Fréttablaðið - 20.01.2008, Síða 92
32 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR
sport@fretta-
Kjartan Henry Finnbogason skrifaði undir þriggja ára samning við
norska 1. deildar liðið Sandefjord í fyrradag eftir að hafa verið til
reynslu hjá liðinu í stuttan tíma. „Þetta gerðist allt svo fljótt að ég er í
smá sjokki yfir þessu. Ég kom til æfinga hjá liðinu á þriðju-
dag og strax á fimmtudag var farið að tala um samning og
ég skrifaði undir á föstudag. Ég var ekkert
viss um að félagið væri til í að borga allar
þær uppeldisbætur sem Glasgow Celtic
fór fram á, en þetta fór allt á besta veg
og gekk greiðlega fyrir sig,“ sagði Kjartan
Henry sem hafði farið víða á reynslu eftir að
hafa yfirgefið herbúðir Celtic. „Þetta er búið
að vera langt sumar og ég gerði kannski smá
mistök með því að vera að fara til jafn margra
félaga og ég gerði. Ég var með hugann
við Bristol City upphaflega en fór samt
sem áður á reynslu í millitíðinni hjá
Brann og Gautaborg og sagði þeim félögum að bíða þar sem ég ætl-
aði að skoða dæmið með Bristol City fyrst. En þannig ganga hlutirnir
vitanlega ekki fyrir sig í þessum heimi en ég lærði af því,“ sagði Kjart-
an Henry sem er ánægður með að vera nú loksins búinn að ná
lendingu í sínum málum. „Sandefjord var stofnað árið 1998
og er því mjög ungt félag sem var tvö tímabil í efstu deild
í Noregi en féll í 1. deild á síðasta tímabili og er ákveðið
að komast strax upp aftur. Ég er því mjög feginn að vera
kominn í góðan og spennandi klúbb með flott markmið
þar sem ég reikna með því að spila stórt hlutverk. Þess
vegna fór ég nú frá Celtic á sínum tíma, þrátt fyrir að
mér hafi verið boðinn samningur um að halda áfram
hjá félaginu, þar sem ég sá því miður ekki fram á
að fá mikið að spila með aðalliðinu þar. Mér fannst
ég því þurfa að breyta til og gera eitthvað í mínum
málum og ég hugsa að þetta sé rétta skrefið fyrir
mig akkúrat núna,“ sagði Kjartan Henry að lokum.
KJARTAN HENRY FINNBOGASON: SKRIFAÐI UNDIR SAMNING VIÐ NORSKA 1. DEILDAR FÉLAGIÐ SANDEFJORD
Ég reikna með því að leika stórt hlutverk í liðinu
Enska úrvalsdeildin
Birmingham-Chelsea 0-1
0-1 Claudio Pizarro (79.).
Blackburn-Middlesbrough 1-1
0-1 David Wheater (13.), 1-1 M. Derbyshire (75.).
Fulham-Arsenal 0-3
0-1 Emmanuel Adebayor (19.), 0-2 Emmanuel
Adebayor (38.), 0-3 Tomás Rosický (81.).
Portsmouth-Derby 3-1
0-1 Lewin Nyatanga (4.), 1-1 Benjani (38.), 2-1
Benjani (42.), 3-1 Benjani (55.)
Reading-Man. United 0-2
0-1 Wayne Rooney (77.), 0-2 C. Ronaldo (90.)
Tottenham-Sunderland 2-0
1-0 Aaron Lennon (2.), 2-0 Robbie Keane (90.)
Newcastle-Bolton 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI
Man. United 23 17 3 3 46-11 54
Arsenal 23 16 6 1 46-17 54
Chelsea 23 15 5 3 36-16 50
Liverpool 21 10 9 2 35-14 39
Everton 22 12 3 7 38-22 39
Aston Villa 22 11 6 5 40-28 39
Man. City 22 11 6 5 29-23 39
Portsmouth 23 10 7 6 34-23 37
Blackburn 23 10 7 6 31-30 37
West Ham 21 9 5 7 27-20 32
Tottenham 23 7 6 10 44-40 27
Newcastle 23 7 6 10 27-39 27
Middlesbr. 23 5 7 11 20-37 22
Reading 23 6 4 13 30-49 22
Bolton 23 5 6 12 24-34 21
Birmingham 23 5 5 13 23-34 20
Wigan 22 5 5 12 22-37 20
Sunderland 23 5 5 13 22-42 20
Fulham 23 2 9 12 23-42 15
Derby County 23 1 4 18 11-50 7
MARKAHÆSTIR
Cristiano Ronaldo, Man. United 17
Emmanuel Adebayor, Arsenal 15
Benjani, Portsmouth 12
ÚRSLITIN Í GÆR
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Davos
119.900 kr.
