Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 2
Samkeppniseftirlitið
(SE) hefur gert Eimskipafélaginu
hf. að greiða 310 milljónir í sekt
fyrir að hafa
misnotað gróf-
lega stöðu sína
á sjóflutninga-
markaði á árun-
um 2001 til
2002. Það er
langhæsta sekt
sem SE hefur
lagt á fyrirtæki
fyrir slíkt brot.
Brotin beind-
ust gegn Sam-
skipum og í tölvupóstssamskipt-
um sín á milli ræddu æðstu menn
Eimskips fjálglega um að gera
„árás“ á Samskip og setja það „á
hælana“. Í ákvörðun SE segir að
brot Eimskips séu mjög alvarleg
og Samskip hefðu líklega hrökkl-
ast af markaði hefðu áætlanir
Eimskips að fullu náð fram að
ganga.
Forsvarsmenn Eimskipafélags-
ins segja málið sér í raun óvið-
komandi og hafa áfrýjað. Eim-
skipafélagið sé í dag allt annað
fyrirtæki en það sem bar sama
nafn fyrir fimm árum og ábyrgðin
hafi flust annað eftir miklar skipu-
lags- og eignarhaldsbreytingar.
Rannsóknin hófst eftir kæru
Samskipa en Ásbjörn Gíslason,
forstjóri Samskipa, segist þó hissa
á alvarleika brotanna. „Við kvört-
uðum yfir óeðlilegum viðskipta-
háttum en við gerðum okkur raun-
verulega ekki grein fyrir því
hversu skipulögð og umfangsmikil
þessi aðför var að Samskipum og
frjálsri samkeppni í landinu.“
Hann segir að skoðað verði
hvort grundvöllur sé fyrir bóta-
kröfu á hendur Eimskipafélaginu.
Erla Ósk Arnardótt-
ir Lilliendahl íhugar nú málsókn á
hendur bandarískum stjórnvöld-
um vegna ómannúðlegrar með-
ferðar við komu hennar til New
York hinn 9. desember.
„Bandarískir lögfræðingar hafa
sett sig í samband við mig og boðið
mér að skoða málið. Við erum að
skoða þetta í rólegheitum,“ segir
Erla Ósk. Hún segir ekki langt að
bíða þess að hún taki endanlega
ákvörðun um málshöfðun.
Carol van Voorst, sendiherra
Bandaríkjanna, fór með bréf frá
heimavarnarráðuneyti Bandaríkj-
anna til ráðuneytisstjóra utanrík-
isráðuneytisins í gær.
Þar kemur fram að heimavarn-
arráðuneytið harmi atvikið, málið
hefði átt að meðhöndla á annan og
mildilegri hátt. Meðal annars af
þessu tilefni verði starfsreglur
ráðuneytisins vegna komu
erlendra farþega til Bandaríkj-
anna og um meðferð á fólki sem
bíður brottvísunar endurskoðaðar
og úrbóta leitað.
Undir bréfið ritar Stewart
Baker, aðstoðarráðherra í heima-
varnarráðuneytinu. Hann stendur
næstur Michael Chertoff, ráð-
herra heimavarna, að völdum í
málum tengdum stefnumörkun.
Erla fór til New York með vin-
konum sínum, en við komuna til
Bandaríkjanna var hún hneppt í
varðhald í um sólarhring og meðal
annars leidd í hlekkjum að land-
gangi flugvélar sem flutti hana úr
landi eftir brottvísun. Ástæðan
var sögð sú að fyrir 12 árum dvaldi
hún nokkrum vikum lengur í land-
inu en hún hafði heimild til.
„Mér líst vel á þessa niður-
stöðu,“ segir Erla Ósk. „Ég er
ánægð með að málið hafi verið
tekið föstum tökum, og að þetta
skuli leiða til þess að ef til vill
lendi ekki fleiri í svipuðum
aðstæðum.“
Erla Ósk segist líta á bréf heima-
varnarráðuneytisins sem afsökun-
arbeiðni, en þar viðurkenni þeir
þó ekki að mistök hafi verið gerð.
Hún ræddi við van Voorst vegna
málsins í gær. Hyggist Erla Ósk
fara aftur til Bandaríkjanna verð-
ur hún að fá vegabréfsáritun.
Íhugar málshöfðun
eftir niðurlægingu
Íslensk kona sem þola mátti niðurlægjandi meðferð við komuna til Bandaríkj-
anna nýverið hefur fengið afsökunarbeiðni bandarískra stjórnvalda. Þau segja að
starfsreglur verði endurskoðaðar í kjölfar atviksins en viðurkenna ekki mistök.
Árni, er þetta byggt á veikum
forsendum?
Reyndi að kafsigla Samskip
Eldur var borinn að
öllum þremur hæðum tóms húss
við Hverfisgötu á ellefta tíman-
um í gærmorgun. Slökkviliðið
segir öruggt að um íkveikju hafi
verið að ræða.
