Fréttablaðið - 20.01.2008, Page 95
SUNNUDAGUR 20. janúar 2008 35
EM í handbolta
C-riðill
Ungverjaland-Þýskaland 24-28 (12-13)
Ferenc Ilyes 4, Tamas Mocsai 4, Balazs Laluska
4 - Torsten Jensen 5, Markus Baur 5/4, Pascal
Heinz 4. Johannes Bitter varði 12 skot
Hvíta Rússland-Spánn 31-36 (15-18)
Barys Pukhouski 8/1, Ivan Brouka 6/2 - Albert
Rocas 11/9, Alberto Entrerrios 9.
STAÐAN
Þýskaland 2 2 0 0 62-50 4
Ungverjaland 2 1 0 1 59-56 2
Spánn 2 1 0 1 64-66 2
Hvíta Rússl. 2 0 0 2 57-70 0
D-riðill
Ísland-Slóvakía 28-22 (16-5)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson 7
(12/1), Alexander Petersson 5 (9), Logi Geirsson
4 (9), Róbert Gunnarsson 4 (6), Ásgeir Örn Hall-
grímsson 2 (4), Snorri Steinn Guðjónsson 2/1
(5/2), Hannes Jón Jónsson 1 (1), Jaliesky Garcia
Padron 1 (1), Einar Hólmgeirsson 1 (6), Vignir
Svavarsson 1 (1).
Varin skot: Hreiðar Guðmundsson 9 (21/4)
43%, Birkir Ívar Guðmundsson 6 (16/2) 38%.
Hraðaupphlaup: 13 (Guðjón 5, Alexander 5,
Logi, Ásgeir, Vignir).
Fiskuð víti: 3 (Róbert 2, Guðjón)
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Slóvaka (skot): Radoslav Kozlov 7/5
(12/6), Frantisek Sulc 5 (11), Vlastimil Funak 2
(3), Michal Baran 2 (4), Martin Stranovsky 2 (3),
Csaba Szucs 2 (2), Radoslav Antl 1 (2/1), Peter
Dudas 1 (3).
Varin skot: Richard Stochl 17/2 (45/3) 38%.
Hraðaupphlaup: 5
Fiskuð víti: 6
Utan vallar: 14 mínútur.
Svíþjóð-Frakkland 24-28 (13-18)
Martin Boquist 4, Kim Andersson 4/1, Dalibor
Doder 4 - Oliver Girault 5, Luc Abalo 5, Nikola
Karabatic 5/1, Bertrand Gille 4, Jerome Fernand
ez 4, Daniel Narcisse 4.
STAÐAN
Frakkland 2 2 0 0 60-55 4
Svíþjóð 2 1 0 1 48-47 2
Ísland 2 1 0 1 47-46 2
Slóvakía 2 0 0 2 53-60 0
Stjörnudagur KKÍ
Karlalandsliðið-Úrvalslið 137-136 (74-68)
Stig Íslands: Páll Axel Vilbergsson 28 (hitti úr 12
af 15 skotum), Hlynur Bæringsson 19 (10 frák.,
12 stoðs.), Magnús Þór Gunnarsson 15 (hitti úr 5
af 8 3ja stiga, 8 stoðs.), Jóhann Árni Ólafsson 13,
Hreggviður Magnússon 13, Helgi Már Magnússon
12 (hitti úr 4 af 7 3ja stiga), Brynjar Þór Björns-
son 12 (hitti úr 4 af 6 3ja stiga), Sigurður Gunnar
Þorsteinsson 10, Hörður Axel Vilhjálmsson 9,
Kristinn Jónasson 4, Sveinbjörn Claessen 2.
Stig Iceland Express: Cedric Isom 29 (hitti úr
12 af 18 skotum), Jonathan Griffin 27, Tommy
Johnson 14, Bobby Walker 12, Darri Hilmarsson
10, Joshua Helm 9, Dimitar Karadzovski 9, Justin
Shouse 8, Damon Bailey 7, Óðinn Ásgeirsson 6,
Fanney Freyr Helgason 5.
Kvennalandsliðið-Úrvalslið 74-68
Stig Íslands: Signý Hermannsdóttir 17 (12 frák., 4
varin), Kristrún Sigurjónsdóttir 15, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 9 (7 frák.), Hildur Sigurðardóttir 6
(9 frák., 6 stoðs.), Petrúnella Skúladóttir 6, Unnur
Tara Jónsdóttir 6, Jovana Lilja Stefánsdóttir 6,
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 5, Sigrún Ámunda-
dóttir 4, Margrét Kara Sturludóttir 2 (9 frák.),
Fanney Lind Guðmundsdóttir 2.
