Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 18
Schengen-svæðið svo-
nefnda stækkar á miðnætti í kvöld
úr 15 löndum í 24. Þar með færast
ytri landamæri svæðisins austur
að landamærum Rússlands, Hvíta-
Rússlands og Úkraínu, en hefð-
bundið landamæraeftirlit fellur
niður á innri landamærunum, svo
sem milli Póllands og Þýskalands.
„Næsta ótrúlegur hlutur hefur
gerst – á mörgum sviðum er Evr-
ópa að verða að einu ríki,“ sagði
Lech Walesa af þessu tilefni í sam-
tali við AP-fréttastofuna, en hann
er fyrrverandi forseti Póllands og
átti á níunda áratugnum virkan
þátt í að fella járntjaldið í hlut-
verki sínu sem leiðtogi verkalýðs-
hreyfingarinnar Samstöðu.
Til að búa sig undir þessi tíma-
mót hafa yfirvöld í fyrrverandi
austantjalds- og núverandi ESB-
löndunum í Mið- og Austur-Evrópu
lagt sig fram um að sýna og sanna
að þau séu því verkefni vaxin að
annast eftirlit á hinum nýju ytri
landamærum svæðisins. Síðan
þessi lönd – Eistland, Lettland, Lit-
háen, Pólland, Slóvakía, Ungverja-
land, Tékkland og Slóvenía – gengu
til liðs við Evrópusambandið árið
2004 hefur það varið umtalsverð-
um fjárhæðum í að styðja ríkin í
þessum undirbúningi, til kaupa á
fullkomnasta gæslubúnaði, þjálf-
un landamæravarða og svo fram-
vegis.
Þessi breyting hefur í för með
sér, að komist einhver óvelkominn
yfir hin nýju ytri landamæri – svo
sem eiturlyfjasmyglari eða hryðju-
verkamaður – getur hann ferðast
óhindrað alla leið til München eða
Madrídar. Þetta veldur hinni miklu
áherslu sem lögð er á að vel sé
staðið að eftirliti þar eystra.
„Þrýstingurinn er mikill,“ hefur
AP eftir Waldemar Skarbek, yfir-
manni landamæragæslusveitar
með bækistöðvar í austur-pólska
bænum Przemysl. „En Pólland er
reiðubúið; það er búið að koma
miklu í verk.“
Hið eina þeirra tíu ríkja, sem
gengu í ESB vorið 2004 sem að
eigin ósk gengur að sinni ekki til
liðs við Schengen-svæðið er Kýpur.
Það gerir hins vegar hitt Miðjarð-
arhafs-ESB-eyríkið Malta. Bið
verður á því enn um sinn að nýj-
ustu ESB-aðildarríkin Rúmenía og
Búlgaría fái aðild.
Til að bjarga norræna vega-
bréfasambandinu fengu bæði
Ísland og Noregur aðild að Scheng-
en árið 2001, um leið og hin Norð-
urlöndin sem eru í ESB.
Ferðafrelsis-
svæði Evrópu
stækkar
Aðild níu nýrra ríkja að Schengen-svæðinu gengur
í gildi á morgun. Þar með nær það frá Íslandi til
Karpatafjalla og Finnmörku til Gíbraltarsunds.
Starfsmenn land-
læknisembættisins eru að fara
yfir málefni hjúkrunar- og dval-
arheimilisins Kirkjuhvols á
Hvolsvelli vegna misklíðar sem
þar hefur komið upp milli starfs-
manna, að sögn Sigurðar Guð-
mundssonar landlæknis. Heimil-
inu hefur borist liðsauki frá
LSH.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að tveir sjúkraliðar væru
hættir störfum á Kirkjuhvoli og
einn hjúkrunarfræðingur sömu-
leiðis. Í fundargerð kemur fram
að sjúkraliðarnir hafi lýst bréf-
lega yfir til stjórnar heimilisins
að þeir treystu sér ekki til að
starfa undir
stjórn hjúkr-
unarfræð-
ingsins sem
hefði verið
ráðinn hjúkr-
unarforstjóri.