Verð á mann í tvíbýli
23. febrúar–1. mars
Skíðaferð
til Sviss
Express ferðir bjóða skíðaferð til Davos í svissnesku Ölpunum.
Frábær aðstaða, brekkur við allra hæfi og fagurt umhverfi.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, akstur til og frá
flugvelli, gisting á 4 stjörnu hóteli og hálft fæði.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Það verða tíu
erlendir keppendur sem taka þátt
í alþjóðlegu boðsmóti, Reykjavík
International, sem fram fer í
Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal
milli 14.30 og 16.30 í dag.
Mótið er liður í nýrri íþrótta-
hátíð, Reykjavík International,
þar sem um 2.000 íþróttamenn
keppa í níu ólíkum íþróttagrein-
um í Laugardalnum um helgina.
Mótið er samstarfsverkefni
Frjálsíþróttasambandsins og
Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkur.
Tíu erlendum keppendum frá
Noregi, Svíþjóð, Ungverjalandi
og Marokkó hefur verið boðið á
mótið og munu þeir etja kappi við
okkar besta frjálsíþróttafólk í
völdum greinum í spretthlaupum,
grindahlaupi, langstökki og
míluhlaupi.
Á mótinu verður keppt í
eftirfarandi greinum: 60m, 60m
grindahlaup, 200m, 400m, 800m,
míluhlaup, langstökk, hástökk og
kúluvarp. - óój
Reykjavík International 2008:
Tíu erlendir
keppendur með
Á SPRETTINUM Það verður spennandi
keppni í Laugardalshöllinni í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Staða toppliðanna í ensku
úrvalsdeildinni breyttist ekkert
eftir leiki gærdagsins, Manchest-
er United er enn á toppnum með
jafnmörg stig og Arsenal en betri
markatölu og Chelsea er enn
fjórum stigum á eftir.
Wayne Rooney og Cristiano
Ronaldo tryggðu Manchester
United 2-0 útisigur á Reading með
mörkum á síðustu þrettán mínút-
unum en Ívar Ingimarsson og
félagar í vörn Reading höfðu náð
að halda aftur af sóknarþunga
United fram að því. Mark Rooney
kom United yfir eftir frábæra
sendingu Carlos Tevez en mark
Ronaldo kom eftir hornspyrnu
Reading og skyndisókn United
þar sem Portúgalinn hljóp með
boltann upp allan völlinn og skor-
aði sitt 17. deildarmark á tíma-
bilinu.
Ívar Ingimarsson var búinn að
eiga mjög góðan leik og hafði séð
til þess að Wayne Rooney hafði
varla sést í leiknum þegar hann
slapp úr gæslu hans og skoraði.
„Við gáfum allt okkar í leikinn
en hæfileikar Wayne Rooney og
Cristiano Ronaldo voru of erfiðir
að eiga við. Við áttum góða spretti
í leiknum og þó að lokatölurnar
líti út eins og dæmigerður 2-0
sigur þá var hann það ekki,“ sagði
Steve Coppell, stjóri Reading,
eftir leikinn.
„Við fengum fullt af færum síð-
asta þriðjung leiksins en vorum
farnir að hafa áhyggjur þegar
markið kom ekki. Reading á heið-
ur skilinn fyrir að gefast aldrei
upp og láta okkur hafa mikið fyrir
þessum sigri,“ sagði Sir Alex
Ferguson, stjóri Manchester
United, eftir leikinn.
Emmanuel Adebayor skoraði
tvö fyrstu mörk Arsenal í 3-0 úti-
sigri á nágrönnum sínum í Fulham
og Tékkinn Tomás Rosický inn-
siglaði síðan sigurinn í lokin.
