Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 8
20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
ALÞINGI Hugmynd um flugvöll á
Hólmsheiði hefur sett áform um
byggingu fangelsis á heiðinni í
uppnám.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra upplýsti þetta á Alþingi í
vikunni í svari við fyrirspurn
Sivjar Friðleifsdóttur, þingflokks-
formanns framsóknarmanna, um
nýtt fangelsi og nýja lögreglu-
stöð. Greindi Björn jafnframt frá
því að til athugunar væri að nýjar
höfuðstöðvar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu og nýtt
fangelsi yrðu í einu og sama
húsinu. Enn fremur upplýsti hann
að samningar um sölu á landi í
grennd við Litla-Hraun væru í
farvatninu og að andvirðið yrði
notað til að reisa móttökuhús við
fangelsið þar. - bþs
Óvissa um byggingu fangelsis:
Flugvöllur tefur borgarfangelsi
BJÖRN BJARNASON Dómsmálaráðherra
segir að verið sé að kanna möguleikann
á því að hafa höfuðstöðvar lögreglunnar
og fangelsi í sama húsinu.
STJÓRNSÝSLA Kærunefnd útboðs-
mála hefur stöðvað samninga
Ríkiskaupa og Landsbanka Íslands
um innkaupakort fyrir ríkið.
Kreditkort hf. kærðu á gamlárs-
dag þá ákvörðun Ríkiskaupa að
taka tilboði sem Landsbankinn
gerði í útboði fyrir innkaupakort
ríkisins. Krafðist Kreditkort hf.
að gerð samnings við Landsbank-
ann yrði stöðvuð þar til endanleg
ákvörðun lægi fyrir hjá kæru-
nefndinni um lögmæti útboðsins
og tilboðs Landsbankans.
Kærunefndin hefur nú stöðvað
gerð samninga Ríkiskaupa við
Landsbankann á þeim grundvelli
að verulegar líkur séu á að samn-
ingurinn sé ólöglegur. Í kjölfar
þessa höfnuðu Ríkiskaup öllum
þremur tilboðunum sem bárust.
Auk áðurnefndra fyrirtækja sendi
Kaupþing inn tilboð.
Kærunefndin segir að bjóðend-
ur í útboðinu hefðu átt að geta
áttað sig á því fyrirfram hvernig
staðið yrði að mati á hagkvæm-
asta tilboði og hagað boðum sínum
í samræmi við það. Þetta hafi hins
vegar ekki verið tilfellið.
„Bjóðendum í hinu kærða útboði
var ógerlegt að átta sig á því
hvernig kaupandi hygðist meta til-
tekna þætti í tilboðum þeirra,“
segir kærunefndin.
Ítrekað er í ákvörðun kæru-
nefndarinnar að forsendur í
útboðum á vegum ríkisins megi
ekki vera svo matskenndar að
kaupandanum séu í raun og veru
engar skorður settar við mat til-
boða. „Er það nauðsynlegt til að
takmarka vald þeirra til að túlka
tilboðin eftir eigin höfði eftir að
tilboð hafa verið opnuð,“ segir
kærunefndin.
Kreditkort hf., sem eru með
Mastercard, hafa haft samning
við ríkið um greiðslukort í sjö ár.
Samningurinn rann út í fyrradag
en hefur að sögn Viktors Ólasonar,
framkvæmdastjóra Kreditkorta,
verið framlengdur um óákveðinn
tíma. Viktor segir viðskiptin lúta
að um 950 greiðslukortum hjá 180
ríkisstofnunum. Veltan af þeim sé
um fimm prósent af heildarkorta-
veltu Kreditkorta hf.
Að sögn Viktors voru öll tilboðin
þrjú eins hvað varðar kortagjöld.
Huglægt mat hafi síðan verið lagt
á þjónustuna. „Við vorum ónægðir
með að það var misræmi milli for-
sendna í útboðinu sjálfu og þess
sem notað var til að velja úr til-
boðunum,“ segir hann.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir ekki enn ákveð-
ið hver verði næstu skref Ríkis-
kaupa. Hann neitar því að málið sé
klúður af hálfu Ríkiskaupa. „Við
erum að skoða það lögfræðilega
hvað hægt er að gera,“ segir
Júlíus. gar@frettabladid.is
Stöðva korta-
samning við
Landsbanka
Kærunefnd útboðsmála segir verulegar líkur á
að samningar Ríkiskaupa við Landsbankann um
greiðslukort séu ólöglegir. Kreditkort hf. kærðu
samninginn við Landsbankann á gamlársdag.
LANDSBANKINN Ríkiskaup hafa hafnað öllum tilboðum í greiðslukort fyrir ríkisstofn-
anir eftir að kærunefnd sagði verulegar líkur á að samningar þeirra væru ólöglegir.