Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 30
30 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
15.300
1991 1995 2000 2003 2006
nám, fróðleikur og vísindi
18.100
22.000
21.600
26.100
„Af öllu listrænu starfi er
tónlistin sú listgrein sem
litlum börnum er aðgengi-
legust,“ segir Pétur Hafþór
Jónsson, tónmenntakennari
í Austurbæjarskóla, sem
hefur sérlega nýstárlegar
hugmyndir um hvernig
skólar ættu að nálgast
tónlistarkennslu en gildi
hennar segir hann hafa ver-
ið stórlega vanmetið.
Pétur hefur skrifað nýja námsbók
um efnið fyrir Námsgagnastofn-
un en með henni fylgja fjórir
geisladiskar þar sem saga tónlist-
arinnar er rakin allt frá Vestur-
Afríku, Ameríku og Evrópu. Titill
bókarinnar, Hljóðspor, hæfir efn-
inu því vel.
„Tónlist og fagið tónmennt er
stórlega vanmetinn þáttur í skóla-
starfi. Margir foreldrar einblína
bara á árangur barna sinna í
stærðfræði og ensku sem og færni
þeirra á tölvur,“ segir hann.
Þá bendir Pétur á að í listum
tjái fólk veruleikann með táknum.
Raunveruleikanum sé ekki komið
til skila á nákvæman og áþreifan-
legan hátt. Svipað og gerist í leik
barna. Þar sé veruleikinn ekki
endursagður með orðum. Þess í
stað er farið í gegnum ýmis skap-
andi ferli sem hjálpa barninu að
lesa úr raunveruleikanum eins og
hann kemur því fyrir sjónir.
„Þeim mun fleiri tjáningarform
sem börnum eru töm því fleiri
möguleika hafa þau til að vinna úr
og hafa stjórn á hugsunum sínum
og hugmyndum. Tónlistin veitir
þeim tækifæri til að tjá tilfinning-
Tónlist mismunar ek
þótt tungumálið ger
TÓNLIST ER STÓRLEGA VANMETIN Pétur Hafþór segir tónlist fólki afar mikilvæg þótt
tónlistarkennsla sé oft vanmetin námsgrein. Efla þurfi tónlistarkennslu í samfélaginu
enda sé lítils að byggja stórt tónlistarhús ef fólk hefur ekki lært að meta það sem
fram fer í því. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Út er komin bókin Fjölmenning á Íslandi þar sem fjallað er um ýmsa þætti
fjölmenningarsamfélagsins að því er greint er frá á vef KHÍ. Bókin er ætluð
kennaranemum og öðrum háskólanemum, fræðimönnum, kennurum á öllum
skólastigum og stefnumótendum. Ritstjórar eru Hanna Ragnarsdóttir, dósent
við KHÍ, Elsa Sigríður Jónsdóttir, lektor við KHÍ, og Magnús Þorkell Bernharðs-
son, dósent við Williams College.
Helstu efnisþættir eru þróun fjölmenningarlegs samfélags og skólasam-
félags, straumar og stefnur í fjölmenningarfræðum, tvítyngi og móðurmál,
íslenska sem annað mál, staðalímyndir og fordómar, sjálfsmynd, menning og
trúarbrögð, menningarlæsi og íslenskar rannsóknir, meðal annars á stöðu og
reynslu barna og fullorðinna í fjölmenningarsamfélagi.
■ Útgáfa
Fjölmenning á Íslandi
Út er komin bók með greinum eftir Þór
Magnússon, Á minjaslóð. Safn ritgerða og
ljósmynda.
Greinarnar eru frá löngum starfsferli
Þórs og spanna efni sem tengist silfur- og
gullsmíði, fornleifum, byggingarsögu,
útskurði, þjóðháttum, bókbandi, minning-
armörkum og sagnaþáttum. Sýnishorn úr
merku ljósmyndasafni Þórs, sem varðveitt
er í Þjóðminjasafni Íslands, er einnig birt í
bókinni, ásamt heildarritaskrá hans, skrifum
frá tímabilinu 1959-2007.
Þjóðminjasafnið gaf bókina út í tilefni af
sjötugsafmæli Þórs þann 18. nóvember síð-
astliðinn en hann gegndi starfi þjóðminja-
varðar á árunum 1968-2000.
■ Þjóðminjasafn Íslands
Gefur út rit til heiðurs Þór Magnússyni
Tímaritið Saga er komið út og er að vanda
fullt af spennandi efni. Eru öll gömul hús
merkileg? Voru stjórnvöld viðbúin kjarn-
orkuárás á Ísland á 6. og 7. áratugnum?
Hefði Fjölnismaðurinn Tómas Sæmundsson
orðið forystumaður íslenskra íhaldsmanna
ef honum hefði enst aldur? Er Landnáms-
sýningin Reykjavík 871 ±2 raunveruleika-
þáttur úr fortíðinni? Var frillulíf viðurkennt
sambúðarform á miðöldum? Hvað getur
íslenskt safnafólk lært af kollegum sínum
í Skotlandi? Hver fann upp fjósið? Í hverju
fólst gagnrýni á þingræðið á árunum milli
stríða? Hver var þekking Íslendinga á Rúss-
landi á 19. öld? Þetta eru aðeins nokkrar
þeirra fjölmörgu spurninga sem höfundar
efnis í hausthefti Sögu glíma við. Ritstjórar
eru Eggert Þór Bernharðsson og Páll Björnsson.
■ Sögufélagið
Tímaritið Saga komið út
Svona erum við
> Fjöldi sérmenntaðs starfsfólks á Íslandi
Soffía Sveinsdóttir, meistaranemi í
mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands og
veðurfréttamaður á Stöð 2, er bæði með
BS og MS gráðu í efnafræði frá Háskóla
Íslands. Hún segist alltaf hafa haft áhuga á
stærðfræði en vissi varla hvað efnafræði var
þegar hún byrjaði í framhaldsskóla.
„Ég ætlaði að verða blaðamaður og
var á félagsfræðibraut í FSu. Ég var hins
vegar alltaf góð í stærðfræði og á þriðju
önn tók ég efnafræði 103 og heillaðist af
faginu. Eftir útskrift var ég að pæla í að
læra íslensku eða efnafræði en það síðara
varð fyrir valinu.“ Soffía segir að sér finnist
efnisheimurinn heillandi, að milljónir efna
skuli vera til úr örfáum frumefnum. „Það
er magnað. Síðan hef ég líka gaman af
efnafræði í daglegu lífi, matvælaefnafræði
og næringarfræði.“ Soffía segir námið hafa
nýst sér vel. Hún lauk að auki kennslu-
réttindum frá HÍ árið 2004 og hefur kennt
efnafræði við Menntaskólann við Hamra-
hlíð síðan 2003.
Soffía hefur einnig mikinn áhuga á
stjórnun og ákvað þess vegna að taka
meistarapróf í mannauðsstjórnun. „Mig
langaði að víkka sjóndeildarhringinn. Ég
útskrifast í febrúar næstkomandi og býst við
að halda áfram að kenna. Ég hef reynt að
tengja mannauðsstjórnina eins mikið og ég
get við kennslu á framhaldsskólastigi. Það
nám mun því líklega nýtast mér strax í starfi
en ég bý líka að því til framtíðar; ég gæti
til dæmis hugsað mér að fara út í einhvers
konar stjórnun annaðhvort innan mennta-
geirans eða annars staðar.“
NEMANDINN SOFFÍA SVEINSDÓTTIR, EFNAFRÆÐINGUR OG NEMI Í MANNAUÐSSTJÓRNUN
Heillaðist af efnisheiminum í fjölbraut