Fréttablaðið - 03.12.2007, Page 50

Fréttablaðið - 03.12.2007, Page 50
30 3. desember 2007 MÁNUDAGUR menning@frettabladid.is Fyrir tveimur árum síðan ætlaði allt um koll að keyra í heimi mynd- listarinnar. Ástæðan var sú að 22 strigamálverk og 10 málverk á tréplötum eftir meistarann Jack- son Pollock fundust í geymslu- rými í Long Island í Bandaríkjun- um. Verkin voru öll áður óþekkt og talin vera frá sérlega mikil- vægu tímabili í sögu listamanns- ins þegar hann var að þróa sér- stakan slettustíl sinn á árunum 1946-1949. En nú kárnar gamanið vegna þess að James Martin, efnafræð- ingur sem sérhæfir sig í aldri listaverka, hefur greint málning- una í verkunum og komist að þeirri niðurstöðu að viss efni í henni hafi ekki verið framleidd fyrr en eftir árið 1956, en það var dánarár listamannsins. Að auki segir Martin eina af tréplötunum tíu sem verkin eru máluð á vera frá áttunda áratugnum. Niðurstöður Martins hafa óhjá- kvæmilega mikil áhrif á gildi verkanna, en athygli hlýtur að vekja að það var Alex Matter, sjálfur fundarmaður og eigandi þeirra, sem fékk Martin til starfs- ins. Matter kveðst hafa fundið verk- in þegar hann var að taka til í geymslu móður sinnar heitinnar. Faðir hans, sem einnig er látinn, hafði verið náinn vinur og nágranni Pollocks og því þótti líklegt að myndirnar væru ófalsaðar. Matter hefur frá upphafi staðfastlega neitað því að hann ætli sér að græða peninga á sölu verkanna. Fljótlega eftir fundinn komust þó sögusagnir á kreik um að hann væri þegar búinn að selja nokkrar myndir. Lögmaður Matters vill ekki samþykkja niðurstöður Martins sem endanlegar og óyggjandi. Lögmaðurinn vill meina að litar- efnin umdeildu gætu vel hafa verið til fyrir dauða Pollocks en að einkaleyfi hafi ekki fengist fyrir þeim fyrr en löngu seinna. Raddir þeirra sem draga heiðar- leika Matters í efa magnast stöðugt. Flestir, gagnrýnendur sem aðrir, eru þó sammála um að ef um falsanir sé að ræða séu þær stórkostlega vel gerðar. - vþ KVENNAKÓR GARÐABÆJAR Hélt tónleika í Kaupmannahöfn í haust. Hinir árlegu aðventutón- leikar Kvennakórs Garða- bæjar í Digraneskirkju fara fram í kvöld kl. 20. Gestir kórsins að þessu sinni eru þau Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona og gítarleik- arinn Ragnar Örn Emils- son. Efnisskrá tónleikanna verður sérlega hátíðleg að vanda en einkennist jafn- framt af fjölbreytni. „Að þessu sinni eru eingöngu jóla- lög á efnisskránni hjá okkur, bæði íslensk og erlend,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir, stjórnandi kórsins. „Hingað til höfum við haft jólatón- list í bland við aðra sígilda tónlist á aðventutónleikum okkar, en við ákváðum að láta hátíðarstemning- una ráða ríkjum þetta árið. Þrátt fyrir að lögin sem við flytjum á tón- leikunum séu mörg ólík innbyrðis sameinar hátíðarblærinn þau öll. Tónlistin er aðgengileg og sniðin til þess að koma fólki í jólaskapið. Því ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á tónleikunum.“ Kórinn hefur ekki áður flutt djasstónlist á aðventutónleikum sínum og því er skemmtileg nýbreytni í því að fá færa djasstón- listarmenn til að krydda flutning- inn. Tónleikarnir hefjast á flutn- ingi kórsins á sígildri jólatónlist, en eftir hlé taka þau Kristjana og Ragnar við og leika nokkur lög. Tónleikunum lýkur á því að djass- ararnir og kórinn sameinast og flytja nokkur vel valin jólalög saman. Kvennakór Garðabæjar hefur verið starfandi í átta ár og eru með- limir hans fjörutíu talsins. Kórinn hefur verið afar virkur þessi átta ár og haldið fjölda tónleika hér- lendis og erlendis. Til gamans má geta þess að kórinn er nýkominn heim úr vel heppnaðri tónleikaferð til Kaupmannahafnar. Ingibjörg segir fjöldamörg verkefni fram undan. „Okkur þykir skemmtilegt að feta nýjar brautir og því ætlum við að breyta til í tónleikahaldi okkar með vorinu. Við höfum fram að þessu yfirleitt einbeitt okkur að fremur blandaðri efnisskrá og fjöl- breytileikinn