Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 20.01.2008, Qupperneq 11
SUNNUDAGUR 20. janúar 2008 11 SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. M AD R ID BARCELO NA PARÍS LONDON MANCHESTER GLASGOW MÍLANÓ AMSTERDAM MÜNCHEN FRANKFURT BERLÍN KAUPMANNAHÖFN BERGEN GAUTABORG OSLÓ STOKKHÓLMUR HELSINKI HA LIF AX BO ST ONORL AND O MINNE APOLIS – ST. PAUL TORO NTO NE W Y OR K REYKJAVÍK AKUREYRI HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 99 77 0 1 /0 8 4. dagur – 4. útkall Halifax á Hagkaupsverði Kauptu miða á www.icelandair.is í dag eða í verslunum Hagkaupa í Holtagörðum, Kringlunni, Smáralind eða á Akureyri. 50 FERÐAVINNINGAR Allir kassastrimlar eru happdrættis- miðar. Neðst á strimlinum er 7 stafa númer. Þú ferð inn á www.icelandair.is og slærð þar inn númerið og færð samstundis svar við því hvort þú hafir dottið í lukkupottinn. Hafið sætisólarnar spenntar Við kynnum 24 spennandi áfangastaði Icelandair árið 2008, helgarferðir, sumarævintýri og sérferðir. Nýr ferðabæklingur Icelandair, Mín borg, liggur frammi í öllum verslunum Hagkaupa. Þetta er verslunarstjórinn sem talar Full búð af spennandi Duty Free tilboðum. Duty Free tilboð á sælgæti og fleiru. Ferðadagar Icelandair og Hagkaupa frá 17.–27. jan. Halifax Hvert viltu fara? á 15% afslætti í dag* + Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is * Í dag, 20. janúar, bjóðum við 15% afslátt af öllum fargjöldum á Best Price og Economy fargjaldaflokkum til Halifax. Ferðatímabil er til og með 31. desember 2008. Hvar í flokki sem við stöndum, hvar í mannvirðingarstigan- um sem við erum, þá vona ég að við getum öll verið sammála um að flokkspólitískar mannaráðn- ingar, úthlutun takmarkaðra gæða, vinagreiðar og mismunun, byggð á sérgæsku, klíkuskap eða geðþótta koma ekki aðeins óorði á stjórnmálin, heldur eru slíkar ráðningar brot á mannréttindum. Þær eru leifarnar og arfurinn frá því spillta gerræði sem tíðkaðist hér á landi um ár og aldir. Meðan við vorum ennþá bananalýðveldi. Jú, jú, það hefur vissulega dregið úr klíkuskapnum við ráðn- ingar í opinber embætti. En því miður, verð ég að segja, gerist það enn að stjórnvöld eru ásökuð um að beita slíkum vinnubrögðum. Og mér finnst það skinhelgi ráða- manna, þegar þeir neita því, blá- saklausir í framan, að vinatengsl eða pólitík hafi nokkuð með það að gera, hverjum þeir veita störf- in. Það sjá allir fingraförin og lygamerkið. Gagnrýnin er ekki út í bláinn og kurrið í almenningsálitinu er ekki að ástæðulausu. Og ekki til að hundsa. Fólk sér í gegnum pólit- ísku tengslin, venslin og vin- áttuna. Og við skulum líka játa að allir flokkar, sem hafa komist til valda og komast enn til valda, eru meira og minna undir sömu sök seldir. Hver man ekki eftir því, sem kom- inn er til ára sinna, hvernig Alþýðuflokkurinn gamli var bendlaður við bitlingatalið? Hver man ekki eftir Þormóðs ramma málinu eða þegar Síldarverk- smiðjur ríkisins voru seldar? Sumir eru enn með óbragð í munn- inum frá þeirri episódu þegar skipað var í Hæstarétt ekki margt fyrir löngu og ættartengslin þóttu vega þyngst. Eða flokksböndin hjá Íhaldinu. Þá er flestum í minni þegar Framsóknarflokkurinn gerði grímulausa tilraun til að koma allsendis óreyndum og alls ókunn- um manni í fréttastjórastarf hjá Ríkisútvarpinu. Og auðvitað var