Fréttablaðið - 06.01.2008, Síða 19

Fréttablaðið - 06.01.2008, Síða 19
Elkem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á málmum og málmblendi á heimsvísu. Velta Elkem árið 2006 var ca. 106 milljarðar ISK. Fyrirtækið er með framleiðslu í Evrópu, Suður Ameríku, Suður Afríku og Asíu, auk þess er Elkem með sterkt net söluskrifstofa út um allan heim. Hjá fyrirtækinu starfa ca. 2960 starfsmenn og eru þeir hluti af Orkla Group, sem er Norskt almenningshlutafélag. Vilt þú vinna við framtíðarlausnir í umhverfismálum? Framleiðsla og starfsemi Elkem er knýjandi afl í vitundarvakningu almennings í umhverfismálum. Ál og kísill draga úr þyngd og orkunotkun í samgöngum. Vatnsaflsvirkjanir og sólarraflar eru umhverfisvænar og endurnýjanlegar orkulindir. Elkem er metnaðarfullt og framsækið fyrirtæki sem leitar tækifæra og vaxtarmöguleika innan sem utan hefðbundinna viðskiptasviða. Við leitum því að fólki sem hefur orku og drifkraft til að taka þátt í framtíðarþróun fyrirtækisins. Elkem leitar að: Forstjóra á Íslandi / Plant Manager Starfssvið: • Stefnumótun í framleiðslu og markaðssetningu málmsteypuafurða • Stýra rekstri í samræmi við framleiðsluferli Elkem sem byggja á framleiðsluferlum Toyota • Keyra áfram vöru-, markaðs- og viðskiptaþróun • Innleiða gæða-, umhverfis-, öryggisstefnu og stjórnunarhætti, í samræmi við ströngustu kröfur Elkem • Viðhalda og þróa tengsl við almenning á Íslandi og samfélag heimamanna • Ýta undir starfsþróun starfsmanna og byggja upp fyrirtæki á heimsmælikvarða • Þróa sterkt stjórnendateymi • Svara til stjórnar Íslenska járnblendifélagsins og aðalstöðva Elkem Hæfniskröfur: • Verk- og/eða tæknifræði gráða, framhaldsmenntun kostur • Að minnsta kosti 10 ára stjórnunarreynsla í framleiðslufyrirtæki • Þekking á gæða- og ferlastjórnun • Mjög góð íslensku og enskukunnátta, kunnátta í norðurlandamáli kostur • Leiðtogahæfileikar og þekking á íslensku viðskiptaumhverfi • Mjög góðir samskiptahæfileikar • Hæfileiki til að byggja upp teymi og liðsanda Umsjón með starfinu hafa Hilmar G. Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) og Tómas Oddur Hrafnsson (tomas.hrafnsson@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar nk. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is Elkem leggur metnað sinn í framleiðslu á hágæða málmblendi og leggur ríka áherslu á að mæta ýtrustu kröfum viðskiptavina sinna. Fyrirækið leggur mikla áherslu á að valda sem minnstri röskun á náttúrunni og skapa öruggt og gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn sína. Í boði er: Ein markverðasta og mest spennandi stjórnunarstaða innan Elkem. Eftir 3.4 milljarða króna fjárfestingu í nýrri framleiðslulínu verður Elkem nútímalegasta málmsteypiverksmiðja sem fyrir finnst. Að flutningum framleiðslunnar frá Noregi loknum verður verksmiðjan flaggskip Elkem í framleiðslu málmblendis. Við bjóðum samkeppnishæft launaumhverfi, þátttöku í alþjóðlegu stjórnendateymi og einstakt tækifæri til starfsþróunar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.