Fréttablaðið - 03.01.2008, Blaðsíða 20
20 3. janúar 2008 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
Ólafur og Davíð sameinast
Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur hvað
eftir annað ítrekað að hægja þurfi á hagkerfinu
áður en stýrivextir geti lækkað. Margir kvarta
yfir háum stýrivöxtum og Davíð örugglega
óþreyjufullur að hefja lækkunarferlið. Ekki hafa
margir lagt seðlabankastjóra lið í þessari baráttu
þangað til á nýársdag. Þá barst hjálp úr
óvæntri átt. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, lagði sitt þunga lóð
á vogarskálina þegar hann sagði:
„Þótt við höfum á stundum verið
miklir eyðsluseggir, Íslendingar, og sú
athafnasemi knúið aflvélar atvinnu-
lífsins kann á komandi árum að
vera skynsamlegt að venda sínu
kvæði í kross, setja sparnað í
öndvegi, gera aðhald og nýtni
að aðalsmerki, nota áfram góða
hluti í stað þess að kaupa sífellt
eitthvað nýtt.“ Davíð hlýtur
að gleðjast yfir því hvað þeir Ólafur Ragnar eru
orðnir sammála í efnahagsmálum.
Hlutabréfatalning
Jón Gnarr gerði 2. janúar ódauðlegan í leikverk-
inu Einu sinni nörd hér um árið. Hann átti nefni-
lega afmæli í gær og á sínum yngri árum var 2.
janúar vörutalningardagurinn. Engar búðir voru
opnar því starfsfólk var að telja birgðir verslana.
Þá fékk Jón Gnarr alltaf bensínstöðvardót í
afmælisgjöf. Lyktarspjöld og rúðusköfur. Nú var
það svo í gær að Kauphöll Íslands var lokuð 2.
janúar. Það er eina kauphöllin í hinum vestræna
heimi sem er með lokað fyrsta virka dag
ársins. Spurning hvort fjárfestar þurfi
tíma til að telja verðbréfin í söfnunum
sínum? Líklegri skýring er aldagömul
þegar bankamenn þurftu að hand-
reikna stöðu bankanna við upphaf
árs. Er ekki tími til kominn að breyta
því nú á tölvuöld?
Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARUm áramótin tóku í gildi lög í Noregi
sem kveða á um að 40 prósent af
stjórnum skráðra fyrirtækja skuli
skipað konum eða körlum. Í Financial
Times segir að fjöldi fyrirtækja hafi
haldið stjórnarfundi milli jóla og
nýárs til að uppfylla þessi skilyrði.
Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á
Keflavíkurflugvelli, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Saltkaupa hf. í
Hafnarfirði. Saltkaup á í viðskiptum
með salt til framleiðslu sjávarafurða
og íseyðingar á götum. Saltkaup selja
jafnframt umbúðir, tunnur og íbæti-
efni fyrir rækju og síld, og fleira.
Við opnun markaða í gær hafði verð
á gulli ekki verið hærra í 28 ár. Voru
það viðbrögð við væntri veikingu
dollars, hækkun á olíu og landbúnað-
arvörum í kjölfar verðbólgu.
Félög í eigu Kaupþings og Glitnis í Noregi hafa uppfyllt kröfur norskra stjórn-
valda að hvort kynið um sig skipi að minnsta kosti fjörutíu prósent stjórn-
arsæta í skráðum félögum. Karita Bekkemellem, jafnréttisráðherra Noregs,
hafði hótað öllum þeim félögum sem ekki uppfylltu
lögin aðgerðum af hálfu stjórnvalda.
Vala Pálsdóttir, fjárfestatengill Glitnis, segir að öll
hlutafélög í eigu Glitnis í Noregi hafi minnst fjörutíu
prósent kvenna í stjórn. Það hlutfall muni halda þegar
Glitnir sameinast BNbank í febrúar.
Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri samskipta-
sviðs Kaupþings, segir bankann þegar uppfylla norsku
reglurnar sem kveða á um hlutfall kynja í stjórnum
félaga í Noregi. Kaupþing hafi skipað konur í stjórn
félagsins í Noregi síðastliðið haust.
„Mín skoðun er sú að lagasetning sé þrautalending
og fyrst beri að skoða allar aðrar leiðir að því sjálfsagða
markmiði að jafna hlut kvenna og karla í stjórnum
íslenskra fyrirtækja,“ sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á fundi
Félags viðskipta- og hagfræðinga og Frjálsrar verslunar í október á síðasta
ári.
