Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 80

Fréttablaðið - 20.12.2007, Page 80
 20. desember 2007 FIMMTUDAGUR FÓTBOLTI Lögreglan í Manchester færði 19 ára gaml- an mann til yfirheyrslu í fyrrakvöld í tengslum við meinta nauðgun á 26 ára gamalli stúlku á Great John Street-hótelinu í Manchester þar sem jóla- fögnuður leikmanna Manchester United fór fram á mánudagskvöld. Í gær var það svo staðfest í fjölmiðlum að umræddur maður í haldi lögreglu væri norður-írski lands- liðsmaðurinn Jonny Evans, sem lék síðast með United- liðinu gegn Roma í Meist- aradeildinni á dögunum. Talsmaður lögreglunnar í Manchester sagði í gær að Evans hefði gefið sig sjálfur fram við lögreglu þegar spurðist út um ákæru stúlkunnar, en talsmaður Manchester United vildi ekki tjá sig um málið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mál sem þetta kemur upp í ensku úrvalsdeildinni og samkvæmt Ian Dovaston hjá Sky News er ekki alltaf allt sem sýnist í þessum málum. „Margir knattspyrnustjórar í ensku úrvalsdeild- inni kvíða jafnan þessum leikmannafögnuðum þar sem þeir eru meðvitaðir um það að leikmennirnir sjálfir geta verið skotmörk. Þetta eru í sumum tilfellum ungir menn sem eiga nóg af peningum og fá mikla athygli og liggja því vel við höggi. Það hafa marg- ar ásakanir um nauðganir komið fram í tengslum við fagnaði og veislur leikmanna í ensku úrvalsdeildinni, en engin þeirra hefur leitt af sér að dómsfellingu,“ sagði Dovaston. Málsatvik í umræddu máli Jonny Evans eru aftur á móti enn sem stendur óljós en honum var í gær sleppt úr varðhaldið gegn tryggingu og málið mun verða tekið fyrir að nýju þann 23. febrúar á næsta ári. - óþ Lögreglan rannsakar kæru vegna meintrar nauðgunar í jólafagnaði Man. Utd: Evans sleppt gegn tryggingu LAUS ÚR VARÐHALDI Jonny Evans gaf sig sjálfur fram til lögreglu vegna ákærunnar á þriðjudagskvöld og yfirheyrslur stóðu yfir þangað til í gær þegar honum var sleppt gegn tryggingu. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Andlegt ofbeldi hefur verið talsvert í umræðunni í sam- bandi við ensku úrvalsdeildina og bæði leikmenn og stjórar í deild- inni hafa kvartað sáran undanfar- ið yfir óhefluðum munnsöfnuði áhorfenda í þeirra garð. Gordon Taylor, stjórnarformað- ur samtaka atvinnumanna í knatt- spyrnu á Englandi, vill að leik- menn njóti betri verndar frá munnlegu ofbeldi á leikjum á Eng- landi og telur að félögin í deildun- um verði að axla meiri ábyrgð í þeim efnum. „Ef menn hafa til að mynda vitn- eskju um að líklega verði mikið um munnlegt ofbeldi eða óheflað málfar gagnvart einhverjum sér- stökum aðila, þá verður viðkom- andi heimalið og starfsmenn þess að gera ráðstafanir og búa sig sér- staklega undir að kveða allt slíkt í kútinn ef það fer yfir ákveðin mörk. Verður að stöðva menn með meið- andi athugasemdir Auðvitað er ekki hægt að setja út á smá stríðnisköll frá áhorfend- unum en um leið og menn eru með meiðandi athugasemdir verður að taka fyrir það og segja stopp. Eng- lendingar geta verið stoltir af bar- áttu sinni gegn bullum á knatt- spyrnuleikjum og kynþáttahatri og nú verðum við að halda barátt- unni áfram og fara að taka munn- söfnuð áhorfenda í gegn,“ sagði Taylor. Nokkrir leikmenn og knatt- spyrnustjórar í ensku úrvalsdeild- inni hafa komið fram og gagnrýnt munnsöfnuð áhorfenda á leikjum í ensku úrvalsdeildinni í vetur en þeirra á meðal eru Sir Alex Fergu- son, stjóri Manchester United, Avram Grant, stjóri Chelsea, Harry Redknapp, stjóri Port- smouth, og Sol Campbell, leikmað- ur liðsins. Menn í úrvalsdeildinni þurf að hafa þykkan skráp Campbell kallaði eftir því í við- tali við útvarpsstöðina BBC 4 að Knattspyrnusamband Englands axlaði meiri ábyrgð. „Maður þarf vissulega að vera með þykkan skráp til þess að þola alls kyns munnsöfnuð á leikjum í ensku úrvalsdeildinni, en mér finnst ástandið nú vera orðið óbærilegt og mér finnst að maður eigi ekki skilið að standa undir slíkum fúkyrðum undir neinum kringumstæðum. Ég veit að ég yfirgaf ákveðið lið við misjafnlega góðar undirtektir og ég skil alveg að einhverjir séu ósáttir en andlegt ofbeldi á ekki rétt á sér og ég geri í raun lítinn mun á því og kynþáttafordómum. Þetta á engan veginn rétt á sér og mér finnst enska knattspyrnu- sambandið verða að taka betur í taumana,“ sagði Campbell, sem yfirgaf Tottenham árið 2001 til þess að ganga til liðs við erkifjend- urna í Arsenal og er vegna þess enn afar óvinsæll á White Hart Lane, heimavelli Tottenham, þó svo að hann leiki ekki lengur með liði Arsenal. omar@frettabladid.is Munnsöfnuður áhorfenda orðinn að stóru vandamáli Ensk knattspyrnuyfirvöld hafa áður tekið fast á knattspyrnubullum og kyn- þáttafordómum í stúkunni. Nú vilja samtök atvinnumanna í Englandi að tekið sé á munnsöfnuði áhorfenda sem sé sífellt að verða stærra vandamál. ÓSÁTTUR Sol Campbell lét í ljós óánægju sína með munnlegt ofbeldi sem leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar þyrftu að þola frá sumum áhorfendum. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.