Fréttablaðið - 20.01.2008, Page 16
16 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
40
63
6
0
1.
2
0
0
8
Fimmtudagskvöld eru
fjármálakvöld
Fjármálakvöld fyrir alla
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld“, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning.
Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um þætti sem lúta að fjármálum heimilanna, fjárfestingartækifærum
og skattamálum. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.
Hvernig gerðist þetta?
„Þann 21. október tilkynnti ég
Helga Hjörvari, þáverandi for-
manni hússjóðsins, að ég myndi
leggja til að ný stjórn tæki við hús-
sjóði ÖBÍ. Hússjóðurinn er séreign-
arstofnun en ÖBÍ skipar fjóra af
fimm stjórnarmönnum og félags-
málaráðuneytið einn. Helga var þá
löngu ljós óánægja mín með stjórn-
unarhætti sjóðsins og hvernig þjón-
usta hans við íbúa hefur verið, því
ég hafði komið á framfæri kvörtun-
um og aðfinnslum í nánast hverri
einustu viku frá því árið 2005 eða
frá því ég var kjörinn formaður
Öryrkjabandalagsins.
Þetta átti því ekki að koma honum
á óvart og meirihluti framkvæmda-
stjórnarinnar var mér alveg sam-
mála um nauðsyn þess að skipta um
stjórn.
Það vakti óneitanlega furðu mína
hve mikil fyrirstaða virtist vera við
breytingum af hálfu Helga Hjörvar
og Emils Thoroddsen, sérstaklega í
ljósi þess að Helgi og aðrir í stjórn
sjóðsins höfðu verið þar við völd í
tíu ár og einstaka menn lengur. En í
framhaldi af samræðum mínum við
Helga legg ég fram mína tillögu í
framkvæmdastjórninni í lok nóv-
ember. Á sama fundi leggur vara-
formaður Öryrkjabandalagsins,
Emil Thoroddsen, sem jafnframt
er stjórnarmaður í hússjóðinum,
fram aðra tillögu um óbreytta
stjórn. Þetta er því staðan í byrjun
desember. Sjötta desember geri ég
breytingartillögu við fyrri tillögu
til að koma til móts við gagnrýnis-
raddir og var tillaga mín samþykkt
í framkvæmdastjórninni mótat-
kvæðalaust en Emil Thoroddsen og
tveir til viðbótar sátu hjá.
Ég hélt að þetta myndi ganga í
gegn þótt ég vissi að andstaða væri
við tillögu framkvæmdastjórnar
hjá þröngum hópi fólks og þá sér-
staklega hjá Emil Thoroddsen,
Helga Hjörvari og svo kemur í ljós
að Garðar Sverrisson, fyrrverandi
formaður bandalagsins, er farinn
að blanda sér í þetta. Þeir þrír hafa
svo samband við aðildarfélögin og
reyna að gera tillögu meirihluta
framkvæmdastjórnar tortryggi-
lega og láta líta svo út að nái hún
fram að ganga þýði það einhvers
konar kollsteypu í málefnum banda-
lagsins og hússjóðsins. Það er auð-
vitað fráleitt í ljósi þess hverjir það
voru sem var verið að leggja til að
tækju við stjórnartaumum sjóðs-
ins. Þetta voru formenn og fram-
kvæmdastjóri virtra aðildarfélaga
sem standa svo sannarlega ekki
fyrir einhverja kollsteypu heldur
mjög fagleg og vönduð vinnubrögð.