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur verið að kanna hvort lög um kynjakvóta í
stjórnir skráðra fyrirtækja í Noregi gangi gegn Evrópurétti. Hefur ESA óskað
eftir upplýsingum frá norsku ríkisstjórninni í því sambandi. - bg
Uppfylla kynjakvóta
VALA PÁLSDÓTTIR
Komið hefur til tals að breyta út
frá þeirri venju að hér séu bankar
og sparisjóðir lokaðir á fyrsta
virka degi árs hvers. Tæknilega er
ekkert því til fyrirstöðu. Engin
viðskipti áttu sér stað í OMX Kaup-
höll Íslands í gær vegna þess að
fjármálastofnanir voru lokaðar.
„Allir bankar eru lokaðir og við
höfum því ekki séð tilgang í að
hafa hér opna kauphöll þó að hún
sé opin annars staðar,“ sagði Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, í gær. „Þetta er nokk-
uð sem alveg mætti taka til
endurskoðunar því annars staðar
veit ég ekki til þess að sérstakur
bankadagur sé svona í byrjun
árs.“
Sigurjón Þ. Árnason, banka-
stjóri Landsbankans, segir lokun
bankanna fyrsta virka dag ársins
líklega eiga rætur sínar í því að
áður fyrr hafi þurft allt að tvo
daga í að handreikna vexti. „Þar
held ég að finna megi upprunann.
En síðan hefur þessari hefð verið
haldið við. Þetta er hins vegar
vinnudagur þar sem fólk mætir
og fer í gegnum plögg sín, tölvu-
póst og annað og tekur til í kring-
um sig,“ segir hann og vísar til
þess að svolítið sé þetta eins og
vörutalning í verslunum. Sigur-
jón segir hafa verið rætt að leggja
hefðina af, án þess að í því hafi
verið nokkuð gert. „En formlega
séð bannar stjórnendum banka
ekkert að ákveða að hafa opið,“
segir hann, en telur um leið að
slík ákvörðun verði tæpast tekin
nema sameiginlega af bönkunum.
Helgi H. Steingrímsson, for-
stjóri Reiknistofu bankanna,
segir að tæknilega sé ekkert því
til fyrirstöðu hvað Reiknistofuna
varðar að bankar hafi opið fyrsta
virka dag ársins. Reiknistofan sé
ávallt opin og annist færslur og
uppgjör öllum stundum. „Fyrst
og fremst er þetta ákvörðunar-
atriði banka og sparisjóða. Reikni-
stofan er engin hindrun í því
efni,“ segir hann.
- óká
Kauphöllin lokuð
vegna bankadags
Mætti endurskoða, segir Þórður Friðjónsson. Ekki
steytir á Reiknistofunni, segir Helgi Steingrímsson.
OMX KAUPHÖLLIN Í KAUPMANNAHÖFN
Kauphallir OMX-samstæðunnar voru
opnar í gær, utan sú íslenska sem lokuð
var eins og bankarnir hér. Hefð er fyrir
því að fyrsti virki dagur ársins fari í tiltekt.
Bankastjóra og tveimur lykilstarfsmönnum
Icebank var óvænt sagt upp um áramótin.
Stjórnarformaður og nýráðinn bankastjóri
segja breytingar á framkvæmdastjórn eiga
sér eðlilegar skýringar.
„Þetta kom mjög á óvart svo ekki sé fastar að orði kveð-
ið,“ segir Finnur Sveinbjörnsson, fyrrum bankastjóri
Icebank, sem óvænt var sagt upp störfum á milli jóla og
nýárs ásamt þeim Gunnari Svavarssyni, fyrrum fram-
kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs, og Hafdísi Karlsdóttur,
framkvæmdastjóra rekstrarsviðs bankans.
Finnur vildi ekki tjá sig nánar um málið að svo
stöddu. „En þetta var vissulega dagur hinna löngu
hnífa,“ bætti hann við í ljósi þess hversu mörgum
lykilstjórnendum Icebank var sagt upp í einu lagi.
Finnur hafði starfað hjá bankanum frá 2002 og leitt
hann í gegnum mikið umbreytingaferli, líkt og segir í
tilkynningu. Þar á meðal jukust eignir bankans úr 54
milljörðum króna árið 2001 í um 200 milljarða í enda
síðasta árs undir hans stjórn.
Nokkrir lykilstjórnendur bankans keyptu undir lok
síðasta árs samtals 8,5 prósenta hlut í bankanum. Þar
á meðal festu Finnur og framkvæmdastjórarnir sér
hlutinn auk Agnars Hanssonar, sem tók við banka-
stjórastólnum af Finni. Ekki liggur fyrir hvort stjórn-
endurnir fyrrverandi ætli að halda í hlutina í ljósi
atburðanna.
