Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 66

Fréttablaðið - 20.12.2007, Síða 66
54 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR Vinátta, ást, afbrýðisemi, öfund, hatur og morð – þetta er sígilt inn- tak bókmennta, þar á meðal Njálu... sem Þórunn Erlu-Valdi- marsdóttir spinnur eftir í Kalt er annars blóð: þar með geta Njálu- stúdíósar skemmt sér við saman- burðinn, skoðað nútímaútfærslu Þórunnar og spáð í hliðstæður, hvort þeir séu sammála hennar útleggingum eða hefðu gert öðru- vísi. Mér fannst makalaust gaman að lesa mig fram á hliðstæður við þekkta snilldarparta Njálu eins og þegar Halla er kynnt til sögunnar, álög Gunillu og lát Gunnars. Er augljósasta nútímaútgáfa Gunnars kókaínsniffandi selló- leikari á niðurleið – og Hallgerðar fyrirsæta sem er að falla á aldri? Það finnst mér eiginlega ekki, ef beint er spurt – finnst nú meira spunnið í Hallgerði dóttur Njálu- höfundar en svo – en í útgáfu Þór- unnar lúta persónurnar lögmálum hennar sögu og þar gengur þetta öldungis ágætlega upp. Undirtitillinn, „skáldsaga um glæp“, beinir sögunni inn á kjör- lendur íslenskra bókmennta þessi árin, glæpasögur – þar sem bæði gamalreyndir krimmahöfundar og nýhöfundar leggja í púkkið. Læmingjahugur Íslendinga þarf ekki að koma á óvart, sbr. fóta- nuddtækin um árið – og þó: það tekur tíma að skrifa bók, enga stunda að kaupa dót sem aðrir mæla með. En glæpasögur eru auðvitað stór grein í bókabúskap heimsins og útflutningur á þessu sviði hefur gengið stórvel. Það er þó snöggtum meira af andagift og snilldartöktum í bók Þórunnar en gerist og gengur um glæpasögur. Ég er enginn lófa les- ari slíkra bóka, hef varla opnað glæpasögu síðan ég las Simenon og Agöthu Christie fyrir margt löngu en hef þó lesið Ég heiti Rauður eftir Orhan Pamuk sem er líkt og bók Þórunnar fremur skáld- saga um glæp en venjuleg glæpa- saga. Í báðum er stjörnuflug í stíln- um, slett úr klaufunum í ýmsar áttir – morðinginn talar/kemur fram í báðum bókum án þess að við vitum hver hann er, dýr tala og báðar sögur skiptast í marga stutta kafla þar sem er fylgst með mörgum persónum í margslung- inni sögu. Þórunn vísar til annars höfundar, Peter D. Deutermann, með því að láta Leó lesa Cat Danc- ers – hef ekki lesið þá bók en sýn- ist af lýsingum að sú bók byrji á líkan hátt. Andagift Þórunnar lýsir sér meðal annars í mörgum stórsnið- ugum lýsingum. Þegar flugvél tekur dýfur „verða hjörtun eftir ofan við vinstri öxl. Eru í teygju, sem betur fer, og skríða inn í brjóstkassann aftur, sjúskuð og rugluð eins og maginn.“ (Bls. 167). „Klukkuverkið í (Höllu) er stillt á andstyggð þegar hún er í sam- keppnisham.“ (Bls. 192-3). Lýsing- arnar á því þegar gengið er í skrokk, í orðsins fyllstu merkingu, á líki Ödda og yfirleitt viðskipti við lík og skrokka eru, hmm, kjöt- legar og sláandi vel skrifaðar. Almennt er ekki flæði í textanum, hann er að mestu í stuttum setn- ingum og yfirbragðið því í stacc- ato – auðvitað stílbragð en ég varð ögn þreytt á því á köflum. Morðingjar eru sem betur fer iðulega of vitlausir og/eða tauga- spenntir til að fremja hinn full- komna glæp og/eða löggan of klár og tæknivædd. Það er heldur ekk- ert auðvelt að fremja hinn full- komna bókmenntaglæp. Sam- kvæmt krufningunni sem lesendur eru viðstaddir er Öddi skotinn aftan frá en ég fæ það ekki alveg til að ganga upp í lýsingum á morð- inu í 15. og 54. kafla, sama er með gerandann – fæ mig þó ekki til að kryfja það nánar hér til að spilla ekki lesningunni fyrir þeim sem hafa ekki lesið bókina. Hluti af plottun glæpasagna er hver veit hvað og hvenær og hvað afhjúpast hvenær. Það er firna snjallt þegar Ása sér samlíkingu milli Hrúts í Njálu og nafna hans í hennar veruleika en að sama skapi erfitt að skilja af hverju hún hug- leiðir ekki frekari hliðstæður mál- anna síðar þegar hún er á kafi í málinu með ástmanni sínum. Eitt er að Ása detti ofan á líkið en ögn strekktara að hausinn finnist líka. En kannski er allt í lagi að allt gangi ekki upp – svo margt annað í gangi hér en „hver-gerði-það“ mál: saga um ástir og ástleysi, svipmyndir af Reykjavíkurlífi samtímans, krufning á samskipta- og kynhegðun kynjanna. Fyrst lesandinn er leiddur svo skemmtilega út í að hugleiða Njálu er erfitt að komast hjá að velta fyrir sér persónum Þórunnar í því samhengi. Það er kannski ómak- legur samanburður – Njála er fræg fyrir ótrúlega skarpar og meitlaðar persónulýsingar – en í persónum Þórunnar er grunnt á klisjunum sem er kannski með vilja þó mér þyki það ekki lukkað, aldurseinkenni grautarleg og per- sónurnar óskýrar og ekki sérlega sannfærandi, til dæmis Gunnar. Opinskáar síhugsanir um kynlíf einkenna flestar persónurnar, ekki fjarri lagi þegar Njála er annars vegar þó nútímalesendum sé það að hluta hulið. En bók Þórunnar er ekki aðeins drifin áfram af per- sónum heldur vel heppnuðum lýs- ingum, útúrdúrum og athuga- semdum – í mörgum lögum, algjör randalína, sem mér finnst spenn- andi. Og já, í heimi þessarar skáld- sögu hefur Séð og heyrt greinilega skákað Njálu – sem er auðvitað rok hnyttið! Sigrún Davíðsdóttir Úr Njálu í Séð og heyrt BÓKMENNTIR Kalt er annars blóð Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir ★★★★ Saga í mörgum lögum – algjör randalína ÞÓRUNN ERLU-VALDIMARSDÓTTIR Gefum góðar stundir Gjafakort í Þjóðleikhúsið er frábær jólagjöf fyrir alla fjölskylduna! ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 www.leikhusid.is Gjafakort fyrir tvo á Skilaboðaskjóðuna og geisladiskur á kr. 5.500 Jólatilboð 7. og 8. des uppselt 30. des LA TRAVIATA GIUSEPPE VERDI Frumsýning 8. febrúar 2008 GJAFAKORT á eina ástsælustu óperu allra tíma www.opera.is – Miðasala 511 4200 Jólagjöf sem jafn gaman er að gefa og þiggja:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.