Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 24
MENNING 4 A lþjóðlegar leiklistar- hátíðir í Evrópu og Bandaríkjunum eru vettvangur leikhúsfólks hvaðanæva að. Þar gefst listamönnum, listrænum stjórnend- um og áhorfendum færi á að upp- lifa nýjustu strauma og stefnur í leiklist. Á hátíðum sem þessum myndast oft öflug tengsl, lögð eru drög að nýjum verkefnum og sam- starfi landa á milli. Lókal, fyrsta alþjóðlega leiklist- arhátíðin á Íslandi, verður haldin dagana 6.-9. mars 2008 í miðborg Reykjavíkur. Markmiðið með hátíð- inni er að kynna Íslendingum það markverðasta sem verið er að gera í leikhúslífi Evrópu og Bandaríkj- anna og tefla um leið fram frábær- um sýningum íslenskra leikhús- manna. „Nafnið felur í sér þann skilning að allt það áhugaverðasta í listum sé sprottið af þörf okkar fyrir að endurspegla okkar nánasta umhverfi,“ segir Ragnheiður Skúla- dóttir, leikkona og forseti leiklistar- deildar Listaháskólans, en þau hjónin Bjarni Jónsson, leikskáld og þýðandi, hafa hrundið hátíðinni af stokkunum. „Hugmyndin kviknaði á Manhatt- an. Kunningi okkar hafði áhuga á að flytja inn sýningu, og þá fórum við að hugsa hversvegna ekki að flytja inn fleiri: hér er komið dansfestival og tónlistarhátíðir af ýmsu tagi, en ekki leiklistarhátíð. Ég er menntuð í Bandaríkjunum og hefur alltaf fundist tal um bandarískt leikhús einkennast af miklum sleggjudóm- um og vankunnáttu hér á landi. Bjarni þekkti vel til í Evrópu og við töldum möguleika á að halda hér árlega hátíð sem kynnti það nýjasta frá Ameríku og Evrópu og víðar að. Við sáum þá möguleika að fá hingað tengla og blaðamenn svo úr yrði umfjöllun sem vekti athygli. Og tenglar sem gætu leitt til frekara samstarfs. Með því að nýta þá aðstöðu og þá þekkingu sem hér er fyrir hendi skjótum við stoðum undir leiklistarhátíð sem vekja mundi athygli langt út fyrir land- steinana.“ Til þessa hefur leikhúsáhugafólk á Íslandi sótt til útlanda til þess að sjá nýstárlegt leikhús, nú mun heim- urinn sækja okkur heim! Þau fengu sér til liðsinnis Elenu Kruskemper, listrænan stjórnanda, sem hefur starfað fyrir listatvíæringinn Bonn Biennale síðustu tíu árin, og Guð- rúnu J. Guðmundsdóttir starfs- mannastjóra Háskóla Íslands. Bak- hjarlar hátíðarinnar í ár verða Reykjavíkurborg, menntamálaráðu- neytið, Glitnir, Icelandair og Ferða- málaráð, Iceland Naturally. Er fjár- hagsáætlun vel á annan tug milljóna og enn er verið að draga að styrki svo hátíðin gangi upp. Fyrir réttri viku hittum við Ragn- heiði og Elenu á Hressó en þar verður kaffihús hátíðarinnar þá daga sem hún stendur. Elena hefur komið hingað til lands áður á vegum hátíðarinnar í Bonn og er því orðin nokkuð kunnug svipmóti íslenskra leikflokka. Nú er brýnt að finna sýningarsal fyrir gestasýningarnar þrjár. „Hér vantar sal sem er svartur kassi,“ segir Ragnheiður. „Við verðum að finna hús sem er hrátt og rýmir vel þær sýningar sem hingað koma og teljum okkur vera búnar að finna það: gamla Frónverksmiðjan við Skúlagötu hentar vel. Þar eru að vísu gluggar en við eigum ekki að loka heiminn úti, nútímaleikhús vill hafa gátt til þess umhverfis sem skapar það,“ segir Elena. Frón-salina fá þær með tilstyrk Samson Properties. Þær eru enn að skoða og meta innlendu sýningarnar sem koma til álita, en afráðið er hverjir gestaflokkarnir verða á hátíðinni og er fjallað um þá hér á síðunni. Aðrir sýningarstaðir verða Tjarnabíó, Þjóðleikhús og Borgarleikhús auk annarra óhefð- bundnari staða. Elena segir þennan tíma ákjósan- legan: hið alþjóðlega hátíðaár stendur frá apríl fram í september og sú ákvörðun að hefja hátíðina svona snemma þýðir að margir munu hefja ferðalög sín um evr- ópska listahátíðahringinn hér. Elena segir áhorfendur hér á landi vera opna, „ótrúlega“ opna. Hún hefur starfað við listahátíðir síðan 1994 ef frá er talinn skammur tími sem hún vann við Schaubuhne í Berlín. Hún er því þaulkunnug því sem er að gerast á þessum vettvangi í heiminum og gat Lókal ekki fengið betri ráðgjafa til samstarfs. LÓKAL OG GLÓBAL HEIMURINN OG HEIMA L