Fréttablaðið - 11.12.2007, Qupperneq 26
[ ]
Jólin nálgast hratt og kominn
tími til að gera jólalegt heima.
Gleymum ekki börnunum sem
í eftirvæntingu ljá barnshönd
sína til að gera heimilið sem
hátíðlegast. Hér koma gagn-
leg ráð til að koma húsinu í
hátíðar búning sem fyrst.
1. Veldu jólatréð. Jólatré er
mikilvægasti skrautmunur
jólanna. Gervitré hafa ýmsan
kost umfram náttúrutré og
eru umhverfisvæn því þau
má nota áratugum saman.
Af þeim hrökkva engar
nálar og ekki þarf að
vökva þau, auk þess
sem litlar líkur eru á að
þau festist í þröngri
dyragætt. Veldu jóla-
tré sem hentar fer-
metrafjölda heimilis-
ins og finndu besta
staðinn fyrir tréð;
þar sem það er ekki
fyrir neinum og
ekki verður
gengið á það.
2. Hengdu
upp jóla-
kransa, og
ekki bara á
útidyrnar.
Kransar
bera með
sér hátíð-
legan
blæ og
þá má
hengja í
glugga, stigaganga, á eldhússkápa,
hjónarúmsgaflinn og jafnvel
klósetthurðina.
3. Blómsveigi er auðvelt að
útbúa og strengja þvers og kruss
um heimilið. Leyfðu hugmynda-
fluginu að njóta sín. Vefðu þá um
stigahandrið og gardínustangir,
eða leyfðu þeim að slúta yfir
myndaramma, bókahillur,
klukkur og arinhilluna.
4. Ljósaseríur í glugga
gleðja þá sem framhjá ganga
og bjóða gesti velkomna
með birtu sinni.
5. Fylltu heimilið með
angan jólanna. Lyktar-
skyn mannfólksins er
kröftugt á aðventunni
og flestar ilmtegundir
vekja ljúfar minningar.
Settu ilmjurtir í skál,
kveiktu á ilmkertum
með kanil, appel-
sínum, negul og
engifer, eða leyfðu
börnum að stinga
negulnöglum í
appelsínur. Bak-
aðu smákökur
og útbúðu
jólaglögg til
að fylla
heimilið
lokkandi
ilmi sem
fylla
húsa-
kynnin
ham-
ingju.
- þlg
Heimilið í jólaskart
Jólin voru upphaflega hátíð
heiðinna manna.
Á vísindavef Háskóla Íslands er
fjallað um upphaf jóla og kemur
fram að þau hafi ekki tengst kristni
heldur trú Rómverja og heiðinna
norræna manna til forna.
Hátíðin nefndist Saturnalia-
hátíðin í Róm til forna. Þar var
hún tengd heiðnum sólarguði, þar
sem menn fögnuðu því að daginn
fór að lengja á ný. Rómverjar gáfu
síðan hver öðrum gjafir dagana
17. til 23. desember.
Heiðnir norrænir menn héldu
sams konar hátíð á svipuðum árs-
tíma og kallaðist hún jól, rétt eins
og í dag.
Þegar kristni varð að ríkistrú
hjá Rómverjum með Konstantín-
usi mikla árið 324, tók kirkjan
smám saman yfir forna helgidaga
og undir aldamótin festist 25.
desember sem fæðingardagur
Jesú, jafnvel þótt vitað væri að
svo var ekki.
Sá dagur var einnig tengdur
fæðingardegi keisarans og þar
sem Jesús var álitinn vera hinn
eini sanni keisari fékk hann sína
fæðingarhátíð. Hann tók því sæti
sólarguðsins, keisarans og hátíðar-
gleðinnar.
Jólahátíðin var orðin miðlæg
sem fæðingarhátíð Jesú um alla
kristni á 5. öld. Sjá www.visinda-
vefur.is - rve
Jólin eldri en Jesús
Jólin í sinni upphaflegu mynd höfðu lítið með fæðingardag Jesú að gera.
Jólasveinar! Við minnum ykkur á að hafa allt klárt áður en
þið setjið í skóinn en nú er ykkar vertíð að hefjast.
Hnoðuð lagkaka
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum
fyrir viðkiptavini okkar.
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16