Fréttablaðið - 20.12.2007, Blaðsíða 76
64 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
7
16
7
14
12
16
14
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
RUN FATBOY RUN kl. 8 - 10
SAW 4 kl. 8 - 10
16
16
14
14
RUN FATBOY RUN kl.5.50 - 8 - 10.10
SAW 4 kl. 8 - 10.10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl.5.45 - 8 - 10.15
DAN IN REAL LIFE kl.5.45
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.6 - 9
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 - 8 ÍSL. TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR LÚXUS kl. 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
BEE MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 4 - 6 - 8 - 10
HITMAN kl. 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 10
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 6 - 8 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6 - 8 - 10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl. 5.45 - 8 - 10.15
ACROSS THE UNIVERSE kl. 8 - 10.40
RENDITION kl. 10
VEÐRAMÓT ALLRA SÍÐASTA SÝNING kl. 5.40
5%
5% 5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
HLAUPTU FITUBOLLA,
HLAUPTU
Nú verður allt vitlaust!
Stórskemmtileg gamanmynd
fyrir alla fjölskylduna
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
- bara lúxus
Sími: 553 2075
RUN FATBOY RUN kl. 4, 6, 8 og 10 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
SAW IV kl. 8 og 10 16
BEE MOVIE - ÍSL TAL kl. 4 og 6 L
HITMAN kl. 8 og 10 16
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
„Flauelsmjúk og þægileg” - Dóri DNA, DV
S.V., MBL
Rapparinn Sesar A efnir til rapp-
veislu á Gauki á Stöng á föstudag í
tilefni af útgáfu þriðju sólóplötu
sinnar, Of gott... Á meðal gesta verð-
ur hinn margverðlaunaði DJ Static
frá Danmörku, Diva de la Rosa úr
Sometime, Dóri DNA og 7Berg.
Tónleikaviðburðurinn Fullorðins
verður einnig haldinn í fyrsta sinn á
höfuðborgarsvæðinu þar sem tón-
list XXX Rottweiler, Sesars A og
Intró úr Forgotten Lores rennur
saman í eitt. „Þetta er tilraun sem
ég er að reyna að hnoða saman og er
eitthvað sem fer væntanlega í gagn-
ið á næsta ári. Ég er búinn að vera
úti í fjögur ár og búinn að vinna
með níu manns frá átta löndum með
hljómsveitinni IFS. Þetta er tilraun
til að brjóta upp þetta hefðbundna
rapptónlistarform. Mér finnst mest
spennandi að auka vægi plötusnúðs-
ins í þessu því hann vill oft gleym-
ast.“
Hann segist lengi hafa haft
mætur á DJ Static og ákvað að
hringja í hann og fá hann til að spila
hér á landi. „Hann er búinn að fá
góð viðbrögð við því sem hann
hefur verið að gera og nýtur mikill-
ar virðingar á meðal plötusnúða og
þeirra sem til þekkja.“
Sesar lofar skemmtilegum tón-
leikum í kvöld. „Það fer allt púðrið í
þessa tónleika. Platan er að koma út
frekar seint og ég er með mynd-
bönd sem ég hef ekki sett í birtingu.
Þetta ferli hefur verið svolítið langt
þannig að við eigum örugglega eftir
að sprengja Gaukinn og gera allt
vitlaust.“
Gaukurinn opnar klukkan 21 og
tónleikarnir byrja stundvíslega kl
22.30. Aðgangseyrir er 1.500 krónur
og fylgir platan Of gott … með í
kaupunum. - fb
Sesar A efnir til rappveislu
SESAR A Rapparinn knái efnir til rapp-
veislu á Gauki á Stöng í kvöld.
Meistari Megas hefur selt um níu þúsund
eintök af plötum sínum á þessu ári, sem
er vafalítið besti árangur hans til þessa.
Platan Frágangur hefur selst í tæpum 3.900
eintökum.
„Það verða tíu þúsund platna jól,“ syngur Megas í
laginu (Minnst tíu milljón) Flóabitanótt á Frágangi
og svo virðist sem honum ætli að verða að ósk sinni
ef fram heldur sem horfir. Auk hins góða gengis
Frágangs, sem kom út í sumar, hafa um 2.800 eintök
selst af Holdi er mold sem kom út þremur mánuðum
síðar. Þar fyrir utan hafa yfir tvö þúsund eintök
selst af endurútgefnum plötum Megasar á árinu.
Plötur Megasar seljast venjulega í um tvö þúsund
eintökum og því kemur þessi góði árangur Frágangs
og Holds er mold, sem Megas tók upp um með
Senuþjófunum, verulega á óvart.
Afgerandi árangur
„Það er sérstakt að listamaður með 35 ára útgáfu-
sögu sé að ná svona afgerandi sterkum árangri eins
og Megas hefur náð á þessu ári,“ segir Eiður Arnars-
son, útgáfustjóri Skífunnar, sem átti alls ekki von á
þessum sölutölum í byrjun ársins. „Eftir að Frá-
gangur kom út og maður heyrði plötuna þá kemur
þetta ekkert stórkostlega
á óvart. Að sama skapi
kemur það ekkert á óvart
að Hold er mold er
þúsund eintökum á eftir
því hún er fyrst og fremst
þyngri. Frágangur er
léttari plata og þess fyrir
utan má segja að rýmið
fyrir Megas á markaðnum
var meira í sumar en í
haust. Hann naut ein-
stakrar velvildar í
fjölmiðlum og það voru allir tilbúnir að flykkjast á
bak við hann. Það er erfitt að endurtaka það þremur
mánuðum síðar,“ segir Eiður.
Ein sú söluhæsta
Frágangur er orðin þriðja til fjórða söluhæsta plata
Megasar frá upphafi. Söluhæsta plata hans er
Loftmynd sem kom út 1987 sem hefur selst í sjö til
átta þúsund eintökum. Næst á eftir henni kemur Í
góðri trú sem kom út 1986 og hefur selst í fimm til
sex þúsundum. Á eftir þeim koma Frágangur og Í
bleikum náttkjólum, sem Megas gerði með Spilverki
þjóðanna árið 1977, með álíka mörg seld eintök.
freyr@frettabladid.is
Metár hjá meistara Megasi
MEGAS
Tónlistarmaðurinn
Megas hitti rækilega í
mark með plötu sinni
Frágangur.
FRÁGANGUR Frágangur er
orðin ein söluhæsta plata
Megasar frá upphafi.