Fréttablaðið - 11.12.2007, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 11. desember 2007 3
Lúsíuhátíðin á sér langa hefð í
Svíþjóð. Á Íslandi er dagurinn
nú haldinn hátíðlegur í fimm-
tugasta og annað sinn og er
það Sænska félagið á Íslandi
sem stendur fyrir hátíðar-
höldunum.
„Allir krakkar í Svíþjóð bíða með
eftirvæntingu eftir Lúsíudeginum
og sérstaklega stelpurnar. Þá er
kosið um hver verður Lúsía það
árið og sú sem verður fyrir valinu
gengur fremst í flokki í hvítum
síðum kjól og með ljósakórónu á
höfði. Eftir henni ganga svo aðrar
stúlkur í hvítum kjólum með ljós,
sem eiga að vera þernur Lúsíu,“
segir Anna Maria Hedmann, for-
maður Sænska félagsins á Íslandi.
Félagið hefur verið starfrækt frá
árinu 1955 á Íslandi og hefur frá
upphafi fagnað Lúsíuhátíð á Íslandi
með ýmsum hætti. Í Svíþjóð, og
reyndar einnig í Noregi, er dagur-
inn fyrir marga upphafið að jóla-
hátíðinni. Þar er fagnað í öllum
leik- og grunnskólum og í tilefni
dagsins er bakað sérstakt brauð
sem er formað eins og geislar sólar
í mesta skammdeginu.
„Saffran-brauðið er
órjúfanlegur hluti af
Lúsíuhátíðinni. Meira
að segja þeir sem aldrei
baka sleppa ekki Lús-
íubrauðinu,“ segir Anna
Maria, en hátíðarhöldin
hefjast gjarnan snemma
morguns þegar Lúsía
og þernur hennar færa
brauð og kökur með
ljúfum söng. Sjálf á
Anna Maria góðar æsku
minningar um Lúsíudaginn. Núna á
hún sjálf tvær dætur, þær Karin
Ingu og Önnu Björk, og er þegar
búin að baka brauðið með þeim.
Dagurinn er til heiðurs dýrlingnum
Lúsíu sem þýðir ljós enda verndar-
dýrlingur blindra og sjónskertra.
Upphaflega var hún ítölsk en vegna
tengsla við birtuna og nálægðar við
vetrarsólstöður varð hún persónu-
gervingur sólstöðuhátíða á Norður-
löndunum. Um siðaskiptin reyndu
mótmælendur að losa sig við dýrl-
inga úr kaþólskum sið en ekki tókst
að losna við Lúsíu. Á 18. öld fór að
bera á þeirri Lúsíu sem þekkist í
dag þegar elsta stúlka heimilisins
var klædd sem Lúsía og bar fram
kaffi og brauð til heimilisfólks.
Snemma á 20. öldinni var
síðan farið að halda skipu-
lagðar Lúsíuhátíðir í Svíþjóð.
Á Íslandi er siðurinn að fær-
ast í aukana, þó mest meðal
Svía, Norðmanna og
Íslendinga sem hafa búið
á Norðurlöndunum. Í ár
fer hátíðin fram í Sel-
tjarnarneskirkju hinn 13.
desember. Íslenski Lúsíu-
kórinn mun þá syngja við
hátíðarhöldin ásamt norska
tenórnum Knut Schöning, en kór-
inn hefur verið við æfingar frá
miðjum október undir stjórn Mariu
Cederborg.
Einnig heimsækir kórinn Orku-
veituna, IKEA og sænska sendi-
ráðið. „Allt okkar starf í Sænska
félaginu er í sjálfboðavinnu en við
erum svo heppin að fá styrktarað-
ila fyrir hátíðina svo við heimsækj-
um þá að sjálfsögðu.“ Tónleikarnir
í Seltjarnarneskirkju hefjast klukk-
an 19. Aðgöngueyrir er 1.000 kr.
fyrir fullorðna, ókeypis fyrir börn
og á eftir er boðið upp á kaffi og
brauð á 500 kr. Allir eru velkomnir.
Nánari upplýsingar: www.svenska-
foreningen.is rh@frettabladid.is
Ljósahátíð á aðventunni
Anna Maria Hedman, formaður Sænska félagsins á Íslandi, fagnar Lúsíuhátíð ásamt dætrum sínum, Karin Ingu og Önnu Björk.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Uppskrift að lúsíubrauði
125 g smjör
5 dl af mjólk
2 teskeiðar (50 g) af geri
½ teskeið af salti
1 dl af sykri (má nota
annað sætt)
1 g af saffran
2 egg
16 dl af hveiti (má nota
spelt)
rúsínur til að skreyta
egg til að pensla
Mjólkin er hituð í potti og smjörið látið
bráðna í mjólkinni. Blandan á að vera
um 37 gráðu heit. Gerið fer út í blönd-
una ásamt saffraninu. Sætunni (má vera
döðlur, ávaxtamauk, agave-síróp eða
banani) er síðan bætt út í blönduna.
Eggin eru þeytt sér og bætt út í og þar
á eftir hveiti. Deigið er síðan hrært og
jafnvel meira hveiti bætt við ef það er
of blautt. Stráið hveiti á deigið og legg-
ið yfir hreint viskastykki á meðan það
lyftir sér í 30 mínútur og verður tvöfalt.
Síðan er deigið hnoðað. Það á að vera
ljóst, teygjanlegt og frekar laust í sér. Þá
eru brauðin mótuð og sett á smurða
ofnplötu. Síðan eiga brauðin að lyfta sér
áfram í aðrar 30 mínútur. Þá eru þau
pensluð með eggi og skreytt með rús-
ínum. Brauðið má móta í alls konar
form og snúninga. Stundum eru búnir
til kransar og fléttur. Brauðið verður fljótt
þurrt og því ágætt að frysta það og þíða
í ofni þegar á að borða það heitt.
Sólargeislabrauð með saffrani
Prinsessukökur
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólum
fyrir viðkiptavini okkar.