Fréttablaðið - 14.12.2007, Síða 52
14. DESEMBER 2007 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● miðbærinn
Á Geysi bistro og bar verður
boðið upp á hátíðarkvöldverð-
armatseðil milli jóla og nýárs.
„Við fórum af stað með jólahlað-
borð í fyrsta sinn til að athuga
hvernig viðtökurnar yrðu og þær
hafa ekki staðið á sér. Það er upp-
selt á það,“ segir Þórður Norð-
fjörð, kokkur á Geysi bistro og bar,
við Aðalstræti 2. Forsvarsmenn
staðarins hafa brugðist við með að
bjóða einnig upp á sérstakt skötu-
hlaðborð á Þorláksmessu og hátíð-
arkvöldverðarmatseðil, villibráð
og fiskrétti, milli jóla og nýárs, þar
sem gestum gefst færi á að snæða
gómsætan mat í frjálslegu and-
rúmslofti eins og Þórður kemst að
orði. Hér að neðan er þriggja rétta
hátíðarmatseðill sem ætti að veita
innsýn í það sem er í boði. - rve
Þriggja rétta hátíðarveisla
Sjálfur kokkurinn að störfum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Miðborgin skartar sínu fegursta um þessar mundir. Jólin
eru fyrir löngu komin í bæinn og fram að sjálfum jólunum
er við nóg að vera. Helgarnar fram að jólum bjóða upp á
notalega aðventustemningu með spennandi dagskrá sem
kemur ungum sem öldnum í sannkallað jólaskap.
LAUGARDAGUR, 15. DESEMBER
Jólasveinarnir Skyrgámur og Gluggagægir koma við í miðborg-
inni á milli 14.00 og 15.00 með góðgæti í pokanum. Viðurkenning
fyrir „jólalegasta jólagluggann“ verður veitt með aðstoð Glugga-
gægis kl. 15.00. Norræna félagið og Hjálpræðisherinn bjóða gest-
um upp á heitt súkkulaði víðs vegar um miðborgina milli 14.00 og
18.00 auk þess sem kór Nord-klúbbsins, Vox Borealis, flytur ljúfa
tóna.
SUNNUDAGUR, 16. DESEMBER
Enskir jólasöngvar – Christmas Carols – í Hallgrímskirkju kl.
14.00. Leiðsögn um sýningarnar í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöð-
um kl. 15.00.
LAUGARDAGUR, 22. DESEMBER
Jólasveinarnir Hurðaskellir og Stúfur verða í miðborginni milli
14.00 og 15.00 með góðgæti í pokanum. Norræna félagið og Hjálp-
ræðisherinn bjóða gestum upp á heitt súkkulaði víðs vegar um
miðborgina milli 14.00 og 18.00 auk þess sem kór Nord-klúbbsins,
Vox Borealis, flytur ljúfa tóna. Hópur hljóðfæraleikara í Lúðra-
sveit verkalýðsins spilar víðs vegar um miðborgina milli 15.00 og
17.00.
ÞORLÁKSMESSA, 23. DESEMBER
Friðargangan hefst kl. 18.00. Gengið frá Hlemmi, niður Laugaveg
og að Ingólfstorgi þar sem flutt verða stutt ávörp.
AÐFANGADAGUR, 24. DESEMBER
Hljómskálakvintettinn leikur jólatónlist í Hallgrímskirkju kl.
17.00.
Sýningin Norrænir jólasiðir, Óðinsgötu 7, er opin alla virka daga
frá 09.00-16.00 og er gestum að kostnaðarlausu.
AFGREIÐSLUTÍMAR VERSLANA Í MIÐBORGINNI:
Virkir dagar: Opið 10.00-22.00. Laugardagar: Opið 10.00-22.00
Sunnudagar: Opið 13.00-22.00. Þorláksmessa: Opið 10.00-23.00
Aðfangadagur: Opið 10.00-12.00
BÍLASTÆÐI
Frítt er í útistæði eftir kl. 13.00 á laugardögum. Frítt er í bíla-
stæðahús á laugardögum. Fram að jólum eru bílastæðahúsin opin
til 24.00.
Aðventan í miðbænum
Aðventan í miðborg Reykjavíkur er bæði notaleg og spennandi.
Jólaleg stemning á Geysi
bistro og bar.
