Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 94
34 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR SÉRFRÆÐINGURINN GEIR SVEINSSON FJALLAR UM EM Í HANDBOLTA Mikilvægt að fá fyrstu stigin í hús Íslenska landsliðið í handknatt- leik sýndi í gær að viljinn og metnaðurinn til að gera vel á Evrópumótinu í Noregi er til staðar. Allt annað var að sjá til leiks liðsins í gær en í leiknum gegn Svíum og einbeiting og ákveðni leikmanna var til fyrirmyndar og menn vel með það á hreinu hvað til þyrfti. Liðið byrjaði leikinn gríðar- lega vel og þá sérstaklega varnarlega þar sem Hreiðar sýndi stórbrotna markvörslu á köflum, sérstaklega framan af á meðan vörn íslenska liðsins var að komast almennilega í gang. Þessi frábæra markvarsla sem og mjög góður varnarleikur liðsins í fyrri hálfleiknum skóp fjöldann allan af ódýrum mörkum í formi hraðaupphlaupa og var þessi frammistaða varnar og Hreiðars í raun lykillinn að sigri íslenska liðsins. Hvað sóknarleik liðsins varðar þá reyndi ekki mikið á hann í fyrri hálfleik þar sem liðið stóð lungann af hálfleikn- um í vörn og 2/3 marka liðsins komu eftir hraðaupphlaup. Seinni hálfleikurinn byrjaði illa og spilaðist því miður ekki eins vel og sá fyrri og kom þar sérstaklega til að sóknarleikur liðsins var engan veginn viðunandi og þó að varnarleikur liðsins sem og markvarsla hafi verið í lagi í hálfleiknum voru þeir þættir ekki jafn sterkir og í þeim fyrri. Taka verður þó með í reikn- inginn að í raun var leiknum lokið í hálfleik og frammistaðan í seinni hálfleiknum því kannski ekki nægjanlega marktæk. Góður íslenskur sigur var því staðreynd og þungu fargi eflaust af mörgum létt því auðvitað var maður eilítið áhyggjufullur eftir frammi- stöðuna gegn Svíum. Hins vegar veldur það mér áhyggjum hvað framhaldið varðar að sóknarleikur liðsins skuli ekki vera betri og það er alveg kristaltært að hann verðum við að bæta fyrir leikinn gegn Frökkum ætlum við okkur sigur þar. Frammistaða leikmanna liðsins var til fyrirmyndar og þá sérstaklega þeirra sem stóðu vaktina í vörninni. Ég hef þegar nefnt frábæra frammistöðu Hreiðars í markinu og Sigfús stjórnaði vörninni sem herfor- ingi og skilaði því hlutverki sem til er ætlast af honum. Guðjón Valur stóð fyrir sínu, Alex var öflugur sem fyrr, jafnt í sókn sem vörn og alltaf er jafn gaman að fylgjast með ósérhlífni og dugnaði Robba á línunni. Logi komst einnig nokkuð vel frá leiknum sem og Ásgeir en það voru einkum Einar og Snorri og þá sérstaklega Einar sem ekki fundu sig nægjanlega vel. Aðrir komu minna við sögu. Það er gríðarlega mikilvægt að Snorri fari að komast í gang. Allur okkar sóknarleikur veltur á frammistöðu Snorra og nú þegar Óli er ekki til staðar til að leysa hann af hólmi þá er það enn mikilvægara en áður að Snorri fari að sýna sínar bestu hliðar því án þess munum við eiga erfitt uppdráttar. Sigurinn í gær gefur engu að síður góð fyrirheit um framhaldið og auðvitað gríðarlega mikilvægt að fyrstu stigin og væntanlega sæti í milliriðli skuli vera komin í hús. Svo er bara að hlakka til leiksins í dag gegn Frökkum! HANDBOLTI Íslenska landsliðið er komið með annan fótinn í millirið- il EM í Noregi eftir sex marka sigur á Slóvökum, 28-22. Leikur- inn var mjög kaflaskiptur, Ísland átti frábæran fyrri hálfleik en gaf verulega eftir í þeim seinni sem liðið tapaði, 17-12. Íslenska liðið lék án Ólafs Stef- ánssonar í gær sem er meiddur. Hreiðar Guðmundsson byrjaði í markinu og Alexander og Einar mönnuðu hægri vænginn. Fyrri hálfleikur í gær var í einu orði sagt lygilegur. Strákarnir okkar buðu upp á flugeldasýningu af allra dýrustu gerð og