Stig Iceland Express: Monique Martin 30 (9
frák.,5 stolnir, 23 mín.), Molly Peterman 12,
Kesha Watson 10 (4 stoðs.), Tiffany Roberson 9
(14 frák., 10 stoðs.), Ólöf Helga Pálsdóttir 9, Kiera
Hardy 8 (6 frák. 4 stoðs.), Rannveig Randvers-
dóttir 6, LaKiste Barkus 5, Telma Björk Fjalars-
dóttir 4, Pálína Gunnlaugsdóttir 3 (4 stoðs.),
Þórunn Bjarnadóttir 2, Íris Sverrisdóttir 2.
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Karlalandsliðið vann
eins stigs sigur, 137-136, á úrvals-
liði Iceland Express-deildar karla í
Stjörnuleik karla í gær en kvenna-
liðið varð að sætta sig við 22 stiga
tap, 78-100, fyrir samskonar
úrvalsliði úr Iceland Express-deild
kvenna. Stjörnuleikir KKÍ voru að
þessu sinni æfingaleikir landslið-
anna og því ekki um dæmigerða
stjörnuleiki að ræða að þessu
sinni.
Karlalandsliðið hafði betur á
æsispennandi lokamínútum en
úrvalsliðið var allan leikinn að
vinna upp frábæra byrjun lands-
liðsins sem var 39-28 yfir eftir
fyrsta leikhlutann. Hörður Axel
Vilhjálmsson fór mikinn í fyrsta
leikhluta og tróð þá meðal annars
þrisvar sinnum í körfuna með
miklum tilþrifum.
Páll Axel Vilbergsson brenndi
varla af skoti hjá landsliðinu og
lék mjög vel eins og Magnús Þór
Gunnarsson. Besti maður liðsins
var þó Hlynur Bæringsson sem
náði glæsilegri þrennu, skoraði 19
stig, gaf 12 stoðsendingar og tók
10 fráköst. Hlynur innsiglaði líka
sigurinn á vítalínunni í lokin.
Þórsarinn Cedric Isom og
Jonathan Griffin reyndu mikið og
skoruðu saman 56 stig fyrir úrvals-
liðið en sex leikmenn liðsins skor-
uðu á bilinu 9 til 14 stig. Bæði lið
skoruðu 20 þriggja stiga körfur en
landsliðið nýtti sín langskot betur,
49 prósent gegn 44 prósentum og
það átti mikinn þátt í sigrinum.
Alltof erfitt próf
Kvennalandsliðið lék sinn fyrsta
leik undir stjórn Ágústs Björg-
vinssonar þótt ekki hefði verið um
opinberan landsleik að ræða.
Íslenska landsliðið fékk alltof erf-
itt fyrsta próf því úrvalsliðið var
mun sterkara og vann öruggan
sigur.
Landsliðsstúlkurnar gáfust þó
aldrei upp og áttu nokkra góða
spretti og komu muninum niður í
3 stig í þriðja leikhluta og 12 stig
í þeim fjórða en nær komust þær
ekki.
Landsliðsfyrirliðinn Signý
Hermannsdóttir, Kristrún Sigur-
jónsdóttir og Guðrún Gróa Þor-
steinsdóttir voru atkvæðamestar
í landsliðinu en hjá úrvalsliðinu
var Monique Martin illviðráðan-
leg og Tiffany Roberson var
aðeins einu stigi frá þrefaldri
tvennu en auk stiganna 9 var hún
með 14 fráköst og 10 stoðsend-
ingar.
Hinn 17 ára Ólafur Ólafsson
frá Grindavík vann troðslu-
keppnina sem fram fór í hálfleik
á karlaleiknum. Ólafur hafði
betur í úrslitum á móti þeim
Tahirou Sani úr ÍR, Herði Axel
Vilhjálmssyni úr Njarðvík og
Bobby Walker í Keflavík. - óój
Landsliðin voru í sviðsljósinu á Stjörnudegi Körfuknattleikssambandsins í Íþróttahúsinu í Keflavík í gær:
Hlynur með þrennu í eins stigs sigri
SIGURTROÐSLAN Grindvíkingurinn Ólaf-
ur Ólafsson tryggir sér sigur í troðslu-
keppninni. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN
HANDBOLTI Alfreð Gíslason lands-
liðsþjálfari leyfði sér að brosa
eftir leikinn í gær enda hans menn
komnir með annan fótinn áfram í
keppninni en tap hefði þýtt að
Ísland væri líklega á leið heim á
morgun.
