Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 24
24 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Samkeppniseftirlitið hef-
ur sektað Eimskipafélag
Íslands um 310 milljónir
króna fyrir að misnota
ráðandi stöðu sína á sjó-
flutningamarkaði á árunum
2001 til 2002. Forsvarsmenn
Eimskipafélagsins vísa
ábyrgðinni á brotunum frá
sér þar sem félagið sé í dag
allt annað fyrirtæki en það
sem bar sama nafn fyrir
fimm árum.
Samkeppniseftirlitið (SE) gerði
húsleit hjá Eimskipafélagi Íslands
4. september 2002 í kjölfar kæru
frá Samskipum. SE birti ákvörðun
sína í gær eftir rannsókn sem stað-
ið hefur í rúman hálfan áratug.
Niðurstaðan er að félaginu er gert
að greiða 310 milljónir í stjórn-
valdssekt, langhæstu upphæð sem
SE hefur lagt á fyrirtæki fyrir
sambærilegt brot.
Alvarleg lögbrot
Í ákvörðun SE segir að Eimskip
hafi gerst brotlegt við samkeppn-
islög með tvennum hætti. Annars
vegar hafi félagið með markviss-
um aðgerðum reynt að bola helsta
samkeppnisaðila sínum í sjóflutn-
ingum, Samskipum, út af mark-
aðnum. Hins vegar hafi það gert
fjölmarga svokallaða einkakaup-
samninga, og er þar átt við samn-
inga sem skuldbundu viðskipta-
vini til að skipta einungis við
Eimskip. Það er ólöglegt ef fyrir-
tæki hefur markaðsráðandi stöðu.
SE segir brotin hafa verið
„alvarleg og til þess fallin að valda
atvinnulífinu og almenningi miklu
samfélagslegu tjóni.“ Ljóst sé að
„hefðu áætlanir Eimskips að fullu
náð fram að ganga var veruleg
hætta á því að Samskip hefðu
hrökklast út af markaðnum.
Hælasetning og framhjáhald
Í ákvörðun SE er meðal annars
stuðst við tölvupóstsamskipti þar
sem æðstu menn Eimskipafélags-
ins ræða fjálglega um fyrirætlan-
ir sínar. Þar kemur fram að ákveð-
ið hafi verið að gera það sem
kallað er „árás“ gegn Samskipum.
Aðgerðirnar sem grípa átti til eru
þar kallaðar „markaðsatlaga“ og
rætt er um að nýta „mátt“ Eim-
skips í því skyni að setja Samskip
„á hælana“. Auk þess tilkynntu
þeir forsvarsmönnum viðskipta-
vina að einkakaupsamningar
kæmu í veg fyrir að unnt væri að
„halda framhjá“ Eimskipi.
Skipulagsbreytingar töfðu
Rannsókn málsins tafðist mjög og
á því eru ýmsar skýringar. Sú
veigamesta er að stórfelldar
skipulagsbreytingar urðu á Eim-
skipafélagi Íslands á upphafsár-
um rannsóknarinnar, sem kölluðu
á aukna gagnaöflun af hálfu SE.
Flutningastarfsemi þess var
færð undir dótturfélagið Eimskip
hf., sem varð Eimskipafélag Íslands
þegar móðurfélagið tók upp nafnið
Burðarás. Burðarás seldi síðan
Eimskipafélagið til Avion Group,
og var í kjölfarið skipt upp og sam-
einað annars vegar Landsbankan-
um og hins vegar Straumi. Avion og
dótturfélagið, Eimskipafélag
Íslands, sameinuðust undir nafni
48.102
0-19 ára 25-39 ára 45-59 ára 65 ára og eldri
Svona erum við
fréttir og fróðleikur
FRÉTTASKÝRING
STÍGUR HELGASON
stigur@frettabladid.is
Tvínefni
Einnefni
5.848
15.648 14.628
SJÓFLUTNINGAR Flóknar skipulagsbreytingar og eigendaskipti á Eimskipafélaginu gera það að verkum að ágreiningur er um hvar ábyrgð á brotunum liggur.