gjörsam- lega slátruðu leiknum í fyrri hálf- leik. Leikmenn voru mjög einbeittir strax frá upphafi. Vörnin var mjög öflug með Sigfús Sigurðsson fremstan í flokki og Hreiðar var sterkur fyrir aftan en hann varði þrjú fyrstu skotin sem komu á markið. Íslendingar komst í 2-0 en Slóvakar jöfnuðu og fengu færi til þess að komast yfir. Þá kviknaði heldur betur á íslenska liðinu sem skoraði fjögur mörk í röð og leit aldrei til baka eftir það. Slóvakarnir voru eins og deig í höndunum á íslensku vörn- inni og fyrir aftan stóð Hreiðar í fantaformi en hann var með 77 prósenta markvörslu í fyrri hálf- leiknum sem er náttúrulega bara rugl. Í kjölfarið komu hraðaupphlaup- in og Íslendingar keyrðu yfir Sló- vakana á fullum krafti sem áttu engin svör. Austurrísku dómar- arnir leyfðu þeim ekki að keyra sínar löngu sóknir og lykilmenn þeirra voru heillum horfnir. Hálfleikstölur voru 16-5 og þar af komu þrjú marka Slóvaka úr vítum. Níu af sextán mörkum íslenska liðsins komu úr hraða- upphlaupum. Það gekk gjörsam- lega allt upp í þessum hálfleik og liðið spilaði meira að segja vel manni fleiri. Logi Geirsson batt endahnútinn á frábæran hálfleik með stórkostlegu marki á lokasek- úndunni. Eins og við mátti búast mætti íslenska liðið nokkuð værukært til síðari hálfleiksins. Slóvakarnir, sem voru að spila fyrir stoltið, komu aftur á móti grimmir úr klefanum og skoruðu fjögur fyrstu mörk hálfleiksins. Fyrsta íslenska markið kom ekki fyrr en eftir 4 mínútur. Hreiðar náði því miður ekki að fylgja eftir fyrri hálfleiknum, varði ekki skot og var tekinn af velli eftir 8 mínútur. Birkir kom inn á en fann sig aldrei almenni- lega þó svo að hann hafi varið nokkra bolta. Þegar Slóvakarnir voru farnir að þjarma að íslenska liðinu komu alltaf góðir, en stuttir, kaflar hjá íslenska liðinu. Það dugði til sex marka sigurs, 28-22, en síðari hálf- leikurinn var alls ekki nógu góður. Íslenska liðið er aftur á móti búið að hrista af sér mesta skrekk- inn og það var augljóslega þungu fargi létt af mönnum enda sat Svíatapið nokkuð í þeim. Það er mjög jákvætt hversu vel varnar- leikurinn gengur og mikil bata- merki voru á sóknarleiknum þótt hann eigi enn nokkuð í land. Engu að síður er alveg ljóst að liðið verður að leika betur í dag ætli það sér að leggja gríðarsterka Frakka að velli. Strákarnir sýndu þó í fyrra að það er vel hægt og takist það fer liðið með ágætis stöðu inn í milliriðilinn. Flugeldasýning í fyrri hálfleiknum Íslenska landsliðið lagði grunninn að sex marka sigri á Slóvökum, 28-22, með hreint út sagt stórkostlegum fyrri hálfleik þar sem allt gekk upp og Slóvakar skoruðu aðeins fimm mörk. ÓTRÚLEGT MARK Logi Geirsson endaði flugeldasýninguna í fyrri hálleik á einni risabombu en hann skorðai 16. markið með þrumuskoti lant fyrir utan punktalínu. Það stóð heldur ekki á viðbrögðum frá strákunum í liðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR EM Í NOREGI HENRY BIRGIR GUNNARSSON skrifar frá Þrándheimi henry@frettabladid.is HANDBOLTI Sigfús Sigurðsson hefur komið skemmtilega á óvart með frábærum varnarleik í fyrstu tveim leikjum Íslands en Sigfús þótti ekki sannfærandi í æfinga- leikjum fyrir mótið. „Það hefur gengið vel hjá mér. Ég var búinn að spila á ónýtu hné í tvö og hálft ár og loksins er það komið í lag. Þá get ég hreyft mig almennilega og þá hættir Alfreð að bölva manni. Hann bölvaði ekki mikið í dag,“ sagði Sigfús kátur. „Að sjálfsögðu er þungu fargi létt af mönnum eftir að hafa náð þessum sigri. Við spiluðum frá- bærlega í fyrri hálfleik en skitum upp á bak í þeim seinni. Það er ekkert flóknara en það. Ef við hefðum spilað á móti sterkara