eikstjórinn Peter Maxwell hefur um langan aldur verið áberandi í jaðarleikhúsi New York. Hann kemur hingað með verk sitt, Óður til mannsins sem krýpur, söngleik sem segir frá einmana sálum á reiki í hinu ímyndaða vestri með tilheyrandi söngvum og hljóðfæraslætti. Verkið var frumsýnt í haust í Perform- ing Garage í Soho og fékk þá góða dóma gagnrýnenda en rygti Maxwell stendur á djúpum grunni þar í bæ. Sýningin er framleidd með aðilum vestan hafs og austan og flutt af fimm leikurum. Elena lýsir verkinu sem cowboy-harmleik: „Maxwell neitar að vinna með ýmis meðul sem við erum vön í leikhúsi: það er sett og búningar, handrit en enginn leikur. Hann vill þannig skapa rými fyrir áhorfendur til að geta sér til um hver sagan er. Stílnum hefur verið lýst sem „Dead Pan Acting“ sem hann þolir ekki, en heitið segir sína sögu. Það er engin túlkun í texta, engin sálfræðileg aðkoma í túlkun, enginn natúralismi. En ef maður gefur sig á vald verkunum reynast þau mjög rík tilfinn- ingaleg upplifun.“ Maxwell vinnur bæði með leikmönnum og leikurum. Fyrirhugaðar eru fjórar sýningar á Óðnum. EINMANA KÚREKAR Augnablik úr Óðnum til mannsins sem kraup. MYND: PIECE BY PIECE PRODUCTIONS/LOKAL F ranski flokkurinn sem hingað kemur, Vivarium, er með nokkur verk á verkefnaskránni og heldur sig mest í París. En Effet de Serge heitir sýningin sem hér verður flutt af hópi leikara með íslenskri þátttöku. Sýningin snýst um tiltekinn fjölda af gripum, hversdagsleg- um gripum sem verða uppspretta athafna. Hún gerir ráð fyrir þátttöku gesta og því verða félagar í leikflokknum að reiða sig á íhlutun frá heimamönnum. Frásagnarmátanum er lýst sem hugvitslegum og atburðarásin kalli til endurskoðunar á hugmyndum okkar um leikinn, sýninguna og – lífið. ERLENT VERK Á ÍSLENSKU Sviðsmyndin í frönsku gestasýningunni sem hingað kemur á Lókal. N ature Theatre of Oklahoma er annar leikflokka á Lókal sem koma frá New York og lýtur stjórn hjónanna Pavol Liska og Kelly Cooper: No dice heitir sýningin og hefur nýlokið ferli sínum á SoHoR- ep og var uppselt á allar sýningarnar. Bæði eru þau hjón menntuð í Dartmoor og Liska starfaði um hríð með Richard Foreman, félagi hans og sambýliskona vann aftur á La Mama svo bæði eru þau verseruð í heimi jaðarleikhússins í New York. Textinn í sýningu þeirra er sóttur í símtöl sem Liska hljóðritaði um margra mánaða skeið. Hann er fluttur við dans og bera flytjendur skrautleg gervi en flutningsmátinn er dauflegur, eintóna. Niðurröðun og athafnir sem virðast ekki vera fyrirfram skipulagðar voru unnar með tilviljun. Leikstjóri og höfundur gáfu vald sitt eftir og tilviljun var látin ráða, rétt eins og John Cage vann með. Margar fastar hefðir hins hefðbundna leikhús er samt að finna í sýningunni sem tekur á fjórðu klukku- stund í flutningi og kann að reyna á þolinmæði leikhúsgesta sem verða að setja í annan gír í sætum sínum en þeir eru vanir. En efniviðurinn er þeim samt kunnuglegur, umtalsefni í símtölum, mas, þvaður og fastar klifanir í merkingu verða flytjendum efniviður. Rík áhersla er lögð á framburð og skrautlega búninga. Og svo er dansað. Sýningin hefur farið víða um Bandaríkin og Evrópu og fer héðan til Noregs, Belgíu og Portúgals. BEINT ÚR KAFKA Augnablik úr sýningu náttúrulega leikhússins frá Oklahoma sem sækir heiti sitt í leikhús í sögu Kafka, Ameríku. Lókal – Leiklistarhátíð í Reykjavík verður haldin í mars með alþjóðlegu sniði þar sem boðið verður upp á sýningar þriggja erlendra leikfl okka auk innlendra verkefna, bæði þeirra sem hafa verið í gangi um nokkurt skeið og eins mun Erna Ómarsdóttir kom heim frá frumsýningu á nýju verki sínu í Brest og slútta hátíð- inni þann 9. mars. LEIKLIST PÁLL BALDVIN BALDVINSSON M YN D : F RÉ D ÉR IC D ES M ES U RE /L O KA L Erna Ómarsdóttir í Talking Tree en hún frumsýnir verkið í Brest meðan á Lokal stendur og kemur heim sérstaklega til að sýna verkið hér og lýkur með því hátíðinni. einstakt eitthvað alveg Skipholt 50A • sími: 581 4020 www.gallerilist.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.