Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 58

Fréttablaðið - 03.12.2007, Síða 58
38 3. desember 2007 MÁNUDAGUR SM S LEI KUR Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . T Sm ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta k FRUMSÝND 30. NÓVEMBER SJÁÐU MYNDINA OG SPILAÐU LE IK INN! SENDU SMS JA HMF Á NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UN NIÐ! V INN INGAR ERU B Í ÓMIÐAR FYR IR TVO , H I TMAN LE IK IR , DV D MYND IR , VARN IN GUR TENGDUR MYND INN I OG MARGT FLE IRA ! FÓTBOLTI Verst geymda leyndar- málið í knattspyrnuheiminum var afhjúpað í gær þegar Brasilíu- maðurinn Kaká, sem hefur farið á kostum með Evrópumeisturum AC Milan, var valinn besti knatt spyrnu maður Evrópu. „Verðlaunin eru mjög sérstök fyrir mig og fullkomna frábært ár,“ sagði Brasilíumaðurinn. Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd varð annar og Lionel Messi hjá Barcelona varð þriðji. - hbg Knattspyrnumaður Evrópu: Kaká bestur KAKÁ Kyssir hér verðlaunagripinn í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES RIÐLARNIR Í EM A-riðill: Sviss Tékkland Portúgal Tyrkland B-riðill: Austurríki Króatía Þýskaland Pólland C-riðill: Holland Ítalía Rúmenía Frakkland D-riðill: Grikkland Svíþjóð Spánn Rússland FÓTBOLTI Loftið var lævi blandið þegar dregið var í riðla fyrir EM sem fram fer næsta sumar í Austurríki og Sviss. Óhætt er að segja að C-riðill sé sannkallaður dauðariðill en í honum eru Ítalía, Frakkland, Holland og Rúmenía. Tvö efstu liðin í hverjum riðli fara áfram en Frakkland og Ítalía, sem spiluðu úrslitaleik í síðustu heimsmeistarakeppni, mætast í lokaumferðinni. Opn- unarleikurinn er leikur Sviss- lendinga og Tékka í Basel 7. júní. - hbg Dregið var í riðla fyrir Evrópukeppnina í gær: C-riðill er dauðariðillinn ÞEIR MUNU BERJAST Þjálfarar liðanna í C-riðli halda hér á Evrópu bikarnum. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Liverpool skaust í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með öruggum sigri á Bolton, 4-0, á Anfield. Liverpool er nú búið að vinna fimm leiki í röð og í þeim leikjum hefur liðið skorað 21 mark. Rafael Benitez, stjóri Liver- pool, gat ekki verið annað en sáttur eftir leikinn. „Liðið er að spila vel þessa dag- ana. Við erum að skapa okkur fjölda færa og hefðum hæglega getað skorað fleiri mörk hér í dag,“ sagði Benitez en Sami Hyypiä, Steven Gerrard, Fernando Torres og Ryan Babel sáu um markaskor- unina fyrir Liverpool í gær. „Það er mikilvægt að mörkin dreifist á leikmenn. Það er auð- veldara að stöðva lið þar sem sami maðurinn skorar nánast öll mörk- in. Við erum að gera andstæðing- um okkar mjög erfitt fyrir. Við erum í góðu formi og sjálfstraustið er ákaflega gott þessa dagana og vonandi verður það eins gott síð- ari hluta tímabilsins. Ég tel að við getum enn bætt okkar leik. Við höfum marga leikmenn og það er gott að eiga alltaf óþreytta menn til taks,“ sagði Benitez, sem hefur verið óhræddur við að dreifa álag- inu í vetur við mismiklar vin- sældir. Gary Megson, stjóri Bolton, sagði erfitt að kyngja tapinu, sem kemur viku eftir að liðið lagði Manchester United. „Það er erfitt að útskýra þetta en tapið hefur náð okkur niður á jörðina. Svo mikið er víst. Við spil- uðum ekki vel og börðumst ekki eins og gegn United. Það var allt annað lið sem mætti til leiks hér i dag,“ sagði Megson svekktur. Alex McLeish fékk óskabyrjun í sínum fyrsta leik sem stjóri Birm- ingham þegar hans menn komu til baka og unnu Tottenham á White Hart Lane. Gary McSheffrey kom Birmingham yfir en Robbie Keane skoraði þá tvívegis og kom Spurs yfir. Cameron Jerome jafnaði fyrir Birmingham og Sebastian Larsson skoraði sigurmarkið með glæsilegu skoti á lokamínútu leiks- ins. „Það var mjög svekkjandi að lenda undir í síðari hálfleik. Við sýndum samt frábæran karakter með því að koma til baka. Þetta var mitt fyrsta mark í úrvalsdeild- inni og ég hefði vart getað valið betri tíma til að skora,“ sagði hetja Birmingham, Sebastian Larsson. henry@frettabladid.is Markaveisla hjá Liverpool Liverpool heldur áfram að raða inn mörkum en liðið skoraði fjögur mörk þegar Bolton kom í heimsókn á Anfield. Tottenham tapaði síðan óvænt á heimavelli fyrir Birmingham í skrautlegum leik þar sem mikið gekk á. LÍF OG FJÖR Leikmenn Liverpool skemmtu sér konunglega í gær er þeir rúlluðu Bolton upp. Þeir fagna hér einu af mörkunum sínum fjórum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES HANDBOLTI Íslenska kvennalands- liðið lauk leik í undankeppni fyrir EM 2008 sem fram fer í Lit- háen með miklum glæsibrag er það lagði gríðarsterkt lið Hvít- Rússa, 31-30, í gær. Íslensku stelpurnur töpuðu fyrsta leik sínum í riðlinum fyrir heima- mönnum en unnu hina fjóra leik- ina og komust örugglega áfram. Fram undan hjá liðinu eru umspilsleikir næsta vor um þátt- tökurétt í sjálfri úrslitakeppn- inni sem fram fer í Makedóníu í desember. „Það er búinn að vera frábær stígandi í þessu hjá okkur. Ég hafði trú á að við kæmumst áfram en þetta góður árangur er ofar vonum og við náum toppn- um með þessum sigri. Þarna eru tíu leikmenn vel yfir 180 senti- metra en við eigum einn slíkan leikmann,“ sagði himinlifandi landsliðsþjálfari, Júlíus Jónas- son, en Rakel Dögg Bragadóttir var markahæst með níu mörk. „Ég er mjög stoltur af liðinu og ég er i raun með nýtt landslið í höndunum og meðalaldurinn í þessum hópi er ekki nema 21 ár.“ - hbg Kvennalandsliðið lagði Hvít-Rússa í lokaleik sínum: Mjög stoltur af liðinu GLEÐI Íslensku stelpurnar fögnuðu mikið í gær. MYND/HLYNUR SIGMARSSON/HANDBOLTI.IS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.