Fréttablaðið - 11.12.2007, Page 1

Fréttablaðið - 11.12.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2007 — 337. tölublað — 7. árgangur HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN JÓLIN KOMA MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Balazs Besci kom hi Dansandi bardagi Balazs Besci hefur kennt bardagalistina capoeira hér á landi frá því í janúar síðastliðnum en sjálfur lærði hann capoeira í heima- landi sínu, Ungverjalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HEIMILIÐ SKREYTTJólatréð er mikilvægasta jóla-skrautið að mati margra en kertaljós og ilmur af appelsín-um eða mandarínum ýtir líka undir jólaskapið. JÓL 2 LJÓSAHÁTÍÐ LÚSÍULúsíuhátíðin er nú haldin á Íslandi í fimmtugasta og annað sinn. JÓL 3 Enn betra golf 3 Enn betra golf Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistara og golfkennara Eftir Arnar Má Ólafsson landsliðsþjálfara og Úlfar Jónsson margfaldan Íslandsmeistara GOLF ENN BETRABETRA G O LF ArnarM árÓ lafsson og Úlfar Jónsson Jólabók golfarans! Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar JónssonFæst í helstu bókabúðum og víðar! Verð kr. 3.490,- m/vsk VEÐRIÐ Í DAG BALAZS BESCI Kennir bardagalist brasilískra þræla heilsa jól Í MIÐJU BLAÐSINS LÖGREGLUMÁL Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu rannsakar nú stórþjófnað úr dánarbúi í Reykjavík. Spurður staðfesti Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í rann- sóknardeild að umrædd rannsókn væri í gangi, en kvaðst að öðru leyti ekki vilja tjá sig um hana. Samkvæmt upplýsingum sem Fréttablaðið hefur aflað sér er um tugi mjög verðmætra bóka og fleiri skjala að ræða sem tekin hafa verið ófrjálsri hendi úr dánar- búi Böðvars heitins Kvaran. Böðvar var mikill bókasafnari og mörg gömul og afar verðmæt verk í safni hans. Hvarf bókanna úr dánarbúinu var kært til lögreglu í lok sumars er leið. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur rannsókn lög- reglu verið mjög viðamikil og flók- in og skýrslur verið teknar af fjöl- mörgum einstaklingum. Einhverjar bókanna hafa komist í umferð á markaði bókasafnara og listunn- enda. Meðal bóka sem saknað er úr dánarbúinu má nefna tölusett ein- tak af bókinni Pétri Gaut sem Einar Benediktsson þýddi og gaf út í þrjátíu tölusettum eintökum árið 1901. Eintak bókarinnar sem er tölu- sett númer eitt seldist á 570 þús- und krónur á uppboði sem haldið var í Iðnó á sunnudag, en sú bók mun ekki vera úr dánarbúinu. Söluverð hennar gefur hugmynd um verðmæti hinna tölusettu ein- taka. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins eru fleiri bækur sem horfið hafa úr dánarbúinu taldar geta selst á svipaðar upp- hæðir og Pétur Gautur á uppboð- um eða jafnvel hærri. Er því ljóst að milljóna eða tuga milljóna króna verðmæti hafa horfið úr dánar- búinu. Lögreglu hefur meðal ann- ars tekist að hafa uppi á gömlum landakortum sem tekin höfðu verið þar ófrjálsri hendi. Rannsókn málsins er enn í fullum gangi og snýr meðal annars að því að hafa uppi á bókunum. - jss Hvarf dýrmætra bóka úr dánarbúi til rannsóknar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú stórþjófnað úr dánarbúi. Um tugi verðmætra bóka er að ræða. Rannsóknin er afar umfangsmikil og flókin. Skýrslur hafa verið teknar af fjölmörgum einstaklingum. STJÓRNSÝSLA „Listinn verður óbreyttur