En svo kemur að aðalstjórnarfund-
inum 10. janúar þar sem meðal
annars er til afgreiðslu ný stjórn í
hússjóðinum. Þá veit ég ekki annað
en að aðeins ein tillaga liggi fyrir
og ef önnur tillaga verði lögð fram
sé það tillaga um óbreytta stjórn
enda hafði annað ekki verið kynnt í
framkvæmdastjórn eða í aðal-
stjórn. Þá gerist það á fundinum að
varaformaður bandalagsins kveður
sér hljóðs og leggur fram tillögu að
nýrri stjórn sem aldrei nokkurn
tímann hafði verið rætt um í stjórn-
um ÖBÍ. Tillagan er svo kynnt sem
tillaga minnihluta framkvæmda-
stjórnar ÖBÍ. Þetta kom því alger-
lega aftan að mér og meirihluta
framkvæmdastjórnar en greinilega
var búið að ræða um þetta í ein-
hverjum kreðsum innan sumra
aðildarfélaga bandalagsins enda
höfðu þeir betur með eins atkvæðis
mun. Þessi vinnubrögð eru fáheyrð
og auðvitað vítaverð. Það sem þó
undrar mig mest er hve Emil Thor-
oddsen og Helgi Hjörvar voru til-
búnir að ganga langt. Það vekur
óneitanlega upp spurningar hverra
hagsmuna þeir hafi raunverulega
að gæta? Niðurstaðan er svo sú að
Garðar Sverrisson fyrrverandi for-
maður ÖBÍ er orðinn formaður hús-
sjóðs ÖBÍ en það er ekki að sjá að
hann hafi sýnt hagsmunum leigj-
enda hjá hússjóði sérstakan áhuga í
sinni sjö ára formannstíð hjá banda-
laginu áður. Það er nú þannig að
þegar varaformaður félags, hvaða
félags sem það nú er, gengur fram
með þessum hætti og kemur svona
aftan að formanni félagsins með
tillögu sem ekki hafði verið kynnt
með neinum hætti, er búin að grafa
undan formanni félagsins mark-
visst svo mánuðum skiptir í félagi
við fyrrverandi formann Öryrkja-
bandalagsins og alþingismann sem
jafnframt var formaður hússjóðs-
ins, þá er þeim formanni ekki
sætt.“
Sigursteinn segir að þótt hússjóð-
ur Öryrkjabandalagsins sé sjálfs-
eignarstofnun telji hann formanni
Öryrkjabandalagsins bera siðferð-
isleg skylda til að gæta hagsmuna
íbúanna og hafa aðhald með þeim
störfum sem innt eru af hendi í
sjóðnum, þá sérstaklega þar sem
bandalagið skipar fjóra menn í
stjórn sjóðsins og ráðstafar fé til
hans en getur ekki haft bein áhrif á
að öðru leyti.
Þá hefur Sigursteinn margt við
fyrirkomulag á stjórnskipulagi ÖBÍ
að athuga. „Aðalstjórnin sam-
anstendur af fulltrúum allra 32
aðildarfélaga Öryrkjabandalags-
ins. Hvert aðildarfélag á því einn
fulltrúa í aðalstjórninni. Þeir hafa
svo allir jafnt atkvæðavægi hvort
sem félagið telur sjö þúsund manns
eða tuttugu. Það hljóta allir að sjá
að þetta er galli á fyrirkomulaginu
og að 32 manna stjórn getur ekki
tekið sjálfstæða og upplýsta
ákvörðun um öll þau stóru mál sem
verið er að leggja fyrir hana og af
þessum sökum sitjum við m.a. uppi
með þá stöðu sem nú er komin upp,“
segir hann en nú er einmitt uppi
kvittur um hvort Geðhjálp undirbúi
úrsögn úr bandalaginu. Með því
myndi eitt stærsta aðildarfélagið
hverfa frá.
Það kemur ef til vill ekki á óvart
að helstu óánægjunnar gæti helst
innan hagsmunasambands þeirra
sem eiga, eða hafa átt við geðrask-
anir að etja rétt eins og Sigursteinn
sjálfur. Þær raddir hafa þó einnig
heyrst að uppsögn Sigursteins megi
Eftirspurn eftir geðveikum
formanni með reynslu
Dauðaslys, líkfundir og slæmar aðstæður fatlaðra voru meðal þess sem Sigursteinn Másson greindi frá í greinargerð sem hann
lagði fram á fundi til að rökstyðja skoðun sína og meirihluta framkvæmdastjórnar Öryrkjabandalagsins um nauðsyn þess að
skipta um hússjóð bandalagsins. Tillaga hans náði ekki fram að ganga og sagði hann af sér í kjölfarið. Í viðtali við Karen D.
Kjartansdóttur fer hann yfir ástæður uppsagnarinnar, ástandið innan Örykjabandalagsins og það sem er framundan í lífi hans.
SIGURSTEINN MÁSSON Fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands.