Fréttablaðið - 11.12.2007, Síða 16
16 11. desember 2007 ÞRIÐJUDAGUR
Íslenski fáninn er búinn til
úr efni frá Bretlandi sem
er sérhannað fyrir íslensk-
ar aðstæður. Hann er svo
saumaður í Íslensku fána-
saumastofunni á Hofsósi
en hann samanstendur af
fimmtán borðum. Aðrir
fánaframleiðendur hafa
byrjað útrás frá Þórshöfn.
„Íslenski fáninn er alltaf að verða
vinsælli svo það er nóg að gera, það
er til dæmis orðið vinsælt að fólk
gefi hann sem gjöf,“ segir Lára
Angantýsdóttir, verkstjóri á
Íslensku fánasaumastofunni á
Hofsósi. „Áður var hann saumaður
í Klæðaverksmiðjunni Gefjun á
Akureyri. Þá var hann saumaður úr
ullarefni en nú fáum við sérstakt
efni frá Bretlandi sem er sérlega
hentugt fyrir íslenska veðráttu.“
Eflaust hrósa margir Hofsós-
búar happi yfir því að sauma stofan
skyldi flytjast þangað fyrir ellefu
árum en það er nú eitt af þremur
fyrirtækjum sem starfrækt eru í
þorpinu.
Fjórir starfsmenn vinna á sauma-
stofunni og hafa snör handtök.
„Það eru fimmtán borðar í fánanum
sem þarf að sauma saman, það fer
náttúrlega eftir stærð hvað við
erum lengi að þessu en það eru til
einar sextán stærðir. En ætli við
séum ekki svona einn og hálfan
tíma með miðlungs fána,“ segir
Lára.
En íslenski fáninn er ekki aðeins
búinn til á Hofsósi. Fánasmiðjan á
Þórshöfn er stærsti fánaframleið-
andinn á landinu og prentar um
þrjátíu kílómetra af fánum á ári að
jafnaði. Þar á meðal er íslenski fán-
inn sem prentaður er í sérstakri
silkiprentvél. „Hann er nú reyndar
aðeins aukabúgrein hjá okkur, við
erum aðallega í fyrirtækjafánum,“
segir Karen Konráðsdóttir fram-
kvæmdastýra. „Nú erum við að
hefja útrás til Danmerkur og þurf-
um sennilegast að fara að bæta við
okkur starfsfólki ef fram fer sem
horfir,“ segir hún en nú starfa þar
fjórir starfsmenn.
Fyrirtækið var flutt frá Dvergs-
höfða í Reykjavík til Þórshafnar í
febrúar 2005. „Ég var búsett hérna
en langaði satt að segja ekkert að
flytja í bæinn svo ég ákvað bara að
flytja vinnuna hingað,“ segir hún.
jse@frettabladid.is
Íslenski fáninn úr bresku efni
BAKKUS:
MARGT SAMEIGINLEGT
MEÐ JESÚ KRISTI
■ Sá alræmdi guð Bakkus hét
upphaflega Díónýsos og var vinsæll
meðal Forn-Grikkja. Margt
svipað því sem seinna
kom fram í trú á Jesú Krist
má finna í trú á Díónýsos,
sem er sagður hafa búið
um skeið í Palestínu. Báðir
áttu guð að föður og voru
yfirheyrðir af vantrúuðu
löggjafarvaldi fyrir að æsa
upp lýðinn.
Þá fundust hugmyndir um að
drekka blóð guðs (vín) og eta
líkama hans (brauð) einnig í dýonís-
ískri trú. Rómverjar nefndu Díonýsos
Bakkus og er það nafn næstum
samnefnari áfengis. Orðið bakari er
úr annarri átt.
Patreksfirðingar eru þekktir fyrir
allt annað en gikkshátt og eru hinir
ýmsu réttir bornir á borð þegar
menn gera sér glaðan dag í
skammdeginu. Það sannaðist á
jólahlaðborði sem haldið var á veit-
ingastofunni Þorpið á Patreksfirði
þar sem maturinn var bæði hefð-
bundinn og framandi.
Meðal rétta voru hrátt hangikjöt
og hrátt hreindýrakjöt og runnu
réttirnir tveir ljúflega niður hjá
gestunum að sögn Kolbrúnar Páls-
dóttur veitingamanns í Þorpinu.
Það er annríkt á veitingastofunni
því 14. desember næstkomandi
munu hinir svokölluðu Pottormar,
en það er félagsskapur sem hittist
oftlega í heita pottunum í sundlaug
Patreksfjarðar, þiggja þar skötu í
hinni árlegu skötuveislu.
Þessir vösku Pottormar skutu
flestum ref fyrir rass þegar kom
að forvitnilegu fæði en áður fyrr
matreiddu þeir ref og báru á borð í
samkvæmum sínum. Það var
reyndar löngu áður en Þorpið var
opnað svo það kom ekki í Kolbrúnar
hlut að matreiða skolla. - jse
Hrátt kjöt á hlaðborði á Patreksfirði:
Áður borðuðu
Pottormarnir ref
FRAMANDI OG HEFÐBUNDIÐ Fremst í
ferkantaðri skál er hráa hangikjötið en
hráa hreindýrakjötið á fatinu fyrir framan
laufabrauðið. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Hvaða hálfviti
er þetta?
