann elskar mig! En ekki fyrr en það er nauðsynlegt! Hvað ætli þau myndu segja... Þau skilja nokkrar skipanir - „Gefðu mér mat“ - „Ég vil fara út“ - en vildirðu ekki óska þess að þau gætu talað í alvöru... Gaaa! Hvað var þetta eiginlega? Hún var bara að prufukeyra nýjan svip. Vísindamenn eru vís- ast ekki langt frá því að fullþróa pillu sem gerir okkur kleift að vaka sólar- hringum saman án þess að finna fyrir minnsta votti af þreytu. Þessar fréttir hljóta að teljast mikið gleðiefni fyrir vinnualka, læknanema og hermenn um heim allan. Nú er bara að bíða í ofvæni eftir þessari ótrúlegu framför sem kemur til með að hleypa okkur inn á næsta tilverustig mannkyns. Að hugsa sér hve ljúft það væri að geta sinnt sínum hugðarefnum allan sólarhringinn án þess að þreytast. Svo ekki sé minnst á að þjóðarframleiðslan færi fram úr björtustu vonum þar sem við gætum unnið mikið meira. Eflaust fylgja ástandinu einhverjir ókostir, en það er ekki hlaupið að því að koma auga á þá. Líkast til yrðum við oftar svöng en við erum nú, sem er vissulega ergjandi, en það hlýtur senn að vera til pilla við því líka. Reyndar má benda á að vísindin vita ekki enn fyllilega hvers vegna við þurfum á svefni að halda. Eitt af fáu sem er ljóst varðandi svefn er að hann er svo mikil frumþörf að hann tekur af okkur völdin jafn- vel þegar við vitum að hann verð- ur okkar bani. Til eru mýmörg dæmi um fólk sem látist hefur af völdum svefns; nóg er að tína til ökumenn, flugmenn og skipbrots- menn í lífsháska. Svefn getur sem sagt drepið og því ber að fagna ef fáanleg verður pilla sem getur forðað okkur frá því að sofna undir stýri. Helsti kostur pillunnar hlýtur þó að vera að hún fjarlægir óþægindin sem óhjákvæmilega af því hljótast að halda sér vakandi lengi. Þessi óþægindi voru á sínum tíma stað- fest á vísindalegan hátt af hug- rökkum bandarískum mennta- skólanema sem kallaðist Randy Gardner. Randy tók sig til á sjö- unda áratug síðustu aldar og hélt sér vakandi í 264 klukkustundir til þess eins að kanna áhrif þess á líðan sína. Að afrekinu loknu sagði hann að sér liði mjög illa. Svo sofn- aði hann. STUÐ MILLI STRÍÐA Vökum að eilífu VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR BÍÐUR SPENNT EFTIR UNDRALYFI Litbrigði galdranna - Terry Pratchett - ,,Einn fyndnasti og besti rithöfundur Bretlands” The Independent

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.