Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 1

Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI JAKOB FRÍMANN MAGNÚSSON Sátt í Klaufamálinu Útvarpsstjóri lofar Rás 2 auknum fjármunum FÓLK 60 Sími: 512 5000 FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 — 346. tölublað — 7. árgangur VEÐRIÐ Í DAG Samheldni, kærleikur og gleði Kvenfélagið Gefn í Garði er 90 ára. TÍMAMÓT 44 Síðasti skiladagur fyrir jólakort innanlands er í dag www.postur.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA 0 7 -1 5 3 5 Mamma segir, mamma segir BT bæklingur fylgir Fréttablaðinu í dag Umdeild erótík Skiptar skoðanir eru á auglýsingu fyrir glæpasögu Þórunn- ar Erlu-Valdi- marsdóttur. FÓLK 74 HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Jens Ólafsson gengur í jakka afa síns ogalnafna Júdas í jakka afa síns Jens æfir þessa dagana stíft fyrir hlutverk Júdasar í söngleiknum Jesus Christ Superstar og er greinilega í karakter á milli æfinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FLOTT UM JÓLINFalleg jólanærföt undir sparifötin setja punktinn yfir i-ið og ekki er verra að hafa þau rauð. TÍSKA 2 JÓL Í GARÐINUMEf jólin verða rauð eins og allt stefnir í er um að gera að lífga upp á garðinn með skemmti-legum ljósum. JÓL 5 Bækur halda sjó „Nær öll hátekjulönd nema Banda- ríkin gefa nú út fleiri bækur á mann en áður,“ skrifar Þorvaldur Gylfason. Í DAG 36 VERSLUN „Óveðrið hefur greinilega ekki komið að sök því þeir verslunarmenn sem ég hef heyrt frá úr miðbænum eru gríðarlega ánægðir með jólasöluna og segja að síðustu þrír laugardagar hafi verið á við góða Þorláksmessu,“ segir Sigrún Lilja Guðbjarts- dóttir, framkvæmdastjóri Miðborgar Reykjavíkur. Hákon Jónsson, framkvæmdastjóri Jóns og Óskars, sem er með verslun við Laugaveg, tekur í sama streng. „Það hefur verið mjög mikið að gera þótt vissulega hafi verið rólegt þegar allra verst viðraði en þá hefur bara verið þeim mun meira að gera þegar veður gengur niður.“ Sigrún segir því ljóst að stóru verslunarmiðstöðv- arnar séu síður en svo að ganga af verslun í miðbæn- um dauðri. „Síður en svo enda hafa allir lagst á eitt að gera þetta sem skemmtilegast sem vilja halda í þessa hefð að versla í miðbænum fyrir jólin. Til dæmis hefur Hjálpræðisherinn og Norræna félagið boðið vegfarendum upp á kakó, veitingahúsaeigend- ur hafa síðan verið með tilboð og Bílastæðasjóður hefur komið til móts við okkur með því að hafa bílastæðahúsin opin lengur. Að ógleymdum jóla- sveinunum sem hafa glatt marga með fjöri og góðgæti í poka.“ Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að undanfarin ár hafi aðsókn í miðbænum á Þorláks- messu aukist. „Að jafnaði eru um 12 til 15 þúsund manns á Laugaveginum og í miðbæjarkvosinni á Þorláksmessu,“ segir hann. „Þetta geta orðið 20 þúsund manns þegar mest er. Og aðsóknin eykst frekar með árunum en hitt.“ En þrátt fyrir góða aðsókn í miðbænum virðist ekkert lát vera á aðsókninni í Kringluna og Smára- lind. „Jólin í fyrra voru algjört met og er aðsókn og verslun það sem af er desember meiri en í fyrra,“ segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar. „Við eigum svo von á því að þetta nái hámarki um næstu helgi.“ Hann segir að um 50 þúsund manns hafi komið í Kringluna á Þorláks- messu í fyrra. Kristinn Jóhannesson, rekstrarstjóri Smáralindar, segir einnig aðsóknina meiri nú en á sama tíma í fyrra. - jse Miðbærinn stendur af sér vonda veðrið Óveður hefur ekki áhrif á sölu í miðbænum. Sú hefð að versla í miðbænum á Þorláksmessu á síður en svo undir högg að sækja. Það sem af er desember hefur aðsókn og verslun verið meiri í Kringlunni og Smáralind en á sama tíma í fyrra.ÞURRT FYRIR AUSTAN - Í dag verður sunnan strekkingur. Rigning og síðar skúrir en þurrt austan til á landinu. Hiti 5-12 stig. VEÐUR 4      JENS ÓLAFSSON Tók ástfóstri við jakka afa síns og alnafna tíska jól Í MIÐJU BLAÐSINS TILBÚNIR AÐ SLÁTRA AÐ HÆTTI ABRAHAMS Í gær var tíundi dagur Dihijja-mánaðar samkvæmt dagatali múslima en þá er venjan að slátra lömbum og skal viðhöfð aðferð Abrahams líkt og þegar hann fórnaði lambinu sem guð færði honum forðum daga og þakkaði honum þannig trúfestuna. Þetta getur reynst örðugt á Íslandi en þessir ellefu trúbræður fengu öll leyfi til að gera þetta líkt og hefð kveður á um í sláturhúsinu á Selfossi. Sjá síðu 22 Ágúst tekur við stelpunum Ágúst Björgvins- son var í gær ráðinn landsliðs- þjálfari kvenna í körfubolta. ÍÞRÓTTIR 66 FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R Á LAUGAVEGINUM Þó illa hafi viðrað að undanförnu lætur landinn það lítið á sig fá og leggur í verslunarleiðangur í mið- bæinn. Kaupmenn eru kampakátir með aðsóknina það sem af er desembermánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL Tveir unglings- drengir vopnaðir kylfum rændu verslun 10-11 í Grímsbæ við Bústaðaveg um klukkan átta í gærkvöldi. Þeir komust undan með peninga og tóbak en náðust skömmu síðar. Enginn slasaðist. Samkvæmt lögreglu vaknaði grunur um hverjir voru að verki þegar starfsfólk lýsti útliti ræningjanna, sem voru grímu- klæddir. Lögregluþjónar fóru heim til annars þeirra og fundu þar fyrir drengina og góssið. - sþs Verslun 10-11 í Grímsbæ: Kylfum beitt í vopnuðu ráni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.