„Það fyrsta sem ég hugsaði þegar
ég las um þetta var „Hvaða hálfviti
er þetta?“,“ segir Elva Ósk Ólafs-
dóttir leikkona um uppátæki Vífils
Atlasonar sem hringdi í Hvíta húsið
og þóttist vera forseti Íslands. Hann
reyndi að koma á símafundi við
George Bush Bandaríkjaforseta, en
uppskar athygli bandarísku alríkis-
lögreglunnar fyrir vikið. „Þegar það
var farið að lyfta þessu upp á hærri
stall þá missti ég bara málið. Mér
finnst þetta ekki fyndið.“
Spurð hvað henni finnist um seinni
hrekk Vífils, þar sem hann sendi
vin sinn í viðtal á Stöð 2 undir sínu
nafni, segist Elva alltaf hafa gaman
af gríni milli vina en þetta hafi henni
ekki fundist sniðugt. „Ég hef alveg
húmor, en ekki fyrir öllum hlutum
og sérstaklega ekki svona. Hallæris-
legt er eina orðið sem mér dettur í
hug yfir þetta uppátæki,“ segir hún.
SJÓNARHÓLL
SÍMAAT VÍFILS ATLASONAR
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR
Leikkona
„Það er bara allt slétt og leikandi þó nóg sé að
gera,“ segir Árni Johnsen þingmaður. „Ég er með
svona um tuttugu mál sem ég er tilbúinn til að
leggja fyrir þingið enda af nógu að taka,
mörg aðkallandi mál. Til dæmis er ég að
berjast í því að Suðurlandsbraut verði tvö-
földuð. Svo þarf að aðhafast í málinu um
skipalyftuna í Eyjum en hún féll með skipi
í fyrir tveimur árum. Menn telja að
þetta eigi tildrög sín í skemmd
sem kom í skjálftanum mikla
árið 2000 en eyjan hristist rétt
eins og meginlandið.“
Árni var fórnarlamb
Audda í þætti hans Tekinn
2 fyrir skemmstu. Þá varð
hann fyrir afgreiðslustúlku
á veitingastað sem kom
heldur óblíðlega fram
við hann efir að sessunautur Árna missti disk
í gólfið. Hún sakaði hann meðal annars um
kynferðislega áreitni. „Ég hafði bara gaman af
þessu enda hrekkjalómur sjálfur. Í því felst
að kunna að gera grín en jafnframt og ekki
síður mikilvægt er að kunna að taka gríni.
Enda lét ég engan bilbug á mér finna, sumir
vina og vandamanna hafa meira að segja
sagt mér að þeir sjálfir hefðu orðið
brjálaðir í sömu aðstöðu og ég
var settur í.“
Þá er hann spurður að því
hvort annríkið á Alþingi leysi
hann ekki undan öllum jóla-
önnum. „Nei, það er ekki svo.
Maður er alltaf settur í eitt-
hvað síðustu dagana fyrir jól,
setja upp seríur og svona.
Enda bara gaman að því.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÁRNI JOHNSEN ÞINGMAÐUR
Kann að grínast og að taka gríni
KONURNAR Á BAK VIÐ FÁNANN Svona fáni er ekki hristur fram úr erminni enda gerður úr fimmtán borðum. Hér eru þær með
afreksturinn Lára Angantýsdóttir verkstjóri, Guðmunda Kristjánsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir og Anna Halldórsdóttir.
STÓR FÁNI Þessum verður heldur ekki
stungið í vasann. Guðrún Þorvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri saumastofunnar, er í
hvítri peysu lengst til hægri og við hlið
hennar við krossinn er Lára verkstjóri.
UNNIÐ HÖRÐUM HÖNDUM Á SAUMA-
STOFUNNI Framleiðsla íslenska fánans
er með helstu atvinnuvegum á Hofsósi,
enda er saumastofan eitt þriggja fyrir-
tækja í kauptúninu.
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Svartur sjór af síld
„Þetta er léttasta síldarvertíð
sem við höfum verið á.“
SKIPVERJAR Á SIGHVATI BJARNA-
SYNI VE, SEM MOKAR UPP SÍLD
NÁNAST Í FLÆÐARMÁLINU Í
GRUNDARFIRÐI.
Morgunblaðið, 10. desember.
Dýr leikur
„Mér finnst líklegra að
einhverjir hafi verið að leika
sér með eld sem hafi farið úr
böndunum.“
RAGNAR MAGNÚSSON, EIGANDI TÍU
NÝLEGRA BÍLA SEM GJÖREYÐI-
LÖGÐUST Í ELDI Í VOGUM.
Fréttablaðið, 10. desember.