Fréttablaðið - 14.12.2007, Blaðsíða 40
[ ]Pottaplöntur sem hafðar eru utandyra geta sett fallegan svip á híbýli manna um jólin og þá sérstaklega lítil jólatré í pottum. Til eru ýmsar gerðir af trjám eins og jólasýpris, grenitré og fleira sem huggu-legt er að stilla fyrir utan útidyrnar.
Elísabet Pétursdóttir bóndi
bakar meðal annars bónda-
kökur fyrir jólin.
Þegar Elísabet á Sæbóli II á
Ingjaldssandi er innt eftir
bökunarhefðum fyrir jólin
svarar hún glaðlega: „Ég hef
næstum alltaf bakað köku-
hús. Þó féll það niður í nokk-
ur ár á milli barna en ég byrj-
aði 1977 þegar Kristín dóttir
mín var á öðru ári.“
Spurð hvort húsin
séu alltaf eins eða
með einhverjum til-
brigðum svarar
hún: „Þór sonur
minn hefur eigin-
lega alltaf fengið
eins kökuhús en
til að byrja með
gerði ég tilraun-
ir svo þau voru
ólík frá ári til
árs. Þá var verið
að betrumbæta.“
Hún segir Þór,
sem er níu ára, hjálpa henni að
skreyta. „Í gegnum tíðina hafa
sömu hlutirnir verið hafðir með.
Það eru litlir jólasveinar í mis-
munandi stellingum sem hafa allt-
af fylgt kökuhúsunum.“
Elísabet er bóndi og býr ein
í sinni sveit. Að sjálfsögðu
bakar hún bónda kökur. „Það
er hefð fyrir bóndakökum á
Sæbóli,“ segir hún. „Ég var
hér oft um jólin hjá Unu
frænku minni sem reyndar
hét Steinunn Ágústs-
dóttir og bjó á Sæbóli
III. Hún bakaði
bóndakökur frá því
ég man eftir,
þannig að ég við-
held þeirri hefð.“
Hér kemur svo
uppskriftin.
- gun
Hefð á Sæbóli að
baka bóndakökur
Elísabet bakar alltaf
kökuhús fyrir jólin.
BÓNDAKÖKUR
200 g sykur
200 g smjör
400 g hveiti
75 g kókos
1 msk. síróp
1 tsk. matarsóti
Hnoðið, mótið lengjur og skerið í
sneiðar. Bakið við 200° í 10 mínútur, eða
þar til kökurnar eru gullinbrúnar.
Jólamarkaður í Boxi
Norðlensk hönnun er í háveg-
um höfð á markaði sem opinn
er um helgar frá 12 til 18 í
Gallerí Boxi að Kaupvangs-
stræti 10 á Akureyri.
Á jólamarkaði í Gallerí Boxi er
sýnishorn af því sem hönnuðir á
Akureyri hafast að, bæði þeir
yngri og þeir reyndari. Þar kennir
ýmissa grasa. Má nefna skelja-
töskur og spangir eftir Brynhildi
Þórðardóttur, svarta ketti eftir
Aðalheiði Eysteinsdóttur, hesta
eftir Gitte Nielsen og hangandi
engla eftir George Hollanders.
Nokkur sérvalin kristnesk
jólatré og greinar verða til sölu
nú um næstu helgi í Gallerí Boxi
og jólaglögg og piparkökur eru á
borðum. Á Þorláksmessu færist
enn fjör í leikinn því þá verður
boðið upp á súpu um kvöldmatar-
leytið og rithöfundar og aðrir
listamenn líta inn. Helgi Þórsson
mun lesa upp úr nýrri ljóðabók
er nefnist Tveir skuggar og
George Hollanders ætlar að spila
á didsjeridú-hljóðfæri. - gun Hestar eftir Gitte Nielsen.
Brynhildur Þórðardóttir er með
skeljatöskur og spangir á markaðnum
í Boxinu.
Hnoðuð lagkaka
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólnum
fyrir viðskiptavini okkar.
Fallegar íslenskar
peysur
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is