liði þá hefðum við vel getað tapað. Birkir varði svo mikilvæga bolta og vörnin hélt vel,“ sagði Sigfús sem vill sjá liðið gera enn betur. „Við verðum samt að ná góðum 60 mínútum. Það eru allt atvinnu- menn að spila hérna og slíkir menn eiga að geta spilað á fullu í 60 mínútur. Ef við ætlum að gera eitthvað í þessu móti verðum við að spila vel allan leikinn í sex eða sjö leiki í viðbót. Þetta eru vand- ræði með hugarfarið og ég trúi að menn geti vel lagað það,“ sagði Sigfús. – hbg Varnartröllið Sigfús Sigurðsson brosti allan hringinn eftir Slóvakaleikinn: Alfreð er hættur að bölva mér SIGFÚS OG ALFREÐ Alfreð Gíslason er ánægður með frammistöðu Sigfúsar Sigurðssonar á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI „Það var gott að sigra en mér líður samt ekki alveg eins og sigurvegara eftir þennan síðari hálfleik,“ sagði Einar Hólmgeirsson en hann leysti Ólaf Stefánsson af hólmi en fann sig ekki nógu vel í leiknum. „Það er þó kominn einn góður hálfleikur og við sjáum nú hvað við getum gert. Vonandi tökum við 60 góðar mínútur gegn Frökkum. Ég er ekki alveg búinn að vera nógu góður en held áfram að reyna. Ég veit að þetta mun koma hjá mér,“ sagði Einar sem hefur aðeins skorað 2 mörk úr 13 skotum í fyrstu tveimur leikjun- um á EM í Noregi. - hbg Einar Hólmgeirsson: Þetta mun koma hjá mér HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs- son bar fyrirliðabandið í fjarveru Ólafs Stefánssonar í gær. Hann átti fínan leik og skoraði mörg góð mörk. „Það er heldur betur þungu fargi létt af mönnum. Fyrri hálfleikurinn var mjög góður en eftir seinni hálfleikinn er ég ekki alveg viss um hvort ég eigi að hlæja eða gráta. Það var ekki hægt að fara fram á annan hálfleik eins og þann fyrri en við áttum samt að gera betur,“ sagði Guðjón Valur en hann var vel stemmdur í gær og fagnaði mörkum sínum vel. „Frakkaleikurinn leggst vel í mig og ég vona að þeir séu svolítið hræddir við okkur eftir tapið í fyrra. Þá vanmátu þeir okkur svolítið og mættu rólegir en þeir mæta dýrvitlausir til leiks frá upphafi núna.“ - hbg Guðjón Valur Sigurðsson: Þungu fargi létt af mönnum MIKILL LÉTTIR Guðjón Valur Sigurðsson lét tilfinningarnar í ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI „Sjálfstraustið var ekki alveg í botni fyrir þennan leik og menn voru nokkuð þungir. Við rifum okkur samt upp og þetta var fín endurkoma. Fyrri hálfleikur var frábær og stemn- ingin geggjuð,“ sagði Logi Geirsson brosmildur. „Þetta var jákvætt og við kláruðum leikinn þó svo að við hefðum lent í nokkru basli í seinni hálfleiknum. Við gerðum þetta óþarflega spennandi. Ég held að menn séu klárir í Frakk- ana og ég hlakka mikið til að spila þann leik. Við unnum þá síðast og þeir hafa ekki gleymt því og við þurfum að gera meira þar til þess að vinna.“ - hbg Logi Geirsson eftir leikinn: Fín endurkoma VINSÆLL Logi Geirsson kveikti nokkrum sinnum í stúkunni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI „Það var erfitt að kyngja Svíatapinu en menn voru alltaf staðráðnir í að koma sterkir til baka. Við vissum hvað klikkaði gegn Svíum og menn ætluðu ekki að gera sömu mistökin,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson sem fagnaði hæfilega mikið. „Það er jákvætt hversu vel fyrri hálfleikurinn gekk. Sóknin er að batna en við getum gert betur. Það verður vonandi áfram stígandi. Frakkarnir verða erfiðir og ef við spilum eins og við getum best þá getum við unnið þá.“ - hbg Snorri Steinn Guðjónsson: Stígandi í liðinu GÓÐIR Markverðirnir Birkir Ívar Guð- mundsson og Hreiðar Guðmundsson hafa staðið sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.