● JÓLIN KOMA Jólaskreytingar eru í boði
víða. Þó eru tvær verslanir í miðbænum
sem sérhæfa sig í slíku allt árið um
kring. Þetta eru Jólahúsið við Skóla-
vörðustíg 21a og Litla jólabúðin
við Laugaveg 8.
Þar má finna margt fínt
skraut, bæði íslenskt og erlent.
Íslensku sveinarnir standa þar
innan um frændur sína rauð-
klæddu, hvítir englar innan
um svarta og silfraða
páfugla.
Sumir hafa fyrir sið
að kaupa árlega eitt
fallegt jólaskraut á
jólatréð á Þorláks-
messu. Þannig má
einnig sjá hvernig
tískan breytist í áranna
rás.
1. Marineraður fiskur
Tex-Mex
FORRÉTTUR EÐA STAKUR RÉTTUR
1 kg lax eða lúða (roðlaus og bein-
laus)
1 bolli limesafi
Skerið fisk í litla bita, hellið limesafa yfir
og látið liggja í 30 mínútur.
KRYDDBLANDA
4 msk. jalepeno (niðursoðinn, smátt
saxaður)
½ bolli fylltar ólivur (smátt skornar)
1 stór laukur (smátt saxaður)
2 stk. hvítlauksrif (smátt söxuð)
1 msk. ferskt kóríender (smátt saxað)
1 msk oregano (þurrkað)
½ bolli tómatsósa
1 tsk. salt
1 msk. worchestersósa
Sigtið fisk úr limesafa. Setjið á fat.
Blandið öllu hráefni í kryddblöndu
saman og blandið varlega saman við
fisk. Setjið lok eða plastfilmu yfir og
látið marinerast í 2 sólarhringa. Blandið
saman við fisk ½ haus af smátt söxuð-
um iceberg, 3 stk. af ferskum tómötum,
skornum í báta, ásamt 3 msk. af ferskri
steinselju, áður en hann er borinn fram.
Framreitt með sýrðum rjóma og brauði.
2. Humarfylltar andabring-
ur með vínberjasósu og
fersku eplasalati
AÐALRÉTTUR FYRIR 6
12 stk. andabringur (meðalstórar)
12 -16 stk. humar (færður úr skel og
hreinsaður)
olía til steikingar
salt og pipar
Skerið lítið gat í þykkari enda anda-
bringu. Þrýstið stál- eða sleifsenda inn
í bringu til að búa til svæði fyrir humar.
Þrýstið honum þar inn. Brúnið bring-
ur í olíu á pönnu, kryddið með salt og
pipar. Setjið á grind í ofni og steikið við
170°C í 10 mínútur.
VÍNBERJASÓSA
5 dl soð (villibráðarsoð)
1 dl rjómi
100 g gráðostur
20 stk. græn vínber (skorin í tvennt
og steinhreinsuð)
ögn kjötkraftur
2 tsk. rifsberjahlaup
sósujafnari
salt og pipar
Setjið soð í pott og bætið í rjóma og
gráðaost. Þykkið með sósujafnara,
bragðbætið með kjötkrafti, salti, pipar
og rifsberjahlaupi. Látið krauma í fá-
einar mínútur. Bætið vínberjum í sós-
una rétt áður en hún er borin fram.
FERSKT EPLASALAT
3 rauð epli (steinlaus og smátt skorin)
3 rauðlaukar (smátt skornir)
4 msk. fersk steinselja (smátt söxuð)
Öllu blandað saman og bleytt upp með
balsamic-kremi.
Réttur er borinn fram með kartöflum,
fersku salati eða grænmeti.
Allt hráefni fæst í helstu matvöruversl-
unum landsins.
3. Súkkulaðiterta Geysis
BOTN
4 stk. egg
2 dl sykur
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
1 dl hveiti
Stífþeytið egg og sykur. bræðið smjör
og súkkulaði yfir vatnsbaði. Kælið ör-
lítið. Blandið síðan saman við egg og
sykur, ásamt hveiti. Hrærið öllu varlega
saman. Bakað í 40 mínútur á 170°c.
KREM
70 g smjör
150 g suðusúkkulaði
2 msk. síróp
Setjið allt saman í skál og bræðið yfir
vatnsbaði. Látið kólna örlítið. Smyrjið
síðan yfir botninn. Borið fram með
ferskum ávöxtum, rjóma eða ís. Einnig
gott að hafa allt með.