Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 100
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Barcelona
21.–24. mars
Fararstjóri: Halldór Már Stefánsson
Verð á mann í tvíbýli
59.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, gisting á Covadona-hótelinu
með morgunverði, akstur til og frá flugvelli
og íslensk fararstjórn.
Hafðu gaman um páskana og skelltu þér til London, Berlínar eða Barcelona. Express ferðir bjóða páskaferðir til
þessara spennandi stórborga á frábæru verði. Þú finnur allar nánari upplýsingar á vefnum okkar, www.expressferdir.is.
London
19.–23. mars
Fararstjóri: Þóra Karítas Árnadóttir
Verð á mann í tvíbýli
59.700 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, gisting á Holiday Inn Bloomsbury
með morgunverði og íslensk fararstjórn í
skoðunarferðum.
Berlín
21.–24. mars
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
Verð á mann í tvíbýli
56.700 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, gisting á 4* hóteli með
morgunverði, akstur til og frá flugvelli og
íslensk fararstjórn.
Páskapakkar Express ferða
Nýlega bárust fréttir af því að reykvísk athafnakona hefði
tapað morð fjár á fjármálamark-
aði. Hún bar sig afar aumlega yfir
því að hafa tapað hundruðum
milljóna sem hún fékk lánaðar til
að nota í fjárhættuspil. Á sama
tíma er ekki hægt að greiða þeim
sem annast börnin okkar mann-
sæmandi laun og gamalmennum
er hrúgað inn á fjársveltar stofn-
anir og gert að lifa á smánarlegri
hungurlús.
FORÐUM daga sagði vitur maður
einmitt að menningarstig þjóða
mætti ráða af því hvernig þær búa
að börnum og öldruðum. Það er
mikill áfellisdómur yfir Íslending-
um. Ég vona að mér fyrirgefist að
gráta þurrum tárum yfir óförum
athafnakonu þessarar.
MARGT getur haft áhrif á gildis-
mat þjóðar og siðferði. Það gildir
líka um einstaklinga. Hömlulaust
neyslubrjálæði hefur persónu-
leikabreytandi áhrif á fólk og
veldur stigvaxandi siðblindu.
Leggist brjálæði á heilar þjóðir
getur það sent þær aftur á sið-
ferðilegt steinaldarstig. Þegar ein-
staklingar hafa keyrt líf sitt í and-
legt gjaldþrot með þrotlausri,
hugbreytandi neyslu, er algert
úrræðaleysi oft forsenda þess að
þeir nái bata.
EKKERT nema fullkomin uppgjöf
getur fyllt þá þeirri örvæntingu
sem þarf til að þeir endurskoði líf
sitt og gildismat, forgangsraði upp
á nýtt og átti sig á því hvað það
raunverulega er sem gefur lífinu
gildi og hvað það er sem byrgir
sýnina á hin sönnu lífsins gæði. Þá
verður það sjálfkrafa að keppi-
kefli að láta neysluna lönd og leið.
Þótt fólk geti þurft að glíma við
erfið fráhvarfseinkenni, jafnvel
þrálát síðhvörf, þá hættir neyslan
að vera eftirsóknarverð. Það að
vera laus úr vítahring neyslunnar
verður dýrðlegri munaður en fólk
óraði fyrir því að væri til. Kannski
virkar sama lausn fyrir þjóðir sem
blindaðar eru af neysluæði.
EINHVER kann að hugsa sem svo
að þetta sé ekki sambærilegt, að
þótt bæði fíklar og athafnafólk
helgi líf sitt og vilja því að „kom-
ast í efni“ hvað sem það kostar, þá
sé merking orðasambandsins ger-
ólík á milli þessara tveggja menn-
ingarheima. Gott og vel. En þeim,
sem eru þeirrar skoðunar að
neysla Íslendinga hafi ekki haft
persónuleikabreytandi áhrif á
þjóðarsálina upp á síðkastið, ráð-
legg ég að skríða upp úr holunni
sem þeir hafa hafst við í síðastliðin
fimmtán ár og líta í kring um sig.
Komdu fagn-
andi, kreppa!
Í dag er sunnudagurinn
20. janúar, 20. dagur ársins.
10.44 13.28 16.34
10.47 13.23 16.00