Fréttablaðið - 06.01.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
11:13 13:33 15:53
11:25 13:18 15:12
Í dag er sunnudagurinn
6. janúar, 6. dagur ársins.
með ánægju
Smelltu þér inn á www.icelandexpress.is, kynntu þér
áfangastaðina og bókaðu draumaferðina núna!
Evrópa 2008
Nú í vikunni horfði ég með öðru auganu á breskan sjónvarps-
þátt um ekkjumann sem varð ást-
fanginn, en varð að gefa konuna
sem hann unni upp á bátinn af því
að uppkomnum börnum hans leist
ekki á ráðahaginn. Þeim fannst
hann svíkja móður þeirra með því
að bera tilfinningar til annarrar
konu, rétt eins og þeim sem komn-
ir eru yfir móðuna miklu sé það
sérstakt kappsmál að eftirlifandi
ástvinir þeirra eyði því sem þeir
eiga eftir ólifað í eymd og sút yfir
brotthvarfi þeirra. Þegar hann
benti á að hann ætti sér enn
drauma og þrár hreytti ein dætra
hans í hann að hann væri fjörutíu
og þriggja ára. Í orðunum lá að á
þeim aldri væri heiðvirt fólk vaxið
upp úr svoleiðis vitleysu. Þetta
hafði djúp áhrif á mig. Ég varð
nefnilega fjörutíu og þriggja ára í
gær.
ÞEGAR ég var skiptinemi í
Bandaríkjunum var mér úthlutað
ritgerðarverkefninu „Ég árið
2000“. Þetta var haustið 1983, ég
var átján ára og árið 2000 var í
fjarlægri framtíð. Mér fannst að
þá hlyti ég að vera kominn á minn
stað í lífinu, þá yrði orðið fullljóst
hvað úr mér yrði. Það er skemmst
frá að segja að mér skjátlaðist
hrapallega um framtíð mína. Í rit-
gerðinni var ég virtur kvikmynda-
leikstjóri, ég hafði komið íslenskri
kvikmyndagerð á heimskortið
með ódauðlegum meistaraverkum
og bjó ásamt fullkominni eigin-
konu minni og sæg barna í glæsi-
villu í Öskjuhlíðinni. Raunin varð
sú að bæði villan og leikstjórafer-
illinn voru langt utan seilingar
árið 2000. Þá var ég 35 ára.
ÞÁ hvarflaði ekki að mér að 35
ára maður á alla jafna tvo þriðju
hluta starfsævinnar framundan,
menntaður kvikmyndaleikstjóri
sennilega enn meira, líklega ekki
minna en þrjá fjórðu. Þaðan af
síður flögraði sú hugsun að mér að
það væri sorglegt hlutskipti að
vera búinn með helstu stórvirki
sín í lífinu á þeim aldri og þurfa að
verja lunganum af starfsævinni í
skugga þeirra.
Í raun var ég enn þröngsýnni en
stúlkan í sjónvarpsþættinum. Mér
fannst að þrjátíu og fimm ára ætti
maður að vera orðinn eins og
maður yrði (þ .e. full-orðinn) og
hjakka í sama farinu upp frá því,
af því að á þeim aldri tæki því ekki
að byrja á einhverju nýju, verða
ástfanginn eða skipta um starfs-
vettvang. Núna efast ég um að ég
hafi nokkurn tímann verið jafn-
feginn að hafa rangt fyrir mér.
Aldrei of seint