Fréttablaðið - 20.12.2007, Qupperneq 78
66 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum hefur Hlynur Sigmarsson,
stjórnarmaður hjá HSÍ, fengið umboð frá þýska úrvalsdeildarfélaginu
Flensburg til að halda leik félagsins gegn Gummersbach í þýsku
úrvalsdeildinni hér á landi. Leikurinn mun fara fram hinn 2. febrúar
næstkomandi og eigi draumur Hlyns að verða að raunveruleika þarf
hann sárlega stuðning fyrirtækja eða fjársterkra aðila.
Hlynur fær ekki mikinn tíma til viðbótar í að ganga frá fjár-
hagslegu hliðinni en staðan er ekki björt í augnablikinu
þar sem Hlyni hefur ekki gengið sem skyldi að finna
stóra styrktaraðila.
„Þeir aðilar sem ég hef þegar rætt við eru ekki
eins spenntir fyrir þessu dæmi og ég er. Það er miður
og staðreyndin er sú að ég fæ ekki mikinn tíma í
viðbót til þess að ganga frá þessu. Ég þarf að gefa
Flensburg einhver svör fljótlega,“ sagði Hlynur en það
kostar sitt að flytja slíkan stórleik hingað til lands.
„Ég þarf að borga Flensburg 22 milljónir fyrir leikinn og
svo þarf að borga flugið fyrir mannskapinn sem kost-
ar svona 7 milljónir. Þess utan er kostnaður við leigu
á íþróttahúsi og ef ég til að mynda fer með leikinn í
Egilshöll þá er kostnaður við hvert sæti 1.000 krónur að
lágmarki. Svo á eftir að koma upp klukku, leggja gólf,
fá starfsfólk og fleira þannig að kostnaðurinn er mjög
mikill en ekki það mikill að þetta sé ekki hægt með góðri
aðstoð, til að mynda stórfyrirtækis.“
Um er að ræða stórleik i þýska boltanum enda
hér á ferðinni tvö af betri liðum deildarinnar og
með liðunum leika íslenskir landsliðsmenn.
Einar Hólmgeirsson og Alexander Peterson
spila með Flensburg en Guðjón Valur Sigurðs-
son, Róbert Gunnarsson og Sverre Jakobsson
með Gummersbach en liðið þjálfar síðan
Alfreð Gíslason.
Hlynur segist verða á ferðinni einhverja
næsta daga í leit að stuðningi og vonast
eftir góðum móttökum. „Annars verður
ekkert af þessu og það væri miður enda um
sannkallaðan stórviðburð að ræða.“
HLYNUR SIGMARSSON: REYNIR ÁKAFT AÐ SAFNA FÉ FYRIR LEIK FLENSBURG OG GUMMERSBACH
Hlyni gengur illa að finna styrktaraðila
KÖRFUBOLTI Körfuknattleikssam-
bandið samdi við A-landsliðsþjálf-
ara sína í gær. Ágúst Björgvinsson
verður nýr landsliðsþjálfari
kvenna í körfubolta en Sigurður
Ingimundarson, sem hefur þjálfað
karlaliðið frá árinu 2004, heldur
áfram með liðið næstu tvö ár.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi í gær að Körfuknattleiks-
sambandið ætlar sér að færa
landsliðsstarfið upp á hærra plan.
Hannes Jónsson, formaður KKÍ,
segir drauminn að komast með
bæði karla- og kvennaliðið upp í
A-deild Evrópukeppninnar og nýr
styrktarsamningur við Skeljung
hefur gefið sambandinu tækifæri
á að yfirfara mál landsliðanna.
Sigurður Ingimundarson gerði
frábæra hluti í sumar með karla-
landsliðið, sem vann þá Smáþjóða-
leikana í fyrsta sinn í fjórtán ár og
endaði Evrópukeppnina á þremur
sigurleikjum í röð.
„Þetta sumar segir mér það að
liðið sé á réttri leið. Það er alveg
klárt að við erum með gott lið og
það er alveg framkvæmanlegt að
komast upp í A-deildina,“ segir
Sigurður en verkefnið er erfitt.
„Við erum að keppa í tvö ár í
þessari keppni og annaðhvort
verðum við meðal 24 bestu þjóða í
Evrópu eða mistekst. Ég held að
við höfum sýnt það að við eigum
erindi í þessa Evrópukeppni og
rúmlega það,“ segir Sigurður.
