Fréttablaðið - 14.12.2007, Qupperneq 42
[ ]
Fastan er fiskneyslutími hjá
mörgum og þeim fer líka fjölg-
andi sem vilja fisk á sinn disk
á hátíðum.
Það er algengt hjá fjölskyldum í
dag að fleiri réttir en einn séu á
borðum í hverri jólamáltíð og
fiskur inn er kominn þar sterkur
inn. Þótt kjötið sé vinsælt þá eru
ekki allir jafn hrifnir af því. Við
finnum það vel, fisksalarnir,“ segir
Ari Karlsson, matreiðslumaður og
verslunarstjóri Fiskisögu á Höfða-
bakka. Hann lumar líka á ráðum til
að halda ferskleika fisksins þótt
hann sé ekki matreiddur strax. Til
dæmis að leggja hann í frysti í
einn klukkutíma til tvo, til að ná
hitastiginu niður. „Þá á hann alveg
aukadag í kælinum,“ segir hann og
bendir líka á að gott sé að setja
klaka í box, viskastykki þar yfir,
fiskinn þar ofan á, annað viska-
stykki og svo klaka. „Þetta kallast
að ísa fiskinn,“ útskýrir hann.
Ari segir lax og lúðu vinsælar
tegundir á veisluborðið og gefur
uppskrift að hátíðarrétti fyrir tvo.
gun@frettabladid.is
Laxinn vinsæll á veisluborðin
Ari nostrar við matreiðsluna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pasta, salöt og einfalda rétti getur verið gott að útbúa inni á
milli veislufæðisins sem neytt er á milli jóla og nýárs. Það er því
ekki úr vegi að eiga gott grænmeti, pasta, túnfisk og þess háttar
í skápnum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
INNBAKAÐUR LAX
MARINERAÐUR Í SOJA-WASABI
tvö 250 gramma laxastykki roð-
hreinsuð og beinhreinsuð
tvær rúllur af smjördeigi
4 meðalstórir portobellosveppir
saxaðir
3 skalottlaukar saxaðir
truffluolía
50 grömm smjör
Maldon-salt
nýmalaður svartur pipar
dreytill af púrtvíni
1 egg léttþeytt
MARINERING:
10 g wasabi-mauk
30 g dijon-sinnep
30 ml sojaolía
50 ml ólífuolía
Laxinn er lagður í soja-wasabi-
sósuna í um það bil 3 klukkutíma.
Sveppir og laukur eru léttsteiktir á
pönnu með smjöri, púrtvíni hellt yfir
og leyft að sjóða niður, kryddað með
smá salti og pipar. Smjördeigið er
penslað með egginu, sveppirnir og
laukurinn lagðir þar ofan á og síðan
laxinn. Truffluolíu er nuddað á laxinn
ásamt salti og pipar. Deigið er lokað
yfir fiskinn og stungin eru nokkur
loftgöt. Laxinn er bakaður fyrst við
160 gráður í um það bil 15 mínútur
og svo við 190 gráður í um það bil
átta mínútur.
Með þessu ber Ari fram tómat -
vinaigrette, hrísgrjón eða ofnbakaðar
kartöflur með grófu salti og pipar og
ferskt salat með eplum, rauðlauk og
kirsuberjatómötum.
Tiramisu
Holtagarðar & Smáralind & Kringlunni
Nú er Jói Fel byrjaður að undirbúa jólin.
Leggjum mikinn metnað í að vera með
ferskt og gómsætt bakkelsi á boðstólnum
fyrir viðskiptavini okkar.
NÆTURVAKTIN
Á DVD
NÆTUR-
VAKTIN
allir 12 þættirnir
á 2 diskum troðfullir af
aukaefni; tilurð þáttanna
/ upptökur frá spunum,
gerð næturvaktarinnar
og yfirlestur
(commentary)
frá höfundum
og aðalleikurum.
Eigum við
að ræða
það eitthvað?
2
DVD