Hugðust setja Samskip „á hælana“
Sektin sem Eimskipafélaginu hefur verið gert að greiða, 310 milljónir, er
sú langhæsta sem Samkeppniseftirlitið hefur lagt á fyrirtæki vegna brota
á 11. grein samkeppnislaga um misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Sú
næsthæsta var lögð á Iceland Express í mars, 190 milljónir fyrir brot gegn
Icelandair, en áfrýjunarnefndin lækkaði þá sekt í 130 milljónir.
Olíufélögin voru sektuð fyrir samtals 2,6 milljarða á sínum tíma fyrir brot
á aðskilinni grein samkeppnislaga, sem kveður á um verðsamráð. Sú upp-
hæð lækkaði svo í 1,5 milljarð.
LANGHÆSTA SEKTIN
„Þessi niðurstaða kemur okkur á óvart,“ segir Heiðrún
Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eimskip. Félagið
hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjun-
arnefndar Samkeppniseftirlitsins. „Við erum ekki
sammála þessari niðurstöðu og höfum því ákveðið
að áfrýja,“ segir hún. Helstu rökin eru eru að hið nýja
Eimskipafélag beri ekki ábyrgð á brotunum vegna
breytinga á félaginu. Auk þess leiki vafi á að félagið
hafi verið í markaðsráðandi stöðu á tíma brotanna.
Heiðrún segir ámælisvert hversu langan tíma rann-
sóknin tók. Þá sé valinn sérkennilegur tími til að birta
ákvörðunina. „Við höfum fjögurra vikna áfrýjunarfrest.
Þetta tók þá fimm og hálft ár og þess vegna vekur það
athygli okkar að þeir birti þetta einmitt þegar hrina frídaga er að skella á.
Það styttir okkar tíma til að vinna að málsvörninni.“
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nær öruggt að áfrýjað verði til
dómstóla komist áfrýjunarnefndin að sömu niðurstöðu. Líklega fáist því ekki
endanleg niðurstaða í málið fyrr en eftir tvö til þrjú ár.
UNA EKKI NIÐURSTÖÐUNNI
Eimskipafélagsins og varð þannig
til Eimskipafélag Íslands í núver-
andi mynd.
Forsvarsmenn hins nýja Eim-
skipafélags hafa hafnað ábyrgð á
brotunum og vísað henni til félag-
anna sem að þeirra sögn yfirtóku
að endingu réttindi og skyldur
gamla Eimskipafélagsins, Lands-
bankans og Straums-Burðaráss.
Þar að auki er bent á að enginn af
þáverandi stjórnendum Eimskipa-
félagsins starfi enn hjá fyrirtæk-
inu. SE segir ábyrgðina hins vegar
liggja hjá hinu nýja Eimskipafé-
lagi, þar sem það reki sömu sjó-
flutningastarfsemi og rekin var í
nafni þess eldra, og skýrt sé að
Eimskip hf., dótturfélag gamla
Eimskipafélagsins, hafi tekið yfir
ábyrgðina á þeirri starfsemi.
Ágreiningur um markaðsstöðu
Einnig lagði Eimskipafélagið fram
álit hagfræðinganna Gylfa Magn-
ússonar og Friðriks Más Baldurs-
sonar þess efnis að félagið hefði
ekki haft markaðsráðandi stöðu og
því mátt gera einkakaupsamninga.
Þeim rökum hafnar SE. Markaður
málsins sé „farmflutningar í reglu-
bundnum áætlunarsiglingum milli
Íslands og hafna í Evrópu annars
vegar og Norður-Ameríku hins
vegar,“ auk þjónustu sem slíkum
siglingum fylgir. Þar hafi Eim-
skipafélagið haft mikla yfirburði,
eða 70 til 80 prósenta markaðs-
hlutdeild.
Í ákvörðun SE eru tafirnar sagð-
ar óhjákvæmilegar en óviðunandi,
og að vonast sé til að nýtilkomnar
breytingar á samkeppnislögum
muni framvegis hraða málsmeð-
ferð.