hefur verið hálfgert einkenni á tónleikum okkar. En í vor stefnum við að því að halda stóra tónleika með strengjasveit þar sem við flytjum eingöngu kirkjutónlist sem tengist föstunni,“ segir Ingibjörg að lokum. Miðaverð er 2.000 kr. við inn- ganginn en 1.700 kr. fyrir lífeyris- þega. Ungmenni fimmtán ára og yngri fá frítt inn á tónleikana. vigdis@frettabladid.is Íslensk og erlend jólalög VERKIÐ NUMBER ONE EFTIR JACKSON POLLOCK Verkið er ekki eitt þeirra sem fjallað er um í fréttinni, en það sýnir vel sérstakan slettustíl Pollocks. Litarefni skipta sköpum JÓNAS INGIMUNDARSON Hann er einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum. Píanóleikarinn Jónas Ingimundarson heldur tónleika í Salnum í Kópavogi á miðvikudagskvöld kl. 20. Tilefnið er útgáfa á tveim geisladiskum þar sem Jónas leikur perlur eftir Chopin, Mozart, Schubert, Schumann, Händel og Brahms. Um nýjar hljóðritanir úr Salnum er að ræða sem Sveinn Kjartansson hjá Stafræna hljóðupptökufélaginu annaðist. Diskarnir verða til sölu á tónleikunum og verður hægt að krækja sér í áritun Jónasar að tónleikum loknum. Á efnisskránni á miðvikudag verða þrjú öndvegisverk Beethovens: Tunglskinssón- atan, Pathetique-sónatan og Appassionata op. 57. Í tengslum við tónleikana sýnir Kristín Þorkelsdóttir myndlistarmaður teikningar og málverk sem hún hefur gert af píanist- anum á liðnu ári. Jónas er einn af okkar þekktustu og virtustu píanóleikurum. Hann hefur leikið inn á fjölda hljómplatna og hljómdiska og hefur staðið fyrir öflugu tónlistarkynningar- starfi í tengslum við tónleikahald sitt. Jónas hefur fengið listamannalaun og notið starfslauna listamanna og hlotið margvís- legar viðurkenningar, svo sem heiðursverð- laun Íslensku tónlistarverðlaunanna 2001, þegar þau voru veitt í fyrsta sinn. Jónas var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1994 og Danne- brog-orðunni árið 1996. Jónas er tónlist- arráðunautur Kópavogs og árið 2004 var hann valinn heiðurslistamaður bæjarins. Jónas nýtur heiðurslauna Alþingis. Aðgangur að þessum fallegu tónleikum er ókeypis og öllum opinn á meðan hús- rúm leyfir. Númeraðir aðgöngumiðar eru afhentir í miðasölu Salarins að Hamraborg 6 og gæti verið vissara fyrir áhugasama að tryggja sér miða sem fyrst. - vþ Jónas gefur út og treður upp Kl. 19 Rás 1 leikur tónleikahljóðritun frá Schubert-hátíðinni í Hróarskeldu í Danmörku í kvöld kl. 19. Hljóðritunin er á vegum Sambands evrópskra útvarpsstöðva. SNORRI STURLUSON Styrkir kenndir við hann eru veittir árlega. Í tilefni af 750. ártíð Snorra Sturlu- sonar árið 1991 ákvað ríkisstjórn Íslands að efna til styrkja sem kenndir yrðu við nafn hans. Styrk- irnir skulu árlega boðnir erlend- um rithöfundum, þýðendum og fræðimönnum til að dveljast á Íslandi. Nýverið var úthlutað styrkjum fyrir árið 2008, en 40 umsóknir bárust frá 23 löndum. Þrír fræðimenn hlutu styrki til þriggja mánaða hver. Dr. Christopher Abram, lektor við University Coll- ege í London, fékk styrk til að vinna að bók um norræna goðafræði og viðtökur á Eddunum á síðari öldum. Dr. Jakub Morawiec, fræðimaður við Silesíu- háskóla í Katowice í Pól- landi, fékk styrk til að vinna að þýðingu á Hallfreðar sögu vand- ræðaskálds á pólsku, skrifa fræði- legan inngang að þýðingunni og taka saman skýringar við söguna. Dr. Hélène Tétrel, lektor við Bretaníuháskólann í Brest í Frakk- landi, fékk styrk til að vinna að þýðingu á Breta sögum á frönsku og rannsókn á viðtökum Historia Regum Britanniae í Norðvestur- Evrópu. Í úthlutunarnefnd styrkjanna eiga sæti Úlfar Bragason rannsóknarprófessor, en hann er formaður nefnd- arinnar, Ásdís Egilsdótt- ir dósent og Ingibjörg Haraldsdóttir rithöf- undur. - vþ Styrkveiting Snorra ALPARNIR Íslensku Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • Sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is Gefðu hlýja jólagjöf í ár 100% MERINO

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.