„Við erum
að meta þetta
mál,“ segir
Sigurður og
kveðst ekkert
geta sagt um
það hvenær
niðurstaðan liggi fyrir. „Þetta
tekur einhvern tíma. Við erum að
tala við fólk og erum að afla
okkur upplýsinga.“
Spurður um hvernig stofnunin
standi þegar svo margir faglærð-
ir eru hættir segir hann að sú
hætta sé alltaf fyrir hendi að
„misklíðin komi niður á þeim sem
síst skyldi, það er sjúklingum.
Eitt af okkar hlutverkum er að
fara ofan í saumana á málum þar
sem möguleikar eru á slíku en ég
er ekki að segja að það sé þannig
í þessu tilviki. Þetta er krítíska
spurningin en liðsauki hefur
fengist frá Landspítalanum.
Núna er starfsemin eins og hægt
er að ætlast til þannig að ekki er
uppi nein örvænting. Eigi að
síður er það áhyggjuefni þegar
svona gerist,“ segir hann.
Liðsauki hefur borist frá LSH
Framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins hefur hrósað
stjórnvöldum í Ungverjalandi
fyrir að vera fyrst
til að fullgilda
hinn nýja
Lissabon-sáttmála
sambandsins.
Hvatti hún hin
ESB-ríkin 26 til að
ganga rösklega
fram við að
fullgilda sáttmál-
ann svo hann geti
tekið gildi samkvæmt áætlun árið
2009.
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnarinnar, sagði
atkvæðagreiðsluna í ungverska
þinginu hafa snúist um „skilvirk-
ara, lýðræðislegra, gegnsærra og
sterkara Evrópusamband.“
Írar eru að óbreyttu eina ESB-
þjóðin sem mun greiða þjóðarat-
kvæði um fullgildinguna.
Ungverjar full-
gilda fyrstir
Norski dómsmálaráð-
herrann Knut Storberget telur að
fleiri lögreglumenn vanti í
borginni, að sögn norska ríkisút-
varpsins NRK, því að einungis
þeir hafi heimild til að sýna vald
sitt. Því hafa fleiri nemar verið
teknir inn í norska lögregluskól-
ann.
Í Osló eru nú um 6.500 öryggis-
verðir og hefur þeim fjölgað um
1.500 á þremur árum. Lögreglu-
mennirnir eru 1.680 talsins og
hefur aðeins fjölgað um 30. Í
norsku höfuðborginni eru því
næstum fjórir verðir fyrir hvern
lögreglumann.
Fjórir verðir á
hverja löggu
Pókermót eru fjár-
hættuspil og þar með ólögleg,
samkvæmt úrskurði landsréttar í
Danmörku. Rétturinn sneri við
úrskurði héraðsdóms, sem komst
að þeirri niðurstöðu í júlí að
póker snerist um hæfni og slík
mót væru því ekki fjárhættuspil.
Úrskurðinum hefur
verið áfrýjað til
hæstaréttar í Dan-
mörku.
Sveinn Andri
Sveinsson, hæsta-
réttarlögmaður og
talsmaður Póker-
sambands Íslands,
sagðist hafa frétt
af úrskurðinum
þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann. Niður-
staðan komi honum á óvart.
„Ég er ekki alveg með á hreinu
hversu lík lagaákvæðin eru hér
og í Danmörku, þannig að það er
ekki víst hvort þetta hafi áhrif á
mál vegna pókermóta hér á
landi,“ segir hann. „Ef
ákvæðin eru eins eða
mjög svipuð þá geta
menn notað þetta
sem hjálpargagn, en
úrskurðurinn hefur
ekki beinlínis for-
dæmisgildi.“
Ekki náðist í
Karl Inga Vil-
bergsson, full-
trúa lögreglu-
stjórans á
höfuðborgar-
svæðinu,
vegna málsins
í gær.