HEIÐRÚN
JÓNSDÓTTIR
Sífellt færist í vöxt að stjórnendur fyrirtækja
geri þá kröfu til starfsmanna að þeir hringi
bæði í yfirmann sinn og sérstakt skráningar-
fyrirtæki til að tilkynna veikindi sín og fjarveru
frá vinnu af þeim orsökum. Margir krefjast
þess að starfsmennirnir hringi daglega í yfir-
manninn. Verkalýðshreyfingin telur að semja
þurfi sérstaklega um þetta og vill taka það
fyrir í kjarasamningaviðræðunum.
Hvað segir í kjarasamningum um veik-
indatilkynningar?
Í kjarasamningum aðildarfélaga ASÍ segir að
tilkynna beri atvinnurekanda um veikindi
og hefur það verið skilið þannig að tilkynna
beri til næsta yfirmanns. Í Kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkur er skýrt kveðið á um þetta. Þar
segir: „Ef starfsmaður verður óvinnufær
vegna veikinda eða slyss, skal hann þegar
tilkynna það yfirmanni sínum sem ákveður
hvort læknisvottorðs skuli krafist og hvort
það skuli vera frá trúnaðarlækni hlutaðeig-
andi stofnunar.“
Þar segir jafnframt: „Skylt er starfsmanni
sem er óvinnufær vegna veikinda eða slyss
að gangast undir hverja þá venjulega og
viðurkennda læknisrannsókn sem trúnaðar-
læknir kann að telja nauðsynlega til þess að
skorið verði úr því hvort forföll séu lögmæt,
enda sé kostnaður vegna viðtals við lækni
og nauðsynlegra læknisrannsókna greidd af
vinnuveitanda.“
Hvað segir verkalýðshreyfingin?
Í sameiginlegri kröfugerð aðildarfélaga ASÍ
segir að þessi þróun kalli á meiri skýrleika
kjarasamninga og vísað til persónuverndar
starfsmanna. Starfsmanni sé ekki skylt að
gefa neinum upplýsingar um veikindi sín
nema það sem hann sjálfur kýs. Ef beðið sé
um læknisvottorð þá eigi starfsmaðurinn að
leita til þess læknis sem hann sjálfur treystir. Í
heildina sé um íþyngjandi frávik frá kjara-
samningi sé að ræða.
FBL-GREINING: STARFSMENN TILKYNNI VEIKINDI TIL YFIRMANNS OG SKRÁNINGARFYRIRTÆKIS
Kallar á meiri skýrleika kjarasamninga
Fjöldi einnefna og tvínefna í þjóðskrá
eftir aldri frá árinu 2004.
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
Vasaþjófar
stálu veski
úr hliðar-
tösku konu
í verslun
á Lauga-
veginum á
þriðjudag.
Hún varð
ekki vör við
þjófnaðinn.
Afar sjald-
gæft er að
vasaþjófnað-
ur sé stundaður hér á landi, þó
eitthvað sé um að töskur séu
hrifsaðar af fólki með valdi. Geir
Jón Þórisson er yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglu höfuðborg-
arsvæðisins.
Leikur grunur á því að erlend-
ir ríkisborgarar komi hingað
gagngert til að fremja glæpi?
Það hefur ekki verið sannað,
en það eru grunsemdir um
það. Það eru dæmi um menn
sem hafa verið teknir sem hafa
komið hingað til þess að stela,
en það hefur ekki verið sannað
nema í nokkrum tilvikum.
Hvernig er hægt að bregðast
við vasaþjófum?
Þetta virðist vera betur skipu-
lagður vasaþjófnaður en við
höfum upplifað hér í einhverj-
um mæli. Lögreglan bendir
fólki á að gæta að verðmætum
sínum og gæta þess að komast
ekki í þannig aðstöðu að það
sé þrengt að því og hægt að
komast að verðmætum, eða
vera með veski í rassvasa. Það
er ekki auðvelt fyrir lögregluna
að verða vitni að svona brotum,
og það verður að standa menn
að verki eða taka þá með þýfið
til að upplýsa svona mál.
SPURT & SVARAÐ
VASAÞJÓFAR HERJA Á LANDANN
Vel skipulagð-
ur þjófnaður
GEIR JÓN
ÞÓRISSON Yfirlög-
regluþjónn
Kryddin frá Pottagöldrum eru ómissandi í matreiðsluna
Ilmur af jólum