Fréttablaðið - 11.12.2007, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2007 13
Samkeppnin harðnar í líkamsræktargeiranum:
Fimm stöðvar
opnaðar senn
FIMM NÝJAR STÖÐVAR Verið er að opna fjórar nýjar heilsuræktarstöðvar á vegum
World Class og svo er Hreyfing að flytja sig til og opna í nýju og stærra húsnæði á
næstu vikum.
FRAKKLAND, AP Moammar Gaddafí Líbíuleiðtogi fékk
veglegar móttökur þegar hann kom til Parísar í gær.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir að nýir
samningar, sem þeir undirrituðu í gær, séu gerðir
gagngert til þess að verðlauna Gaddafí fyrir bætta
hegðun.
Samningarnir hljóða upp á 10 milljarða evra, en sú
upphæð samsvarar rétt rúmlega 900 milljörðum
króna, og snúast meðal annars um vopnasölu til
Líbíu og nýjan kjarnaofn sem settur verður upp í
Líbíu með aðstoð Frakka.
„Við verðum að hvetja þá sem hafna hryðjuverk-
um og hafna því að eiga kjarnorkuvopn,“ sagði
Sarkozy eftir að þeir Gaddafí höfðu ræðst við í gær.
Líbía var lengi vel höfð að mestu utangarðs í
samfélagi þjóðanna vegna umdeildrar hegðunar
leiðtogans á alþjóðavettvangi og stuðnings hans við
hryðjuverkamenn og uppreisnarmenn í öðrum
löndum.
Frakkland er fyrst Vesturlanda til þess að bjóða
Gaddafí í opinbera heimsókn frá því slettist upp á
vinskapinn fyrir aldarfjórðungi.
Sarkozy hefur sætt harðri gagnrýni í Frakklandi
fyrir að veita Gaddafí móttöku. Meira að segja
Rama Yada, ráðherra mannréttindamála í ríkis-
stjórn Sarkozys, lýsti fyrirlitningu sinni á því að
Gaddafí kæmi til Frakklands á alþjóðlega mannrétt-
indadeginum. - gb
Moammar Gaddafí fékk höfðinglegar móttökur í París í gær:
Umbunað fyrir góða hegðun
SARKOZY TEKUR Á MÓTI GADDAFÍ Sarkozy hefur fengið harða
gagnrýni í Frakklandi og víðar fyrir að taka Gaddafí í sátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Jeppi valt á
Uxahryggjarvegi á móti Meyjar-
sæti um klukkan sjö á sunnudags-
kvöld. Bíllinn er mikið skemmdur
eftir byltuna, en engin slys urðu á
fólki. Tveir menn voru í bílnum.
Kerra með tveimur vélsleðum
var aftan í jeppanum þegar hann
valt.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Selfossi þurfti að
kalla eftir kranabifreið til að
draga jeppann á brott. Orsök
slyssins megi rekja til fljúgandi
hálku sem var á veginum. - sþs
Hálka á Uxahryggjarvegi:
Enginn slasaður
eftir bílveltu
LÖGREGLUMÁL Fólksbíll keyrði
aftan á jeppa við Bollastaði í
Hraungerðishreppi á Suðurlandi
um klukkan tíu í gærmorgun.
Ökumenn beggja bifreiðanna
voru fluttir á slysadeild á
Selfossi, en að sögn lögreglu voru
meiðsl þeirra minniháttar. Þeir
voru báðir einir á ferð.
Slysið varð þegar bíll sem var á
undan jeppanum hægði á sér til
að beygja inn á afleggjara að
Bollastöðum, og jeppinn stöðvaði
á meðan. Hann var ekki kominn
af stað þegar annar fólksbíll lenti
aftan á honum. Ísing var á
veginum, og fólksbíllinn var á
þremur sumardekkjum. - sþs
Var á þremur sumardekkjum:
Fólksbíll keyrði
aftan á jeppa
HEILBRIGÐISMÁL Fimm nýjar
líkamsræktarstöðvar verða opn-
aðar á höfuðborgarsvæðinu í
þessum mánuði og fram í byrjun
janúar. World Class opnar fjórar
nýjar stöðvar og Hreyfing opnar
nýja stöð og lokar á gamla staðn-
um.
World Class opnar heilsu-
ræktar stöð í Hafnarfirði, við
Lágafellslaug í Mosfellsbæ, við
sundlaugina á Seltjarnarnesi og
á fimmtándu hæð í Smáranum í
Kópavogi. Í byrjun janúar verða
því sjö heilsuræktarstöðvar
reknar undir merkjum World
Class hér á landi með aðstöðu
fyrir um tuttugu þúsund iðkend-
ur, eftir því sem fram kemur á
vef World Class. World Class á
Seltjarnarnesi verður stærst
nýju stöðvanna en hún mun
rúma um tvö þúsund manns.
Líkamsræktarstöðin Hreyfing
opnar glænýja heilsulind 29.
desember en námskeiðin hefjast
7. janúar. Tinna Brynjólfsdóttir,
deildarstjóri áskriftar og
markaðs mála hjá Hreyfingu,
segir að nýja stöðin verði 3.300
fermetrar í nýbyggingu við
Glæsibæ í Reykjavík. Þar verði
um heilsulind að ræða með
böðum og allskyns snyrtimeð-
ferðum auk aðstöðu til líkams-
ræktar og hreyfingar.
„Við höfum ekki nákvæma
tölu um það hve margir rúmast í
nýju stöðinni. Við ætlum ekki að
keyra á fjöldanum, frekar gæð-
unum,“ segir hún og telur hugsan-
legt að aðsóknin verði takmörk-
uð ef hún verði svo mikil að það
verði óþægilegt fyrir þá sem
fyrir eru. „Þetta á allt að vera
hið þægilegasta. Upplifunin á
ekki að felast í biðröðum við
tæki,“ segir hún.
Fjöldamargar nýjar stöðvar
hafa verið opnaðar á hótelum
borgarinnar undanfarið, til
dæmis á Hilton og Grand Hótel.
Þá hefur Fréttablaðið áreiðan-
legar heimildir fyrir því að ein
líkamsræktarstöð til viðbótar sé
á teikniborðinu. - ghs