Fréttablaðið - 11.12.2007, Side 12
12 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Brag› sem segir sögu
Vi› teygjum tímann
Vi› nostrum vi› laxinn okkar
til fless a› tryggja einstakt brag›.
www.opal.is
Handflaka›ur úr fersku hráefni
fiurrsalta›ur í höndum me› sjávarsalti
Hangireyktur me› birkispæni
Handsneiddur af sérstakri alú›
Hangireykti laxinn okkar fæst í verslunum Nóatúns,
verslunum Hagkaupa, Melabú›inni, Ostabú›inni og í
Flugstö› Leifs Eiríkssonar í versluninni Inspired by Iceland.
ÁN LITAR- OG
ROTVARNAREFNA
TÍMI TIL AÐ NJÓTA Gæða
www.isam.is
KRAFTUR
FJARSKIPTI Jan Malkus, sem situr í
stjórn svissneska fyrirtækisins
Amitelo, segist hissa ef rétt sé að
tilboði fyrirtækisins í uppsetningu
og rekstur síðari áfanga GSM-
þjónustu á landinu verði ekki tekið
þrátt fyrir að það hafi boðið best.
Óskað verði eftir skriflegri stað-
festingu frá Póst- og fjarskipta-
stofnun vegna þessa máls.
Fram kom í Fréttablaðinu í gær
að Amitelo fái ekki að taka að sér
verkið vegna þess að fyrirtækið
hafi ekki uppfyllt kröfur um fjár-
hagslegt hæfi og fái ekki banka-
ábyrgð. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins verður þess í stað
gengið að næstbesta tilboðinu,
sem Og Fjarskipti áttu. „Ég hef
lesið um þetta í blöðum en get ekki
staðfest að tilboðinu okkar verði
ekki tekið,“ segir Malkus. „Við
teljum okkur hafa uppfyllt öll skil-
yrði, og vitum ekki hvers vegna
bankaábyrgðin okkar var ekki
samþykkt ef þetta er rétt. Þetta
kemur okkur á óvart.“
Spurður hvort niðurstaðan hafi
áhrif á áætlanir Amitelo varðandi
rekstur GSM-kerfis á Íslandi
svarar Malkus neitandi. „Þetta
hefur ekki áhrif á hitt útboðið
okkar enda allt annað svæði.
Okkar staða breytist ekki, en þetta
vekur spurningar um hvernig
staðið er að málum.“ - sþs
Talsmaður Amitelo segist telja fyrirtækið uppfylla öll skilyrði um fjárhagslegt hæfi:
Kveðst hissa á útboðsaðferðum
■ Verkið snýst um að koma upp og reka farsímaþjónustu á völdum svæð-
um á landinu, einkum á Vestfjörðum og Norðausturlandi.
■ Þrjú tilboð bárust, og var Amitelo með það lægsta. Það hljóðaði upp á
468 milljónir og tólf mánaða verktíma.
■ Og Fjarskipti voru með næstlægsta boðið, 487 milljónir og 22 mánaða
verktíma. Hæsta boðið átti Síminn eða 655 milljónir og tólf mánaða
verktíma.
■ Amitelo AG er annað tveggja fyrirtækja frá Sviss sem fengu fyrr á árinu
úthlutað tíðniheimild frá Póst- og fjarskiptastofnun fyrir rekstur GSM-
kerfis á Íslandi. Hitt heitir IceCell.
BUÐU BEST Í VERKIÐ
UTANRÍKISMÁL Mannréttindamál
eru nú forgangsmál í utanríkis-
stefnu Íslands. Þessu lýsti Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utanríkis-
ráðherra yfir í erindi á málþingi á
vegum Háskólans á Akureyri í
gær.
Málþingið var liður í háskóla-
fundaröð um Ísland á alþjóðavett-
vangi, sem haldin er í samstarfi
utanríkisráðuneytisins og háskól-
anna í landinu. Yfirskrift þess var
„Mannréttindi í utanríkisstefnu
Íslands – hvers vegna?“ Málþingið
var haldið á afmælisdegi Mann-
réttindayfirlýsingar Sameinuðu
þjóðanna, en í tilefni af 60.
afmælisári hennar á næsta ári
hleyptu samtökin í gær af stokkun-
um alþjóðlegri herferð til að
styrkja vitund fólks um allan heim
á mannréttindum. Opnuð hefur
verið sérstök heimasíða herferðar-
innar, knowyourrights.org.
Guðmundur Alfreðsson, prófess-
or í alþjóðalögum og fyrrverandi
framkvæmdastjóri Raoul Wallen-
berg-stofnunarinnar í Lundi,
minnti á það í sínu erindi að íslensk
stjórnvöld hefðu ekki enn uppfyllt
skilyrði Parísarsáttmálans svo-
nefnda um að koma á fót svo-
nefndri Þjóðarmannréttindastofn-
un, en líta mætti á
umboðs mannaembættin – umboðs-
mann Alþingis, umboðsmanna
barna og svo framvegis – sem vísi
að slíkri stofnun.
Í sínu erindi sagði Ingibjörg Sól-
rún að mannréttindamál væru
útrásarverkefni, meðal annars í
samhengi við framboð Íslands til
öryggisráðs SÞ. Spurð út í þetta
segir hún að „sérhver vegur að
heiman sé vegurinn heim“.
„Það sem við gerum og leggjum
áherslu á á alþjóðavettvangi það
verðum við auðvitað að passa upp á
að sé í góðu lagi heima fyrir, til að
við höfum trúverðugleika erlendis
til að tala fyrir þessum málum,“
sagði hún og hélt áfram: „En það
líka að við tökum þá ákvörðun að
tala fyrir þessum málum á alþjóða-
vettvangi gerir að verkum að við
þurfum kannski að skoða betur
hvernig er umhorfs í túninu heima.
Þannig að það er víxlverkun þarna
á milli, þetta styrkir hvert annað.
Heimsmálin eru heimamál og
öfugt. Þannig að ég held að áhersl-
an á þetta á erlendum vettvangi
gagnist okkur heima fyrir og geti
leitt til umbóta á okkar eigin mann-
réttindamálum.“
Meðal mála á þessu sviði sem
Ingibjörg telur að Íslendingar hafi
einhverju að miðla á alþjóðavett-
vangi eru réttindi kvenna og að
virðing sé borin fyrir alþjóðalög-
um almennt. Hún segist annars
vilja efla umræðu um þessi mál
innanlands til að fram komi hvað
þjóðin vilji leggja mesta áherslu á.
audunn@frettabladid.is
Mannréttindamál
eru forgangsmál
Utanríkisráðherra lýsti því yfir á málþingi í gær að mannréttindamál væru for-
gangsmál í utanríkisstefnu Íslands. Sú ákvörðun að tala fyrir mannréttindum á
alþjóðavettvangi kalli á að vel sé staðið að mannréttindamálum hér heima.
NÝ HEIMASÍÐA OPNUÐ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hóf málþingið á
að opna nýja heimasíðu framboðs Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
MYND/ÞÓRIR
LINCOLN Í KLAKABÖNDUM Mikið
óveður í Springfield í Illinois í Banda-
ríkjunum, skildi eftir sig þessa styttu af
þjóðhetjunni Abraham Lincoln í klaka-
böndum með grýlukertin hangandi úr
andlitinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP