Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 54
Styrkir
vegna starfsmenntunar
Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu,
sbr. lög nr. 19/1992 um starfsmenntun í atvinnulífinu
Hefðbundnir styrkir
Starfsmenntaráð hvetur umsækjendur til að sækja um verkefni sem falla undir eftirfarandi áherslur:
1. Verkefni sem snúa að starfsmönnum:
Gæðaverkefni sem nýtast þeim hópum sem höllum fæti standa á vinnumarkaði s.s. vegna félagslegrar stöðu,
uppruna, tungumálaerfiðleika, lítillar fyrri menntunar, lestrarörðugleika, fötlunar, eða skorts á tölvuþekkingu.
2. Verkefni sem snúa að fyrirtækjum:
Verkefni á vegum fyrirtækja sem hvorki hafa starfskrafta né sjálfstætt fjárhagslegt bolmagn til öflugrar innri
starfsþróunar og þekkingar-uppbyggingar.
Forgangs við úthlutun njóta verkefni sem falla undir ofangreindar áherslur starfsmenntaráðs. Að venju er ráðið samt
reiðubúið að meta umsóknir um mikilvæg verkefni sem falla utan áherslna ráðsins.
Rannsóknarverkefni
Við úthlutun úr starfsmenntasjóði á árinu 2008 verður ákveðnum hluta þess fjár sem Starfsmenntaráð hefur til
úthlutunar, varið í rannsóknarverkefni sem nýst geta frekari framþróun starfsmenntunar í landinu. Umsækjendur eru
hvattir til að sækja um verkefni sem falla undir eftirfarandi skilgreiningar:
Stór
Rannsókn eða greining á því hvað það er sem veikir stöðu einstaklinga á vinnumarkaði s.s. félagsleg staða, uppruni,
tungumálaerfiðleikar, lítil fyrri menntun, lestrarörðugleikar, fötlun, eða skortur á tölvu-þekkingu. Verkefnið feli
jafnframt í sér tillögur til úrbóta.
Greining á stöðu starfsmenntamála á Íslandi og í nágrannalöndunum og framsetning á þeim niðurstöðum.
Smærri
Greining á veikleikum í núverandi stöðu eða kerfi. Þarfagreining – hvar starfsmenntunar sé mest þörf og hverjir séu
best til þess fallnir að sjá um hana.
Nýjungar í aðferðum.
Áhersla er lögð á að öll verkefni sem sótt er um styrk til séu vel undirbúin og umsóknir vandaðar.
Eingöngu er tekið við umsóknum á rafrænu formi á heimsíðu Starfsmenntaráðs, www.starfsmenntarad.is.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Starfsmenntaráðs.
www.starfsmenntarad.is
N
NI
R
AP
A
KS
AF
O
TS
A
G
NIS
L
G
U
A
Ármúli 26 | Sími 522 3000 | www.hataekni. is
NOKIA | H ITACH I | YAMAHA | HTC | CREAT IVE | MOTOROLA | KEF | PALLAD INE
Viðskiptafulltrúi
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 80140
Hátækni var stofnað árið 1985 og er nú orðið eitt öflugasta
fyrirtæki landsins í sölu farsíma, flatskjáa, magnara, hátalara
og fleiri vara. Hátækni dreifir vörum til endursöluaðila
um land allt, auk þess sem fyrirtækið rekur glæsilega
verslun að Ármúla 26 og eina þekktustu loftræstideild
landsins að Dalvegi í Kópavogi. Hjá Hátækni starfa um
50 manns, samhentur og öflugur hópur starfsmanna sem
keppir ötullega að því að þjóna viðskiptavinum fyrirtækisins
á sem bestan hátt. Við leggjum mikið upp úr góðum
liðsanda og vellíðan fólks í starfi.
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu af
sölustörfum, mikla þjónustulund, geta unnið
sjálfstætt, hafa frumkvæði og haldgóða þekkingu
á fjarskiptalausnum, talstöðvum og tetrabúnaði.
Viðkomandi mun annast sölu á vörum Hátækni
til fyrirtækja, með sérstaka áherslu á fjarskiptabúnað.
Hátækni leitar að einstaklingum af báðum kynjum. Leitað er að
einstaklingum með haldgóða tölvukunnáttu, góða þjónustulund
og samskiptahæfni. Öguð og nákvæm vinnubrögð, auk stundvísi
og reglusemi. Lágmarksaldur er 20 ár.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist í tölvupósti á tölvupóstfangið
hataekni@hataekni.is. Umsóknarfrestur er til 31. janúar.
Hátækni óskar eftir viðskiptafulltrúa
Aðstoðarmaður í iðjuþjálfun
Laus er staða aðstoðarmanns við iðjuþjálfun nú
þegar. Starfi ð er fjölbreytt og felst m.a. í að leið-
beina skjólstæðingum við ýmis konar handverk og
vinnu við tölvur, léttri tiltekt, símsvörun og tilfallandi
skrifstofustöfum. Kjörið tækifæri fyrir þá sem hyggja
á nám í iðjuþjálfun að kynna sér fagið. Starfi ð krefst
góðrar færni í samskiptum, tölvukunnáttu, þjónustu-
lundar og æskilegur er áhugi á handverki.
Upplýsingar veitir Lilja Ingvarsson forstöðuiðjuþjálfi í
síma 585-2153 eða senda má tölvupóst á
liljaing@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til
4. febrúar 2008.
Á Reykjalundi fer fram öfl ug endurhæfi ng á
9 sviðum. Á iðjuþjálfunardeildinni starfa 17
iðjuþjálfar og 3 aðstoðarmenn.
Atvinna óskast!
24 ára gömul kona, sem lokið hefur prófi í fjölmiðlafræði
auk þess að vera á þriðja ári í B.Sc. tölvunámi í HR,
óskar eftir vinnumeð námi.
Skrifar og talar ensku auk þokkalegrar íslensku.
Talar og skrifar lýtalausa rússnesku.
Upplýsingar í síma 895 0594
isl-russ@simnet.is