og telur 28 manns. En fjárhæðin er hækkuð úr 1,6 milljónum í 1,8 á ári,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar. Hart var tekist á í menntamálanefnd í gær um fyrirkomulag heiðurslauna. Í dag verður lögð fram áðurnefnd tillaga um óbreyttan heiðurslaunalista við 3. umræðu fjárlaga. Á árinu féllu tveir frá af þrjátíu manna lista heiðurslaunþega, óperusöngvararnir Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Í stað þess að bæta tveimur á lista í þeirra stað gengur tillagan út á að hækka mánaðarlegar greiðslur til heiðurslaunþega úr 125 þúsundum í 150 þúsund krónur. Sigurður Kári segir símann hjá nefndarmönnum ekki hafa stoppað undanfarna daga þar sem rekinn var áróður fyrir hinum ýmsu kandídötum. Kolbrún Halldórsdóttir, ein nefndarmanna, segir niðurstöðuna „nánasarskap“. Hækkunin væri ágæt en hún hafi frekar viljað að fjölgað væri á listanum. „Nöfn listamanna af þeirri kynslóð sem greiddi kannski ekki í lífeyrissjóð voru í deiglunni. Það er kannski ekki markmið en heiðurinn sem eldri kynslóðin upplifir við að fá þessi heiðurslaun er þannig að mér finnst að þeir eigi skilið að njóta þess.“ - jbg / sjá síðu 46 Minnihlutinn í menntamálanefnd sakar meirihlutann um „nánasarskap“: Enginn nýr á heiðurslaunalista Sáttir þrátt fyrir ósigur Hljómsveitinni Hraun tókst ekki að sigra í hljómsveitakeppni BBC. Svavar Knútur og félagar eru þó sáttir. FÓLK 38 Rallið orðið vinsælla Bifreiðaíþróttaklúbb- ur Reykjavíkur 30 ára. TÍMAMÓT 26 Reynir fyrir sér erlendis Knattspyrnukona ársins, Hólmfríður Magnúsdóttir, fer til reynslu hjá tveim erlendum liðum á næstunni. ÍÞRÓTTIR 40 Snemma á miðviku- dags- morgni www.postur.is Á morgun er síðasti öruggi skiladagur fyrir jólapakka til Evrópu www.kornax.is - veldu ferskasta hveitiÐ! GARÐAR THOR Söng fyrir aðals- borna í gær Á sviðinu fyrir framan Karl og Camillu FÓLK 46 Sunnanátt, 5-10 m/s, en hvassari á annesjum vestanlands. Hiti víða um eða yfir frostmarki. Rigning SA-lands í fyrstu, en SV- lands seinnipartinn. FÓLK 38 GLEÐI Á GRUND Hljómsveitin Sprengjuhöllin gladdi heimilisfólkið á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík í gær. Tónleikarnir voru fjórðu tónleikar hljómsveitarinnar þann daginn en piltarnir höfðu spilað fyrir leikskólabörn, grunnskólanema og sjúklinga á barnaspítala Hringsins áður en röðin kom að eldri borgurum. Sjá síðu 36 FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNMÁL Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir óvíst að eignarnámi verði beitt verði þess þörf vegna fyrirhugaðra virkjana í neðri hluta Þjórsár. „Það er ekkert gefið um neitt í þessu máli,“ segir Össur. Deilt var um greinargerð Ríkisendurskoð- unar um sam- komulag fjár- mála-, iðnaðar-, og landbúnaðarráð- herra við Landsvirkjun um vatnsréttindi í Þjórsá á Alþingi í gær. Samkvæmt raforkulögum fellur virkjanaleyfi orkufyrir- tækja niður eftir níutíu daga hafi ekki náðst samkomulag við landeigendur og eigendur orkulinda um gjald eða ákvörðun um eignarnám. - mh / sjá síðu 8 Hugsanlegar virkjanir í Þjórsá: Ekki víst að eignarnámi verði beitt ÖSSUR SKARP- HÉÐINSSON Fáninn úr bresku efni Íslenski fáninn er vinsæll til gjafa og því þurfa fjórir starfsmenn á Íslensku fánasaumastofunni á Hofsósi að hafa snör handtök. TILVERAN 16

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.