Greiðlega gekk að slökkva
þann litla eld sem logaði þegar
slökkviliðið bar að. Brennuvarg-
urinn hafði sópað saman rusli til
að brenna á öllum hæðum
hússins, að sögn varðstjóra
slökkviliðs.
Níels Pálmar Benediktsson,
framkvæmdastjóri fasteignafé-
lagsins Festa, sem á húsið, segir
að húsið hafi verið autt í rúma
tvo mánuði og bíði niðurrifs.
Borinn eldur að
þremur hæðum
26 ára karlmaður var
dæmdur í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær fyrir að hafa skilið
tvo ketti eftir á víðavangi.
Maðurinn þarf að greiða 40
þúsund króna sekt eða sæta
fjögurra daga fangelsisvist.
Í dómnum segir að maðurinn
hafi vanrækt að sjá köttunum
fyrir viðunandi vistarverum og
fullnægjandi fóðri, drykk og
umhirðu með því að skilja þá eftir
í lok febrúar eða byrjun mars við
hesthús á Hólmsheiði. Þar
fundust kettirnir 3. mars.
Skildi kisulórur
eftir á víðavangi
Fimm franskir
ríkisborgarar, sem Bandaríkjaher
hafði haft árum saman í haldi í
Guantanamo á Kúbu, voru í gær
sakfelldir af frönskum dómstól
fyrir þátttöku í hryðjuverkastarf-
semi.
Þeir þurfa þó ekki að afplána
neinn fangelsisdóm í Frakklandi.
Í gær voru enn fremur látnir
lausir þrír breskir ríkisborgarar,
sem hafa verið í haldi í Guant-
anamo árum saman. Samtals hafa
þá tólf breskir ríkisborgarar
verið látnir lausir, en enn eru
tveir eftir í Guantanamo.
Hlutu dóm
í Frakklandi
Eldur kom í gær
upp í Eisenhower-byggingunni,
stjórnsýsluhúsi sem er við hliðina
á Hvíta húsinu í Washington. Þar
hefur varaforseti Bandaríkjanna
aðstöðu.
Talið er að kviknað hafi í út frá
rafmagni. Það tók slökkvilið ekki
nema hálftíma að slökkva eldinn,
en nokkrar skemmdir urðu á
skrifstofum varaforsetans.
Dick Cheney varaforseti var þó
staddur í Hvíta húsinu, þar sem
hann hefur einnig skrifstofu. Hann
brá sér út fyrir ásamt George W.
Bush forseta til að þakka slökkvi-
liðinu fyrir vel unnin störf.
Bush þakkaði
slökkviliðinu
Vestræn börn senda
jólasveininum í Lapplandi langa
og nákvæma óskalista yfir rándýr
leikföng. Tónninn í bréfum sem
koma frá börnum í löndum austan
við Finnland er hins vegar annar.
Taina Ollila, aðalsveinka í
pósthúsi jólasveinsins, segir að
börn í austurvegi segi fyrst frá
sjálfum sér og fjölskyldu sinni,
óski jólasveininum langs lífs og
góðrar heilsu og síðan komi þau
með hófsamar óskir sínar.
Vestræn börn
vilja leikföng
Mikill verðmunur er
á einstökum vörum og verslunum
á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er
niðurstaða verðkönnunar sem ASÍ
gerði á neysluvörum sem vinsæl-
ar eru fyrir jólin.
Til dæmis kostar Fitty samloku-
brauð 289 krónur í Samkaupum en
122 krónur í Bónus. Munurinn er
um 137 prósent. Yfir 100 prósent
munur var á kílóverði á mandarín-
um sem er 119 krónur í Bónus en
239 krónur í Samkaupum. Í krón-
um talið var munurinn mestur 709
krónur, á SS birkireyktu hangi-
læri. Kílóverðið er 2.598 í Fjarðar-
kaupum en 1.889 í Krónunni og
Bónus.
Það vekur athygli að af 28 vörum
sem kannaðar voru í báðum versl-
unum reyndist verðmunur hjá
Bónus og Krónunni vera innan við
4 krónur í 23 tilfellum. Bónus var
með flestar vörurnar á lægsta
verði en Samkaup var oftast með
hæsta verðið.
Könnunin fór þannig fram að
starfsmenn ASÍ tíndu vörurnar í
körfu án þess að gera grein fyrir
því að um verðkönnun væri að
ræða þar til búið var að skanna
allar vörurnar og gefa upp verð.
Þá var óskað eftir því að fá verð-
strimla til að vinna úr en í tveimur
verslunum var því synjað. Það var
í verslunum Hagkaupa í Skeifunni
og Nóatúns við Hringbraut. Þær
verslanir voru því ekki með í
könnuninni.