úthlutun fiskikvótans og frjálsa framsalið ekki til annars en að hygla bandamönnum og viðhlæj- endum þáverandi stjórnarflokka í sjávarútveginum. Sérhagsmuna- gæsla eins og hún getur verst orðið. Er þá enn ótalið og óupplýst hvernig staðið var að sölu ríkis- bankanna og þá einkum Búnaðar- bankans. Lyktin af þessu málum öllum og mörgum öðrum angar ennþá langar leiðir. Sem undir- strikar þá staðreynd að það getur enginn kastað steinum úr sínu pól- itíska glerhúsi. Stjórnarandstað- an og þá sérstaklega Framsóknar- flokkurinn hefur ekki úr háum söðli að detta án þess að ég vilji sérstaklega nota smjörklípu- aðferðina til að þvo hendur núver- andi ríkisstjórnar. Ég er bara að minna á að það búa allir í þessu glerhúsi. Aðför að mannréttindum Sem betur fer hefur dregið úr þessum klíkuskap og valdníðslu í áranna rás. Þökk sé frelsinu og gegnsæinu í þjóðfélaginu, fagleg- um hæfniskröfum og meira aðhaldi hins almenna borgara. Þetta snýst ekki um þann sem er ráðinn, heldur um hina sem ekki fá að njóta sannmælis. Það hlýtur nefnilega að vera réttur sérhvers manns að vera metinn að verð- leikum en ekki flokkspólitískum skoðunum. Auðvitað er það stundum rétt- lætanlegt að velja til embættis eða forstöðu, fólk sem er á sömu línu í pólitík en það er þá til að hrinda einhverjum pólitískum verkefnum í framkvæmd. Það á enginn að gjalda fyrir það að vera samflokka. Opinberar embættis- veitingar, hvort heldur í dómara- sæti, forstöðu í faglegum stofnun- um eða störf innan stjórnsýslunnar eiga hins vegar að vera metnar og ákveðnar í samræmi við mennt- un, reynslu og hæfni, hvar svo sem viðkomandi skipar sér í flokk. Eða viljum við þurfa að kenna börnunum okkar þá lexíu að ger- ast höll undir tiltekinn valdamik- inn stjórnmálaflokk í hagsmuna- skyni? Til að komst áfram? Til að fá fyrirgreiðslu í framtíðinni? Selja sál sína og jafnvel sannfær- ingu af ótta við að vera ella mis- munað og útskúfað? Sú spilling sem fylgir geðþótta- ákvörðunum er grímulaus aðför að mannréttindum. Sannmæli og verðleikar Einmitt af því að ástandið hefur lagast og valdamenn komast sjaldnar upp með valdníðslu við embættisveitingar ber að hlusta og taka mark á almenningsálitinu þegar stöðuveitingar eru annars- vegar. Þá gagnrýni sem fram hefur komið að undanförnu ber að taka alvarlega vegna þess að hún er krafa um vönduð vinnu- brögð. Gagnrýnin er krafa um að ný ríkisstjórn og nýir vindar sem blása að öðru leyti í stjórnarráð- inu, láti alla njóta jafnræðis og pólitísks hlutleysis. Núverandi ríkisstjórn á að fara á undan með góðu fordæmi. Til þess er til hennar stofnað. Breyta til. Hverfa frá bananalýðveldinu. Það er ein- mitt í svona málum sem ráða- menn eru dæmdir af verkum sínum. Vitaskuld verður hlutunum aldrei komið svo fyrir að val í stöður orki ekki tvímælis. En aðalatriðið er að rétt og heiðar- lega sé að þeim staðið. Reglum sé fylgt og mark sé tekið á hlutlausu mati. En fyrst og síðast er að virða þá grundvallarreglu að mannréttindi séu tekin alvarlega og hver og einn njóti sannmælis og verðleika, án þess að flokks- skírteini þurfi að vera með í far- teskinu. Málið snýst nefnilega ekki um þá sem fá stöðurnar heldur hina sem eru sniðgengnir. Pólitískar ráðningar Í DAG | Embættisveitingar ELLERT B. SCHRAM
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.