Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 100

Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 100
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Barcelona 21.–24. mars Fararstjóri: Halldór Már Stefánsson Verð á mann í tvíbýli 59.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á Covadona-hótelinu með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Hafðu gaman um páskana og skelltu þér til London, Berlínar eða Barcelona. Express ferðir bjóða páskaferðir til þessara spennandi stórborga á frábæru verði. Þú finnur allar nánari upplýsingar á vefnum okkar, www.expressferdir.is. London 19.–23. mars Fararstjóri: Þóra Karítas Árnadóttir Verð á mann í tvíbýli 59.700 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á Holiday Inn Bloomsbury með morgunverði og íslensk fararstjórn í skoðunarferðum. Berlín 21.–24. mars Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir Verð á mann í tvíbýli 56.700 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á 4* hóteli með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. Páskapakkar Express ferða Nýlega bárust fréttir af því að reykvísk athafnakona hefði tapað morð fjár á fjármálamark- aði. Hún bar sig afar aumlega yfir því að hafa tapað hundruðum milljóna sem hún fékk lánaðar til að nota í fjárhættuspil. Á sama tíma er ekki hægt að greiða þeim sem annast börnin okkar mann- sæmandi laun og gamalmennum er hrúgað inn á fjársveltar stofn- anir og gert að lifa á smánarlegri hungurlús. FORÐUM daga sagði vitur maður einmitt að menningarstig þjóða mætti ráða af því hvernig þær búa að börnum og öldruðum. Það er mikill áfellisdómur yfir Íslending- um. Ég vona að mér fyrirgefist að gráta þurrum tárum yfir óförum athafnakonu þessarar. MARGT getur haft áhrif á gildis- mat þjóðar og siðferði. Það gildir líka um einstaklinga. Hömlulaust neyslubrjálæði hefur persónu- leikabreytandi áhrif á fólk og veldur stigvaxandi siðblindu. Leggist brjálæði á heilar þjóðir getur það sent þær aftur á sið- ferðilegt steinaldarstig. Þegar ein- staklingar hafa keyrt líf sitt í and- legt gjaldþrot með þrotlausri, hugbreytandi neyslu, er algert úrræðaleysi oft forsenda þess að þeir nái bata. EKKERT nema fullkomin uppgjöf getur fyllt þá þeirri örvæntingu sem þarf til að þeir endurskoði líf sitt og gildismat, forgangsraði upp á nýtt og átti sig á því hvað það raunverulega er sem gefur lífinu gildi og hvað það er sem byrgir sýnina á hin sönnu lífsins gæði. Þá verður það sjálfkrafa að keppi- kefli að láta neysluna lönd og leið. Þótt fólk geti þurft að glíma við erfið fráhvarfseinkenni, jafnvel þrálát síðhvörf, þá hættir neyslan að vera eftirsóknarverð. Það að vera laus úr vítahring neyslunnar verður dýrðlegri munaður en fólk óraði fyrir því að væri til. Kannski virkar sama lausn fyrir þjóðir sem blindaðar eru af neysluæði. EINHVER kann að hugsa sem svo að þetta sé ekki sambærilegt, að þótt bæði fíklar og athafnafólk helgi líf sitt og vilja því að „kom- ast í efni“ hvað sem það kostar, þá sé merking orðasambandsins ger- ólík á milli þessara tveggja menn- ingarheima. Gott og vel. En þeim, sem eru þeirrar skoðunar að neysla Íslendinga hafi ekki haft persónuleikabreytandi áhrif á þjóðarsálina upp á síðkastið, ráð- legg ég að skríða upp úr holunni sem þeir hafa hafst við í síðastliðin fimmtán ár og líta í kring um sig. Komdu fagn- andi, kreppa! Í dag er sunnudagurinn 20. janúar, 20. dagur ársins. 10.44 13.28 16.34 10.47 13.23 16.00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.