„Við stjórnuðum leiknum allar
90 mínúturnar og sigurinn var
aldrei í hættu. Þetta var mjög góð
endurkoma hjá mínum mönnum
eftir jafnteflið við Birmingham í
síðustu viku. Við gáfum nánast
engin færi á okkur og skoruðum
þrjú mörk á útivelli,“ sagði Arsene
Wenger, stjóri Arsenal eftir
leikinn.
Skallamark Claudio Pizarro
eftir hornspyrnu á 79. mínútu
tryggði Chelsea 1-0 útisigur á
Birmingham. „Þetta var mikil-
vægur sigur og við áttum hann
skilið þótt við spiluðum ekki vel,“
sagði Avram Grant, stjóri Chel-
sea.
Tottenham hóf og endaði leikinn
á mörkum en leikmenn Sunder-
land töldu sig eiga meira skilið en
að tapa 2-0 á White Hart Lane.
„Það er ótrúlegt að við höfum ekk-
ert fengið út úr þessum leik. Við
komum til baka í seinni hálfleik en
markvörðurinn þeirra varði ítrek-
að frábærlega,” sagði Roy Keane,
stjóri Sunderland, sem gagnrýndi
jafnframt varnarleik sinna manna.
Tottenham átti fyrri hálfleikinn en
lenti í vandræðum í þeim seinni.
Benjamin Mwaruwari, sem
gengur jafnan undir nafninu Benj-
ani, varð fyrsti leikmaðurinn í tvö
ár til þess að skora tvær þrennur á
sama tímabilinu þegar hann skor-
aði öll mörk Portsmouth í 3-1 sigri
á Derby. Annað mark Benjani kom
eftir stoðsendingu frá Hermanni
Hreiðarssyni.
ooj@frettabladid.is
Toppliðin unnu öll á útivelli í gær
Efstu þrjú liðin unnu öll sína leiki á útivelli í ensku úrvalsdeildinni þótt bæði Manchester United og Chel-
sea hefðu þurft að bíða lengi eftir marki. Benjani skoraði sína aðra þrennu fyrir Portsmouth í vetur.
ÍVAR Í BARÁTTUNNI Ívar Ingimarsson reynir hér að stopppa Carlos Tevez í gær. Ívar
átti mjög góðan leik í vörn Reading. NORDICPHOTOS/GETTY
> Grétar Rafn í byrjunarliði Bolton
Grétar Rafn Steinsson var í
byrjunarliðinu í sínum fyrsta
leik með Bolton í ensku
úrvalsdeildinni. Grétar lék
í stöðu hægri bakvarðar
og hjálpaði Bolton-lið-
inu að halda hreinu
og ná í stig á útivelli
gegn Newcastle. Það
voru fleiri á vellinum í
sínum fyrsta leik því Kevin Keegan
stjórnaði þarna liði Newcastle í
fyrsta sinn eftir að hafa tekið
við stjórastöðu liðsins í þriðja
sinn.
FÓTBOLTI Kevin Keegan á allt annað
en auðvelt verkefni fyrir höndum
og það sást vel á hans fyrsta leik í
markalausu jafntefli gegn Bolton
á heimavelli í gær.
Það eru aðeins fjórir dagar síðan
Keegan tók við og stuðningsmenn
félagsins bjuggust örugglega við
miklum mun á liðinu en reyndin
var önnur. Newcastle skapaði sér
varla færi frekar en liðsmenn
Bolton og úr varð steindautt
markalaust jafntefli. Newcastle er
þar með komið niður í 12. sæti og á
enn eftir að skora deildarmark á
árinu.
„Það var mikilvæg eftirvænting
í loftinu en Bolton spilaði skyn-
saman og skipulagðan leik og við
vorum ekki nægilega góðir til þess
að leysa það. Við söknuðum margra
leikmanna og við verðum betrim,
sérstaklega þegar við höfum náð
að auka breiddina í liðinu,“ sagði
Kevin Keegan eftir leik.
Gary Megson henti Grétari
Rafni Steinssyni beint í byrjunar-
lið Bolton og Grétar Rafn átti
góðan leik, tók Damien Duff í bak-
aríið sem endaði með því að Íran-
um var skipt út af. Grétar Rafn er
greinilega kominn til að vera í
hægri bakverðinum í liðinu.
- óój
Fyrsti leikur Kevins Keegan með Newcastle í gær:
Algjört markaleysi
VELKOMINN Það var vel tekið á móti
Kevin Keegan á St. James´s Park í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY