Fréttablaðið - 20.01.2008, Page 82
22 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
E
nginn bar eða skemmti-
staður hefur öðlast
jafnmikla frægð á
erlendri grund eins og
hinn litli og sóðalega
sjarmerandi Sirkus á
Klapparstíg. Fyrir heimamenn
hefur hann náð „költ“ status og
hefur verið helgidómur síðustu árin
fyrir tónlistarmenn, tískuhönnuði,
listamenn, rithöfunda og forvitna
ferðamenn. Utandyra er þetta lítið
hrörlegt hús málað glaðlegum litum
og innandyra eru gömul borð og
stólar, jólaseríur, plaköt og alls kyns
glingur. Allt frá því að Sirkus
breyttist úr litlum frönskum vínbar
og var keyptur af Sigríði Guðlaugs-
dóttur, betur þekktri sem Siggu
Boston, í lok tíunda áratugarins
virkaði hann sem segull á skapandi
fólk í 101 Reykjavík og tók við af
Kaffibarnum sem villtasti nætur-
klúbbur borgarinnar. Á nokkrum
sveittum fermetrum dönsuðu og
drukku tugir manns sem skapaði
það andrúmsloft sem ferðamenn
kölluðu „hið brjálaða hjarta Reykja-
víkur“.
Fræg andlit og fastagestir settu
sitt mark á staðinn. Þekktir erlendir
tónlistarmenn voru tíð sjón við
barborðið, til að mynda Raveonettes,
Blonde Redhead og Anton New-
combe úr Brian Jonestown
Massacre. Innlendar hljómsveitir
eins og GusGus, Singapore Sling,
Trabant og Sigur Rós gerðu staðinn
að sínum. Björk þeytti ósjaldan
skífum, hélt áramótapartí og tók upp
myndband með Spike Jonze á Sirkus.
Sirkus var reyndar nefndur Boston
af fastagestum eftir eiganda barsins
þar til að hinn raunverulegi Boston
var opnaður á Laugavegi. Á ári
hverju komu hótanir um að það yrði
að loka vegna brunahættu eða
annarra ástæðna, og brann meira að
segja að einhverju leyti fyrir
tveimur árum. En Sirkus átti sín níu
líf og hélst ótrauður opinn hvað sem
á dundi. Í garðinum myndaðist
skemmtileg stemning á sumrin þar
sem rokkbönd spiluðu eða fatamark-
aðir gæddu götuna lífi. Það fannst
ekki sú umfjöllun um Ísland á
erlendri grund þar sem ekki var
talað um Sirkus, „skrýtnasta,
skrautlegasta og frumlegasta bar“
sem fólk hafði augum litið. „Því
miður mun þessi menningarkimi
okkar hverfa,“ segir Sigga Boston.
„En það er borgin sem ræður þessu.“
Undirskriftalisti liggur frammi á
þessum síðustu dögum Sirkuss þar
sem velunnarar geta gert síðustu
tilraun um að bjarga barnum frá
borgarskipulaginu, og stórskemmti-
leg tónleikadagskrá mun eiga sér
stað þessar síðustu vikur sem enginn
má missa af.
Besti bar Reykjavíkur rifinn?
Sirkus á Klapparstígnum lokar alfarið dyrum sínum í byrjun febrúar en í hans stað á að reisa verslunarhúsnæði og bílastæði.
Anna Margrét Björnsson minnist hinnar frægu stemningar sem hefur ríkt á staðnum, stemningar sem verður sárt saknað ef fram-
kvæmdir ganga sem horfir. Myndir eftir Jóa Kjartans.
Því miður þá
mun þessi
menningar-
kimi okkar
hverfa. En það
er borgin sem
ræður þessu.“