Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 41

Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 41
FIMMTUDAGUR 20. desember 2007 3 Í verslunum þar sem verðið er hóflegt eru jólin mikil vertíð og því mikið um dýrðir. Vandamálið er hins vegar að útsölur eru á næsta leiti og því þarf að finna ákveðið jafnvægi í innkaupum fyrir veturinn til þess að ekki sé alltof mikið af vetrarfötum sem liggur eftir þegar jólaverslun- inni linnir. Í fínu tískuhúsunum er þessu ekki eins farið. Þar er vetrartískan nú þegar að syngja sitt síðasta. Góðu viðskiptavinirnir koma í september og október til að fata sig upp og lítið er eftir af stærðum, í það minnsta af því sem vinsælt er. Bestu viðskiptavinunum er gjarnan boðið á einkaútsölur í kringum jól, ekki verra ef það er fyrir jól til þess að kaupa jólagjafir en þessar útsölur eru bannaðar þar sem allir viðskipta- vinir eiga að hafa jafna möguleika á því að versla á útsölum. Því er mikið pukur í kringum þessar svokölluðu einkaútsölur. Svo eru það þeir heppnustu sem komast á „pressu-útsölu“. Það eru sérstakar útsölur á varningi sem hefur verið notaður í myndatökur og lánaður til blaða og tímarita. Þangað er blaðamönnum boðið, blaða- mönnum sem að öllu jöfnu njóta þrjátíu pró- senta afsláttar allt árið hjá tískuhúsunum og eiga svo að skrifa hlutlaust um tískuna! Spurn- ing hvort ekki sé hægt að segja að tískublaða- mönnum sé mútað. En svo eru þeir sem ekki vilja gamlar lummur fyrir jólin og eru boðnir í fín samsæti um hátíð- ir. Fyrir þá er „siglingatískan“ (croisière) alveg fyrirtak. Þessi tíska sem var fundin upp á fyrri hluta tuttugustu aldar – á árunum ´20-´30 – fyrir hefðarfrúr sem vissu ekki hvað þær áttu að nota þegar þær fóru í siglingar til heitra landa á lysti- snekkjum í svartasta skammdeginu. Dálítið eins og sumartíska um hávetur en um leið flott og skrautleg. Þessi lína er því tilvalin fyrir hátíðarnar sem eru fram undan með veislum og kampavínsboðum. Um leið boðar hún vor- og sumartískuna sem er á næsta leiti. Siglingatískan er því það sem er heitast hjá fínu tískuhúsunum um þessar mundir og sum þeirra bjóða jafnvel upp á tískusýningar til að kynna hana. Þetta á til dæmis við um Chanel sem kynnti á dögunum „cruise-línuna“ í Lund- únum. Karl Lagerfeld var í þetta skipti undir áhrifum frá Amy Winehouse (sem mætti ekki) og fyrirsæturnar allar með hina frægu heysátu- greiðslu hennar á höfðinu. Fötin voru einnig í anda sjötta áratugarins, skreytt ullargrifflum og leðurstígvélum með eins konar leðurlegghlíf- um líkt og hjá hermönnum áður fyrr. Ekki bein- línis neinar byltingar í gangi hjá Lagerfeld enda ekki mjög frumlegur um þessar mundir. Spurn- ing hvort uppspretturnar séu nú þurrausnar. Ég vona að þið eigið öll gleði- og friðarjól. bergb75@free.fr Siglingatíska fyrir kampavínsboð hátíðanna Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Festina-Candino Watch Ltd candino.com a company of the Festina Group TIMING YOUR OWN CHALLENGE Xenia Tchoumitcheva Candino swissnesk gæðaúr fást hjá úrsmiðum! undirfatnaður og náttfatnaður í miklu úrvali Gefðu glæsilega gjöf Olympía Mjódd Reykjavík Olympia Glerártorgi Akureyri olympia.is P IP A R • S ÍA • 6 0 3 3 5 Þægilegur, saumlaus og fallegur fatnaður. S. Gunnbjörnsson ehf. Nýtt á Íslandi! NO STRESS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.