Agnar, sem var framkvæmdastjóri fjárstýringa-
sviðs Icebank síðastliðin tvö ár, segir breytingarnar
eiga sér eðlilegar skýringar. „Þegar nýr skipstjóri
tekur við stýrinu kemur ný áhöfn með honum,“ segir
hann.
Undir þetta tekur Geirmundur Kristinsson,
stjórnarformaður Icebank. „Þetta var sameiginleg
ákvörðun á kaflaskilum,“ segir hann en auk breytinga
á eignarhaldi Icebank í október settust nýir menn í
bankaráðið seint á síðasta ári. „Það var búið að ganga
frá því á sínum tíma í markmiðasetningu bankans
hvert hann skyldi stefna. En menn voru með mismun-
andi áherslur. Með þessu er verið að koma ferlinu af
stað,“ segir hann. jonab@frettabladid.is
Uppsögnin kom banka-
stjóranum mjög á óvart
FYRRVERANDI OG NÚVERANDI LYKILSTJÓRNENDUR ICEBANK
Finnur Sveinbjörnsson, fyrrum bankastjóri, í miðjunni ásamt
þeim Gunnari Svavarssyni og Hafdísi Karlsdóttur á hægri hönd
en þeim Agnari Hanssyni, sem tók við bankastjórastólnum,
og Ólafi S. Ottósyni, framkvæmdastjóra sparisjóðasviðs, á þá
vinstri.
Stjórn OMX-kauphallarsamstæðunnar, sem rekur hluta-
bréfamarkað á Norðurlöndunum, þar á meðal í Kaup-
höll Íslands, og í Eystrasaltsríkjunum, samþykkti í gær að
mæla með því að hluthafar taki tilboði eignarhaldsfélags
kauphallarinnar í Dubaí. Kaupverð nemur 32 milljörðum
sænskra króna, jafnvirði rúmra 313 milljarða íslenskra.
Að viðskiptum loknum selur eignarhaldsfélagið bréf
sín áfram til bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq
samkvæmt samkomulagi. Greitt verður fyrir hlutina með
peningum og hlutum í Nasdaq og mun markaðurinn í
Dubaí eftirleiðis eiga fimmtungshlut í Nasdaq en sam-
stæðan fá heitið Nasdaq OMX. - jab
Styðja tilboð
Byr sparisjóður hefur hug á að
auka við hlut sinn í VBS fjárfest-
ingarbanka. Samkvæmt heimild-
um blaðsins falaðist sjóðurinn í
byrjun desember eftir hlut bæði
Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef)
og Sparisjóðs Mýrasýslu (SpM).
Tilboði Byrs hefur þó á hvorug-
um staðnum verið tekið. Sparisjóð-
irnir munu þó ekki afhuga því að
selja hlut sinn fyrir rétt verð, að
því er athugun leiðir í ljós. Á
báðum stöðum hefur áhersla færst
frá VBS, en SpM keypti síðasta
haust Nordvest verðbréf og
áhersla SpKef hefur færst á Ice-
bank.
Þannig sagði Gísli Kjartansson,
framkvæmdastjóri SpM, sig úr
stjórn VBS, þar sem hann var for-
maður, í byrjun desember. Ástæð-
an var kaupin á Nordvest þar sem
ákveðið hafði verið að efla og
styrkja reksturinn, en Nordvest
starfar að hluta á sama markaði og
VBS. - óká
Byr vill meira í VBS
Í FORSVARI FYRIR BYR Jón Þorsteinn
Jónsson er stjórnarformaður og Ragnar
Z. Guðjónsson annar tveggja sparisjóðs-
stjóra Byrs sparisjóðs. Sjóðurinn vill
auka hlut sinn í VBS fjárfestingarbanka.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Gítarnámskeið
Hefst 21. janúar
12 vikur - 40 mínútna tímar - 1 sinni í viku
Einkatímar: kr. 47.000-
Geisladiskur með upptöku nemanda í lok námskeiðs.
Hóptímar fyrir 6-9 ára: kr. 35.000-
Gítarskólinn er aðili að frístundakorti Í.T.R. www.itr.is
Öll stílbrigði !
Fyrir byrjendur á öllum aldri og lengra komna
Gítarkennsla er okkar fag !
Gítarskóli Íslands Síðumúla 29 Sími 581-1281
gitarskoli@gitarskoli.is
www.gitarskoli.is