Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 40
ATVINNA
20. janúar 2008 SUNNUDAGUR2012
•
•
•
•
•
•
•
•
Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 650 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
JÁRNIÐNAÐARMENN
ÍSTAK óskar eftir að ráða járniðnaðarmenn á járnsmíðaverkstæði.
Umsækjendur þurfa að hafa starfsreynslu í járnsmíði.
Í starfinu felst nýsmíði og uppsetning stálvirkja auk breytinga og
viðhalds á tækjabúnaði.
Menntasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/
storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 411 1111 færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Ingunnarskóli
óskar eftir:
Umsjónarkennara á miðstig
Áhugasamir hafi samband við:
Guðlaugu Sturlaugsdóttur, skólastjóra
ustur@ingunnarskoli.is 664-8265 eða
Þuríði Sigurjónsdóttur aðstoðarskólastjóra
thuridur@ingunnarskoli.is 664-8266 eða í síma 411-7828.
Tökum vel á móti góðu fólki.
Ingunnarskóli er framsækinn skóli með áherslu á sveigjanlega
starfshætti, einstaklingsmiðað nám, samkennslu árganga og teym-
isvinnu kennara. List- og verkgreinar skipa stóran sess og eru meðal
annars samþættar samfélags- og raungreinum í gegnum þemavinnu.
Markvisst er unnið að því að styrkja jákvæða hegðun nemenda. Skólinn
er móðurskóli í einstaklingsmiðuðu námsmati en auk þess er unnið að
mörgum þróunarverkefnum. Skólahúsið er hannað með hliðsjón af
hugmyndafræði skólans og styður því vel við starfi ð sem þar fer fram. Í
skólanum er mjög góður starfsandi og vel búið að kennurum.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá
borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heima síðu Reykjavíkurborgar: www.
reykja vik.is/storf Hjá síma veri Reykja vík ur borg ar, 4 11 11 11, færð þú all ar upp lýs ing-
ar um þjón ustu og starf semi borg ar inn ar og sam band við þá starfs menn sem þú
þarft að ná í.
Menntasvið
Grandaskóli
óskar eftir starfsfólki í eftirfarandi störf:
• Þroskaþjálfa, 75 - 100 % starfshlutfall.
• Matráði starfsmanna, 75 % starfshlutfall.
• Umsjónarmanni skóla, 100 % starfshlutfall.
• Skólaliða, m.a. til að sinna baðvörslu stúlkna, 75 - 100 % starfshlutfall
Umsóknarfrestur til 1. febrúar 2008
Nánari upplýsingar gefa Börkur skólastjóri borkur@grandaskoli.is og
Inga aðstoðarskólastjóri inga@grandaskoli.is ,sími 5611400
Grandaskóli stendur við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Nemendur
eru um 290 talsins í 1. - 7. bekk og við skólann starfa um 50 starfsmenn.
Mikill stöðugleiki hefur verið í starfsmannahaldi skólans og í hópnum
ríkir fagmennska, metnaður og góður andi.
Afgreiðslumaður
Kynnisferðir ehf. óska eftir að ráða
starfsmann til ferðaafgreiðslu í BSÍ.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði, auk
eins annars tungumáls (ensku).
Aðrar kröfur:
Góð tölvukunnátta
Falleg framkoma og þjónustulund
Þekking á landi og þjóð
Um er að ræða vaktavinnu.
Umsóknir sendist til Kynnisferða ehf.,
Vesturvör 34, 200 Kópavogi, eða til
sigridur@re.is. Öllum umsóknum er
svarað og farið er með þær allar sem
trúnaðarmál.