„Uppistaðan í liðinu er ungir
leikmenn sem eru að komast á
fínan aldur. Þeir hafa farið frá því
að vera ungir og efnilegir í það að
vera góðir leikmenn í dag. Þeir
vita líka betur út í hvað þeir eru að
fara. Ég sé fyrir mér mikla sam-
keppni um að komast í hópinn og
við munum að sjálfsögðu nota
marga menn og vera með nokkuð
stóran hóp til þess að finna réttu
blönduna,“ segir Sigurður, sem
getur vel hugsað sér að þjálfa
Keflavíkurliðið áfram.
„Þetta eru tvær ólíkar ákvarð-
anir og allir sem þjálfa landslið í
dag eru félagsþjálfarar og verða
eigilega að vera það. Þú nærð ekk-
ert að vera á tánum með því að
þjálfa bara landslið í tvo til þrjá
mánuði,“ segir Sigurður.
Þekkir vel til hjá stelpunum
Ágúst Björgvinsson þekkir vel
til kvennaboltans. Hann náði frá-
bærum árangri með Haukaliðið,
vann níu titla með því á síðustu
þremur árum, og þá hefur hann
þjálfað margar stelpurnar í ungl-
ingalandsliðinu undanfarin ár.
„Það er mjög spennandi að fá að
þjálfa íslenska landsliðið. Það
hefur verið eitt af mínum mark-
miðum að þjálfa A-landslið Íslands
og þetta er því frábær áfangi fyrir
mig,“ segir Ágúst, sem vonast til
að sem flestir af eldri og reyndari
leikmönnunum gefi kost á sér.
„Mitt fyrsta markmið með liðið
er að stilla saman sterkasta liðinu
og ég vonast til þess að allar séu
tilbúnar að leggja á sig það sem
þarf til að ná árangri. Ég veit að
það vilja allir vinna en það eru
ekki allir tilbúnir að leggja það á
sig sem þarf til þess að vinna,“
segir Ágúst, sem veit að liðsins
bíða erfiðir leikir.
„Það væri mjög flott markmið
til þess að byrja með að vinna
heimaleikina og sjá síðan til hvað
við getum gert í útileikjunum. Ég
held að þetta séu allt þjóðir sem
við eigum alveg að geta unnið á
góðum degi. Það er engin þjóð sem
við eigum enga möguleika í en ég
veit að þarna eru þjóðir sem eru
sterkar og við þurfum að eiga
góðan dag til þess að vinna þær.
Við erum ekki stór þjóð í kvenna-
körfunni en í framför ef við tökum
mið af þeim úrslitum sem við
höfum náð í yngri landsliðunum.
Ég veit að ef ég næ að þjappa lið-
inu saman geta ótrúlegustu hluti
gerst,“ segir Ágúst, sem ætlar að
láta liðið æfa meira en það hefur
gert undanfarin ár.
ooj@frettabladid.is
Nýr landsliðsþjálfari hjá konunum
Körfuknattleikssambandið samdi við A-landsliðsþjálfara karla og kvenna í gær. Sigurður Ingimundarson,
þjálfari karlaliðsins, framlengdi um tvö ár en Ágúst Björgvinsson þjálfar kvennaliðið næstu fjögur árin.
VELKOMNIR Hannes Jónsson, formaður KKÍ, óskar þeim Ágústi Björgvinssyni og Sigurði Ingimundarsyni til hamingju með nýja
starfið en þeir þjálfa A-landsliðin næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
BADMINTON Ragna Ingólfsdóttir tryggði sér
sæti í átta liða úrslitum á alþjóðlega badmin-
tonmótinu Hellas Victor International í gær
þegar hún vann þýsku stúlkuna Carolu Bott.
Ragna byrjaði leikinn illa og tapaði fyrstu lot-
unni 15-21 en sigraði næstu tvær örugglega
21-11 og 21-10.
„Ég var svo stressuð í fyrstu lotu að ég náði
ekki að spila minn leik og tapaði. Síðan náði ég
að róa mig aðeins niður og náði að vinna næstu
tvær loturnar,“ sagði Ragna Ingólfsdóttir sem
var mjög ánægð með fyrsta daginn sinn á
mótinu sem fer fram í Thessaloniki í Grikk-
landi.
Ragna Ingólfsdóttir vann dönsku stúlkuna
örugglega 21-13 og 21-10 í fyrsta leik. „Þetta
var frekar léttur sigur í morgun en svo gekk
illa í byrjun gegn þýsku stelpunni en svo náði
ég yfirhöndinni og kláraði þetta á keppnis-
hörkunni,“ segir Ragna sem segist hafa orðið
reið eftir slaka fyrstu lotu og það hafi hjálpað
henni í seinni tveimur lotunum.
Ragna var sátt við spilamennskuna á mót-
inu á Ítalíu um síðustu helgi. „Mótið á Ítalíu
var miklu sterk- ara mót og það að
vinna einn leik gaf jafn mörg stig
eins og ég kæmist í undanúrslitin
á þessu móti. Ég var sátt við
spilamennskuna á Ítalíu þar
sem ég tapaði
fyrir stelpu sem
var átján sætum
fyrir ofan mig á
heimslistanum,“
segir Ragna en játar
að þétt mótadagskrá
sé farin að taka sinn
toll.
„Ég er orðin mjög
þreytt og er eigin-
lega illt í öllum
skrokknum. Ég er
með hitakrem á öllum líkam-
anum,“ segir Ragna í léttum
tón en hún ætlar að taka sér
gott frí eftir mótið í Grikk-
landi en fyrst er að klára mótið og ná í
einhver stig. Ragna vonast til að þetta
borgi sig og hjálpi henni við að komast
inn á Ólympíuleikanna.
„Ég hlakka til að fara í frí en ætla að
reyna að klára þetta mót áður en ég fer
að hugsa um það. Ég mæti annarri
þýskri stelpu í átta liða úrslitunum
en ég veit ekkert hvernig hún er og
hef aldrei séð hana spila,“ segir
Ragna og bætir við í léttum tón.
„Ég passa bara upp á að taka hita-
kremið með og hita vel upp,“ segir
Ragna en hún mætir CaroluBott í
næstu umferð sem hefst kl. 15.20 að
íslenskum tíma.
Miðað við heimslistastöðu
þeirra Carolu og Rögnu ætti
Ragna að teljast sigurstranglegri
fyrirfram en miðað við árangur
hinnar þýsku undanfarin ár og öfluga
æfingafélaga verður um erfiðan leik að
ræða fyrir Rögnu. - óój
Ragna Ingólfsdóttir komin í átta manna úrslit á alþjóðlegu badmintonmóti í Grikklandi:
Ég kláraði leikinn á keppnishörkunni
KÖRFUBOLTI Michael Jordan skellti
sér á æfingu með Charlotte
Bobcats en hann hefur þó ekki í
hyggju að rífa fram skóna á nýjan
leik.
Jordan, sem er einn af eigend-
um liðsins, ákvað að vera með til
þess að rífa upp stemninguna í
liðinu en liðið hefur tapað tíu af
síðustu tólf leikjum sínum.
Jordan hefur einnig verið að
mæta á liðs- og myndbandsfundi
liðsins.
Jordan, sem orðinn er 44 ára,
keypti sig inn í félagið á síðasta
ári og hefur lokaákvörðun um
körfuboltalegar ákvarðanir
félagsins. Hann hefur algjörlega
dregið sig úr sviðsjósinu og
horfir á leiki þar sem ekki sést til
hans. Starfsmönnum hallarinnar
hefur síðan verið meinað að birta
myndir af honum á skjám
hallarinnar.
Jordan hefur ekki gengið sem
skyldi utan vallar en hann var
rekinn sem forseti Washington
Wizards og Bobcats-liðið er ekki
beint að kveikja í deildinni. - hbg
Michael Jordan:
Æfði með
Bobcats
SLEGIÐ Á LÉTTA STRENGI Leikmenn
Bobcats voru ánægðir að fá Jordan á
æfingu með sér. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Kristinn fer á EM 2008
Milliríkjadómarinn frá KR, Kristinn Jakobsson, er
einn af átta dómurum sem munu gegna starfi
fjórða dómara á EM 2008 sem fram fer í Sviss
og Austurríki næsta sumar. Alls voru tólf
dómarar valdir til að dæma á EM og 24
aðstoðardómarar en tríóin koma öll frá
sömu löndum. Þetta er mikil upphefð
fyrir Kristin sem hefur sífellt verið
að fá stærri verkefni hjá UEFA og
nú síðast var það leikur Everton og
Zenit á Goodison Park. Þrátt fyrir
að hafa ranglega gefið rautt spjald
sagðist Kristinn hafa fengið góðan
heildardóm frá eftirlitsmanni leiksins.