„Ég var mjög svekktur með síð-
ari hálfleikinn en hann sýndi að ef
við spilum ekki af fullum krafti þá
getum við ekki rassgat í hand-
bolta. Við spiluðum stórkostlegan
fyrri hálfleik þar sem vörnin var
frábær og markvarslan í hágæða-
klassa. Svo byrjar síðari hálfleik-
urinn hryllilega, menn gera tóma
vitleysu og það fór gríðarlega í
taugarnar á mér,“ sagði Alfreð en
hann veit sem er að hans menn
þurfa að gera betur í dag.
„Því miður datt markvarslan
aftur niður en við virðumst alltaf
bara fá markvörslu í hálftíma. Ég
var gríðarlega ánægður með
Hreiðar í fyrri hálfleik og sagði
við hann í hálfleik að hans verð-
laun væru að standa sig líka vel í
síðari hálfleik og stimpla sig inn í
alþjóðlegan klassa. Hann hvarf og
það var sorglegt fyrir hann þar
sem hann var frábær í fyrri hálf-
leik,“ sagði Alfreð.
Alfreð var ánægður með vörn-
ina og þá sérstaklega Sigfús. „Það
gerði Fúsa greinilega gott að vera
við það að detta úr hópnum sem og
vera sendur til Noregs að hreyfa
sig. Hann er búinn að vera vax-
andi og ég hef haldið honum við
efnið með því að spyrja hvort það
slokkni á honum í þriðja leik eins
og á síðasta HM eða hvort hann
ætli að halda áfram á sömu
braut.“
Alfreð játar að tapið gegn Svíum
hafi lagst þungt á menn og því hafi
þungu fargi verið létt af mönnum
í gær.
„Það var ekki bara tapið heldur
hvernig við töpuðum. Ef menn
vinna saman þá náum við árangri
en ef ekki þá getum við gleymt
þessu. Það var margt jákvætt í
þessu og ég er talsvert kátari
núna,“ sagði Alfreð sem reiknar
ekki með því að nota Ólaf Stefáns-
son í dag.
„Frakkarnir eru frábærir og
hvergi veikan hlekk að finna þar.
Það verður mikil prófraun að
mæta þeim.“ – hbg
Landsliðsþjálfarinn Alfreð Gíslason sagði leikinn í gær skref í rétta átt:
Getum ekkert ef við spilum
ekki af fullum krafti
ÖSKRAR Á STRÁKANA Alfreð Gíslason hvatti strákana óspart á hliðarlínunni og lét þá
oft heyra það þegar þeir gerðu vitleysur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Íslensku áhorfendurnir
voru hreint út sagt stórkostlegir í
gær, sungu og trölluðu allan
leikinn undir íslenskum tónum
sem voru mikið spilaðir á
leiknum.
Teitið hélt áfram eftir leik þar
sem Íslendingarnir söfnuðust
saman á Monte Cristo-barnum. Þá
stóð til að Eiríkur Hauksson tæki
lagið en hann hafði lofað því ef
Ísland myndi leggja Slóvaka. - hbg
Stemning í Þrándheimi:
Eiki tók lagið
ÁFRAM ÍSLAND Eiríkur Hauksson var í
stúkunni og tók lagið eftir leik.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Það var ekki hátt risið
á Zoltan Heist, þjálfara Slóvaka, í
gær og vonbrigðin voru mikil.
„Þetta var ekki eðlilegur leikur
hjá okkur. Þegar menn fréttu að
Ólafur Stefánsson yrði ekki með
Íslandi héldu strákarnir að þetta
yrði eitthvað auðvelt en það var
svo sannarlega ekki raunin,“
sagði Heist.
„Við erum með ungt lið sem
vantar stöðugleika. Það er meiri
breidd í íslenska liðinu og við
áttum ekki möguleika eftir fyrri
hálfleikinn þó svo að menn hafi
barist vel í þeim síðari.“ - hbg
Þjálfari Slóvaka eftir leikinn:
Vanmátu Ísland